
Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur á fimmtudaginn. Maðurinn ók bifreið sinni um Vesturlandsveg undir Hafnarfjalli á 151 km hraða á klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Strokpróf, sem framkvæmt var á staðnum, gaf enn fremur jákvæða svörun við neyslu kannabisefna. Var maðurinn því handtekinn, færður á lögreglustöðina í Borgarnesi…Lesa meira








