
Um klukkan 14 í gær, föstudag, kíktu félagar í Hljómlistarfélagi Borgarfjarðar í heimsókn í Brákarhlíð í Borgarnesi. Héldu þeir tónleika þar fyrir íbúa og starfsfólk á heimilinu. Í ljósi aðstæðna vegna kórónuveirunnar voru tónleikarnir haldnir í portinu fyrir utan húsið, nánar tiltekið í garðinum. Þar gátu íbúar fylgst með og hlustað á ljúfa tóna með…Lesa meira








