Fréttir

true

Boðið í skólalóðahönnun

Tilboð í hönnun lóða við Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi voru opnuð á síðasta fundi skipulags- og umhverfisráðs. Tvær landslagsarkitektastofur gerðu tilboð í verkið. Landslag ehf. bauð tæpar 10,8 milljónir með virðisaukaskatti og Landmótun tæpar 14,8 milljónir með virðisaukaskatti. Kostnaðuráætlun hljóðaði upp á tíu milljónir króna. Ráðið lagði til að samið yrði við lægstbjóðanda, Landslag…Lesa meira

true

Færri mál til kasta lögreglu

Færri mál komu til kasta Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku en oft áður. Ástandið í þjóðfélaginu hefur orðið til þess að ferðamenn eru sárafáir í landshlutanum sem annars staðar á landinu og íbúar minna á ferðinni en áður. Að sögn lögreglu er þó haldið uppi öllu eftirliti, svo sem umferðareftirliti og hraðamælingum. Lögregla hefur…Lesa meira

true

Nýr vefur Grundarfjarðarbæjar

Grundarfjarðarbær hefur tekið í notkun nýja heimasíðu fyrir bæjarfélagið. Það var fyrirtækið Stefna sem hannaði og setti nýju vefsíðuna upp. Christina Degener, verkefnastjóri í markaðsmálum hjá Grundarfjarðarbæ, sá um að koma vefnum í höfn, ásamt Sunnu Njálsdóttur, umsjónarmanni bókasafnsins, en fleiri komu einnig að verkinu á fyrri stigum. Nýja síðan er mun aðgengilegri en eldri…Lesa meira

true

Nýttu morguninn í að plokka rusl

Afar mikilvægt er að fólk sem á þess kost fari út, hreyfi sig og andi að sér fersku útiloftinu. Um leið er hægt að gera eitthvað gagnlegt eins og þessi dugnaðarfjölskylda á Akranesi gerði í morgun. Tinna Ósk Grímarsdóttir fór í morgun út með börnin sín tvö og hreinsaði rusl af götum og gangstéttum í…Lesa meira

true

Átján smitaðir á Vesturlandi

Nú hafa verið staðfest smit hjá 1020 einstaklingum með Covid-19 á Íslandi. Tveir eru látnir úr sjúkdómnum en 124 er batnað. Nú dvelja 894 í einangrun og 9531 eru í stóttkví á landinu öllu. 19 einstaklingar eru á sjúkrahúsi og þar af 6 á gjörgæsludeild. Hér á Vesturlandi er tala smitaðra komin í 18 og…Lesa meira

true

Þórólfur Víðir Möller

Hún var lukkuleg landlæknirinn Alma D. Möller nýverið þegar hún setti meðfylgjandi mynd á Facebook síðu sína, með orðunum: „Við Þrjú á palli urðum mikils heiðurs aðnjótandi þegar þessi fallegi hrútur, sem fæddist í Stórholti í Saurbæ, fékk nafnið Þórólfur Víðir Möller.“ Það eru margir sem senda hlýja strauma til þríeykisins um þessar mundir, enda…Lesa meira

true

Kvöldmolar Kvikmyndafélagsins í kvöld

Í kvöld klukkan 20:30 býður Kvikmyndafélag Borgarfjarðar upp á spjallþátt á netinu. „Þetta verður skemmtilegur spjallþáttur fyrir alla á stór-310 svæðinu. Í þætti kvöldsins verður rætt við fólk sem stendur í ströngu þessa dagana við að hefta útbreiðslu Corona vírussins. Einnig verður boðið uppá nokkra hugljúfa tóna,“ segir Eiríkur Jónsson, einn af forystumönnum Kvikmyndafélags Borgarfjarðar.…Lesa meira

true

Mikið álag á hjálparsíma og netspjall RKÍ

Vegna mikils álags á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið, 1717.is hefur félagsmálaráðuneytið ákveðið að styðja við þjónustuna. Stuðningurinn mun efla Hjálparsímann og netspjallið í að sinna meðal annars fjölskyldum, börnum og ungmennum, fötluðu fólki, öldruðum og fólki af erlendum uppruna á þeim fordæmalausu tímum sem nú eru uppi vegna COVID-19. „Það hefur verið gríðarleg…Lesa meira

true

Meiri notkun ritstýrðra fréttamiðla en á undanförnum árum

Umtalsvert fleiri heimsóttu í þessari viku netfréttamiðla hér á landi en að jafnaði á síðustu mánuðum og árum. Þar er vefur Skessuhorns engin undantekning, en hann er nú í fimmta sæti yfir mest lesnu miðla sem Modernus mælir reglulega. Notendur í síðustu viku voru 12.912 talsins og er það um 30% aukning frá meðaltali síðustu…Lesa meira

true

Magnús SH og Saxhamar SH taka þátt í netarallinu

Fyrsti bátur lagði af stað í netarall Hafrannsóknastofnunar síðastliðinn miðvikudag. Í framhaldinu fara svo aðrir bátar á rallið. Netarallið stendur fram í síðari hluta aprílmánaðar og taka fimm bátar þátt í því; Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR frá Reykjanesi að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og…Lesa meira