Fréttir

true

Gul viðvörun vegna veður í dag

Í dag gengur í sunnan 13-23 m/s vind á landinu. Hvassast verður í vindstrengjum norðvestanlands. Lægðinni fylgir sjókoma eða slydda sunnan- og vestanlands, en víða verður rigning á láglendi, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 1 til 7 stig. Mun hægari suðlæg átt vestantil í kvöld með snjókomu og kólnandi veðri. Gul viðvörun er í…Lesa meira

true

RML hefur útbúið viðbragðsáætlun fyrir bændur

Nauðsynlegt er fyrir bændur að hafa viðbragðsáætlun sem tekur til þátta sem mikilvægir eru til að tryggja órofinn búrekstur komi til veikinda. Gera þarf ráð fyrir að afleysingamaður geti gengið inn í dagleg störf án þekkingar á viðkomandi búi eða með aðstoð bónda. Þá skiptir viðbragsáætlun hvers bús höfuðmáli. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur nú útbúið grunn…Lesa meira

true

Kennt frá „sólarströnd“

Tæknina hafa kennarar við Menntaskóla Borgarfjarðar tekið í sína þjónustu eftir að framhalsskólum landsins var lokað samhliða samkomubanni. Reynt er eftir fremsta megni að raska námi sem minnst og því kennt í fjarkennslu. Kennararnir hafa jafnframt nýtt tækifærið til að bregða á leik, til að reyna að létta nemendum og sjálfum sér lundina á þessum…Lesa meira

true

Verslanir, veitingastaðir og bakarí í heimsendingu

Nú þegar fólk ýmist veigrar sér við að fara í verslun eða út að borða, eða einfaldlega má það ekki vegna þess að það er í sóttkví, eru ýmsir farnir að bjóða upp á heimsendingu á mat. Hér á Vesturlandi má nefna Geirabakarí og Nettó í Borgarnesi en auk þess Einarsbúð á Akranesi og veitingastaðina…Lesa meira

true

Frestað fram í miðjan maí

Íslandsmótið í knattspyrnu og bikarmótið mun hefjast um miðjan maí, að því gefnu að samkomubanni ljúki um miðjan aprílmánuð. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti tillögu þess efnis á fundi sínum í gær. Staðan verður endurmetin um miðjan apríl þegar frekari upplýsingar liggja fyrir og ef til þess kemur að samkomubann verði framlengt. „Þannig er gert ráð…Lesa meira

true

Samband sveitarfélaga hvetur til margháttaðra aðgerða

Samband íslenskra sveitarfélaga beinir því til sveitarfélaga að hrinda í framkvæmd eins og kostur er margvíslegum hugmyndum og ábendingum að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf í ljósi þess samdráttar sem blasir við í þjóðarbúskapnum. Sambandið hvetur jafnframt ríkisstjórn og Alþingi að gera viðeigandi ráðstafanir svo þær verði að veruleika. „Stjórn sambandsins mun áfram fylgjast…Lesa meira

true

Ný líkamsræktarstöð að verða tilbúin í Búðardal

Ungmennafélagið Ólafur Pá í Dölum er nú langt komið með undirbúning fyrir opnun líkamsræktarstöðvar. Félagið festi nýverið kaup á húsnæði fyrir líkamsræktina á Vesturbraut 8 í Búðardal. Síðustu vikur hefur fjöldi fólks unnið hörðum höndum í sjálfboðavinnu við framkvæmdir í húsnæðinu ásamt því að flytja öll tæki og tól, en starfsemin var áður til húsa…Lesa meira

true

Kvenfélagskonum finnst komið nóg um ástand Hvítársíðuvegar

Kvenfélag Hvítársíðu hefur sent opið bréf til Vegagerðarinnar þar sem bágborið ástand malarvegarins um Hvítársíðu er fært í tal. Afrit af bréfinu er jafnframt sent á sveitarstjórn Borgarbyggðar, þingmenn Norðvesturkjördæmis, samgönguráðherra, vegamálastjóra og Skessuhorn. Í upphafi er það rifjað upp í bréfi kvenfélagskvenna að á árunum 1930-1933 gengu konur í Kvenfélaginu Heklu í Skagahreppi í…Lesa meira

true

Dvöl í sumarhúsum hefur aukist til muna

Sú spurning hefur vaknað hvort einhverjar reglur séu í gildi hér á landi um hvort heimilt sé að dvelja í sumarhúsum meðan fólki er gert að vera í sóttkví vegna Covid-19 veirunnar. Í almennum reglum um sóttkví, sem lesa má um á covid.is segir m.a.: „Einstaklingur í sóttkví á að halda sig heima við og…Lesa meira

true

Frumvarp um samvinnuverkefni í vegagerð

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Ef lögin verða samþykkt verður Vegagerðinni gert heimilt, að undangengnu útboði, að eiga samvinnu við einkaaðila um fjármögnun, hönnun, undirbúning og framkvæmdir við sex afmörkuð verkefni ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Þá verður heimilt að fjármagna samvinnuverkefni…Lesa meira