
Engum dylst að ferðaþjónustan stendur höllum fæti um þessar mundir vegna áhrifa Covid-19 á heimsbyggðina. Markaðsstofa Vesturlands hefur fylgst náið með gangi mála. Gerð var könnun meðal ferðaþjónustufyrirtækja í landshlutanum og í tölvupósti sem nýverið var sendur hagaðilum ferðaþjónustunnar á Vesturlandi, segir Margrét Björk Björnsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands, að margt ferðaþjónustufólk sé uggandi yfir stöðunni.…Lesa meira








