Fréttir

true

Spáð er að atvinnuleysi verði tímabundið það mesta í fjörutíu ár

Atvinnuleysi í landinu var 5% í febrúar á þessu ári samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Fjöldi atvinnulausra var þá um 10.300 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi aukist í 10-11% nú í apríl og maí, bæði vegna fjölgunar almennra umsókna um atvinnuleysisbætur, en fyrst og fremst þó vegna fjölda þeirra sem eru að sækja um vegna…Lesa meira

true

Uppsagnir í kjölfar breyttra aðstæðna

Fjörtíu og einum starfsmanni Skagans 3X og Þorgeirs & Ellerts á Akranesi hefur verið sagt upp störfum. Að sögn Ingólfs Árnasonar framkvæmdastjóra er þetta varúðarráðstöfun sem gripið er til svo mæta megi þeim breytingum sem verða á mörkuðum fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins. Nú þurfi einfaldlega að horfa fram á óþekkt ástand. „Veruleikinn hefur breyst hratt undanfarna…Lesa meira

true

Mikilvægt að halda utanum nemendur

Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þurftu bæði kennarar og nemendur að vera fljótir að aðlagast nýjum aðstæðum þegar samkomubann tók gildi og tekið var fyrir skólasókn nemenda í sjálft skólahúsið. Skólinn býður aðeins upp á staðnám og því ekki jafn vel undir það búinn að færa sig alveg yfir í fjarnám og skólar sem þegar…Lesa meira

true

Smitandi lifrardrep í kanínum

Orsök veikinda og dauða mikils fjölda kanína í Elliðaárdal í Reykjvavík er að öllum líkindum sjúkdómurinn smitandi lifrardrep. Þetta sýna bráðabirgðaniðurstöður rannsókna á kanínuhræjum sem Matvælastofnun sendi til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi sjúkdómur greinist í kanínum utan kanínubúa eða heimila á Íslandi. „Kanínueigendur skulu gæta…Lesa meira

true

Tíu smit í landshlutanum

Tíu smit Covid-19 kórónaveirunnar hafa greinst á Vesturlandi og 290 íbúum landshlutans hefur verið gert að sæta sóttkví. Þetta kemur fram á www.covid.is, upplýsingavef landlæknisembættisins og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Eftirleiðis verður sú breyting á upplýsingagjöf Lögreglunnar á Vesturlandi til íbúa í landshlutanum að eingöngu verður vísað til upplýsinga um smit sem koma fram á www.covid.is. Hér…Lesa meira

true

Efling segist hafa haft samráð við starfsmenn í orlofshúsabyggðum

Í kjölfar fréttar hér á vefnum í gær, þar sem rætt var við Einar Björnsson umsjónarmanna orlofshúsabyggðar Eflingar í Svignaskarði hefur Skessuhorni borist tilkynning frá stéttarfélaginu Eflingu. Þar segir meðal annars: „Í Svignaskarði er Efling og 15 önnur stéttarfélög að reka orlofshús. Vill félagið koma eftirfarandi á framfæri: Landlæknisembættið hefur ekki mælt með lokun orlofshúsabyggða…Lesa meira

true

Viðbótarfé til endurbóta á heilbrigðisstofnunum

Samkvæmt þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra, sem tekin verður til umfjöllunar á Alþingi í dag, verður byggt við endurhæfingardeild Landspítalans við Grensás, ráðist í endurbætur á húsnæði heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og sérstakt framlag veitt til nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu. Einum milljarði króna verður varið í þessi verkefni á árinu samkvæmt tillögu um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn…Lesa meira

true

Rafrænn samningur við slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning og var hann undirritaður með rafrænum hætti á milli aðila. „Þetta eru fyrstu samningaviðræðurnar sem hafa allar farið fram í gegnum netið og eru kláraðar með rafrænum hætti,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þegar Magnús Smári Smárason,…Lesa meira

true

Heiðar Örn ráðinn til Slökkviliðs Borgarbyggðar

Heiðar Örn Jónsson hefur verið ráðinn í starf eldvarnareftirlitsmanns og varaslökkviliðsstjóra Slökkviliðs Borgarbyggðar. Þrír aðrir sóttust eftir starfinu þegar það var auglýst; Bergur Már Sigurðsson, Sigurður Þór Elísson og Viktor Örn Guðmundsson en að loknu ráðningarferli var ákveðið að ráða Heiðar til starfsins. Hann hefur störf um miðjan aprílmánuð. Heiðar hefur stundað nám í húsasmíði…Lesa meira

true

Nýtur þess að hanna nýjar prjónauppskriftir

Hún Ingibjörg Sigurðardóttir í Grundarfirði situr sjaldan auðum höndum. Hún rekur þvottahús í Grundarfirði, býr þar í bæ ásamt fjölskyldu sinni en draumurinn er að geta með tíð og tíma sest að á jörð þeirra Innri-Látravík, skammt vestar í Eyrarsveitinn. Ingibjörg, eða Bibba eins og hún er jafnan kölluð, hefur auk þess gaman af að…Lesa meira