
Matvælastofnun hefur samþykkt að heitið Íslensk lopapeysa – Icelandic Lopapeysa verði skráð sem verndað afurðarheiti með vísan til uppruna. Handprjónasamband Íslands sótti um vernd fyrir afurðarheitið. Þetta er annað afurðarheitið sem hlýtur vernd hérlendis frá því að lög þess efnis tóku gildi árið 2015. Áður hlaut heitið „Íslenskt lambakjöt“ skráða vernd.Lesa meira








