Fréttir

true

Hvað er rafeldsneyti?

Í fjáraukafrumvarpi sem samþykkt var á Alþingi síðastliðinn mánudag var ákveðið að leggja til fjármuni til að ýmissa fjárfestingar- og þróunarverkefna um nýtingu orku og þróun á eldsneyti til samgangna. Þar er meðal annars horft til að gera hagkvæmni- og fýsileikakönnun á einu af þeim verkefnum sem Þróunarfélag Grundartanga hefur unnið að undanfarin misseri í…Lesa meira

true

Óvenjulegt tekjustreymi Hvalfjarðarsveitar á síðasta ári

Rekstrarniðurstaða Hvalfjarðarsveitar á síðasta ári var jákvæð um 906,6 milljónir króna. Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2019 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar 24. mars síðastliðinn. Rekstrarekjur A og B hluta námu 1.055,9 milljónum króna á síðasta ári, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.047,9 milljónum. Rekstrargjöld voru 856,6 milljónir. Veltufé frá rekstri var 89,93% og…Lesa meira

true

Skipverjar á Bárði settu Íslandsmet í veiðum í mars

Hinn nýi og glæsilegi netabátur, Bárður SH frá Ólafsvík, hefur heldur betur mokfiskað það sem af er vertíðinni. Aflinn frá áramótum er nú kominn í 1.886 tonn. Þar af var aflinn 1.091 tonn í 30 róðrum í nýliðnum marsmánuði sem er að öllum líkindum Íslandsmet hjá netabáti í einum mánuði. Að sögn Pétur Péturssonar útgerðarmanns…Lesa meira

true

Ástin er alltaf drifkrafturinn í sambandinu

Þessa dagana sitja mörg pör og fjölskyldur heima dag eftir dag og viku eftir viku vegna þess ástands sem ríkir í samfélaginu. „Það getur reynt á þolrifin fyrir marga, sérstaklega þar sem áður hefur ríkt spenna í samskiptunum. Tíminn líður og lítið er við að vera hjá mörgum nema sjónvarpsáhorf og tölvuleikir. Og oft þarf…Lesa meira

true

Markaðsstofa Vesturlands bregst við ástandinu

Engum dylst að ferðaþjónustan stendur höllum fæti um þessar mundir vegna áhrifa Covid-19 á heimsbyggðina. Markaðsstofa Vesturlands hefur fylgst náið með gangi mála. Gerð var könnun meðal ferðaþjónustufyrirtækja í landshlutanum og í tölvupósti sem nýverið var sendur hagaðilum ferðaþjónustunnar á Vesturlandi, segir Margrét Björk Björnsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands, að margt ferðaþjónustufólk sé uggandi yfir stöðunni.…Lesa meira

true

Dæmdur fyrir ofsaakstur undir áhrifum á stolnum bíl

Karlmaður var nýverið í Héraðsdómi Vesturlands sakfelldur fyrir nytjastuld ökutækis og umferðalagabrot. Var honum gert að sæta 60 daga fangelsi og sviptur ökurétti í 15 mánuði. Manninum var gefið að sök að hafa tekið bíl í heimildarleysi við Kirkjubraut á Akranesi 2 í október 2019, ekið um götur bæjarins, um Akrafjallsveg og Vesturlandsveg þar til…Lesa meira

true

Vilja stækka friðlandið í Flatey

Umhverfisstofnun hefur, ásamt Reykhólahreppi og landeigendum í Flatey, kynnt áform um endurskoðun á friðlýsingu eyjarinnar. Um er að ræða stækkun á mörkum friðlandsins ásamt endurskoðun friðlýsingarskilmála. Austurhluti eyjunnar var friðlýstur 1975 vegna fuglaverndar og þar hefur um langt skeið verið náið samspil manns og náttúru. Friðlandið nær yfir austurhluta Flateyjar, ásamt eyjum og hólmum sunnan…Lesa meira

true

Heldur myndlistarsýningu á netinu á föstudaginn

Smári Jónsson, eða Smári kokkur eins og hann er oft kallaður, heldur myndlistasýningu á netinu á föstudaginn, 3. apríl næstkomandi. Smári kemur frá Akranesi en hefur undanfarin ár búið í Altea á Spáni ásamt Guðbjörgu Níelsdóttur Hansen, eiginkonu sinni. „Altea er mikill listamannabær á Costa Blanca ströndinni og er það ein af ástæðunum fyrir því…Lesa meira

true

Aðgerðir sveitarfélagana í ljósi aðstæðna

Nú þegar við stöndum frammi fyrir kórónuveiru og áhrifum sem hún kemur til með að hafa á efnahag fólks og fyrirtækja er mikilvægt að brugðist sé við til að minnka skaðann. Ríkið hefur komið fram með ákveðnar aðgerðir til að milda höggið fyrir almenning og fyrirtæki í landinu en sveitarfélögin þurfa sömuleiðis að bregðast við.…Lesa meira

true

SAF fordæmir afstöðu Alþýðusambands Íslands

„Nú er komið formlega fram að Alþýðusamband Íslands hefur hafnað málaleitan Samtaka atvinnulífsins um að leita leiða til að draga tímabundið úr launakostnaði fyrirtækja. ASÍ vill þannig hvorki ljá máls á frestun launahækkana né tímabundinni lækkun mótframlags í lífeyrissjóði. Óformlegar viðræður við ASÍ um þetta hafa staðið yfir um nokkurra vikna skeið án árangurs og…Lesa meira