Fréttir

true

Héldu tónleika í garðinum við Brákarhlíð

Um klukkan 14 í gær, föstudag, kíktu félagar í Hljómlistarfélagi Borgarfjarðar í heimsókn í Brákarhlíð í Borgarnesi. Héldu þeir tónleika þar fyrir íbúa og starfsfólk á heimilinu. Í ljósi aðstæðna vegna kórónuveirunnar voru tónleikarnir haldnir í portinu fyrir utan húsið, nánar tiltekið í garðinum. Þar gátu íbúar fylgst með og hlustað á ljúfa tóna með…Lesa meira

true

Allir eiga að hlýða Víði – líka íþróttafólk

„Við höfum fengið vísbendingar um að íþróttafólk félaga sé að stunda íþróttaæfingar úti í litlum hópum þrátt fyrir strangt samkomubann. Það er ekki til fyrirmyndar. Ég hreinlega undrast að fólk haldi að bannið eigi við um aðra, en ekki það sjálft. Við leggjum áherslu við stjórnendur í íþróttahreyfingunni að allt íþróttastarf eigi að fella niður,…Lesa meira

true

Sendum hlýja kveðju til forystufólksins okkar

Á tímum óvissu og þegar vá er fyrir dyrum erum við Íslendingar lánsamir að eiga gott fólk í forystu sem talar til okkar sem jafningjar, en um leið á föðurlegum og ákveðnum nótum. Við viljum tjá þakklæti okkar með því að birta hér mynd Bjarna Þórs Bjarnasonar skopmyndateiknara Skessuhorns af þeim Víði, Ölmu og Þórólfi.…Lesa meira

true

Nemendur hafa verið duglegir að mæta í tíma á netinu

Í Menntaskóla Borgarfjarðar var hratt brugðist við lokun framhaldsskóla og strax á mánudaginn í síðustu viku, fyrsta kennsludag eftir lokun, voru allir nemendur komnir í fjarnám og sinntu námi samkvæmt stundaskrá. Að sögn Braga Þórs Svavarssonar skólameistara gengur námið mjög vel. Öll kennsla fer fram í gegnum fjarskiptaforrit og mæta nemendur í tíma í gegnum…Lesa meira

true

Ný sektarákvæði vegna brota á sóttvarnalögum

Ríkissaksóknari hefur gefið út ný fyrirmæli vegna brota á sóttvarnarlögum og reglum settum samkvæmt þeim vegna Covid-19 faraldursins. Í þeim er meðal annars að finna sektarákvæði. Við broti gegn skyldu til að vera eða fara í sóttkví er liggur sekt á bilinu 50 til 250 þús. krónur, og sama sektarupphæð liggur við broti gegn skyldum…Lesa meira

true

Göt á tveimur sjókvíum í Ísafjarðardjúpi

Matvælastofnun barst tilkynning frá Sjávareldi (Hábrún hf.) föstudaginn 20. mars um göt á nótapoka tveggja sjókvía fyrirtækisins í Ísafjarðardjúpi. „Götin uppgötvuðust við neðansjávareftirlit 19. mars og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Sjávareldis voru götin þrjú um 20x30cm hvert á um tveggja metra dýpi. Í þessum tilteknu kvíum voru í sitthvorri rúmlega 26.000 regnbogasilungar með meðalþyngd…Lesa meira

true

Tólf smit í landshlutanum

Á Vesturlandi eru staðfest smit Covid-19 orðin tólf talsins og hefur smitum því fjölgað um tvö síðasta sólarhringinn. Í dag eru 299 í sóttkví í landshlutanum, skv. nýjum tölum frá almannavörnum. Staðfest smit á landinu öllu eru orðin 890 talsins og eru 806 í einangrun. Alls liggja 17 manns á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af…Lesa meira

true

Vilja blóðskilunarvél á HVE á Akranesi

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðastliðinn þriðjudag var samþykkt að skora á heilbrigðisyfirvöld að byggja upp bætta heilbrigðisþjónustu í bæjarfélaginu með uppsetningu á blóðskilunarvél á sjúkrahúsinu á Akranesi. Um leið er ítrekuð ósk þar að lútandi til heilbrigðisráðherra frá árinu 2017. Bent er á að jafnræðis er ekki gætt í heilbrigðisþjónustu við íbúa á þjónustusvæði HVE…Lesa meira

true

Voru vel í stakk búin til að kenna í gegnum netið

Nemendur og starfsfólk í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði sinna nú námi í gegnum internetið eins og aðrir framhaldsskólar. Skólinn var, að sögn Hrafnhildar Hallvarðsdóttur skólameistara, frekar vel undir breytingarnar búinn og hefur kennsla því gengið afskaplega vel í samkomubanni. „Það gengur í raun ótrúlega vel miðað við aðstæður. Við höfum haldið stundaskrá alveg óbreyttri og…Lesa meira

true

Fimmtán milljarðar í sérstakt átak gegn samdrætti í efnahagskerfinu

Snæfellsnesvegur um Skógarströnd er meðal flýtiverkefna stjórnvalda Framkvæmdir við samgöngumannvirki eru stærsti einstaki liðurinn í sérstöku 15 milljarða fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu. Þingsályktunartillaga um aðgerðirnar var tekin til umræðu á Alþingi á fimmtudag. Viðhald húsa á Vesturlandi Áformað er að verja rúmum 2,0 milljörðum til endurbóta og viðhalds fasteigna. Þar…Lesa meira