Fréttir

true

Mótmæla áformum um lögþvingaðar sameiningar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Felast þau meðal annars í ákvæðum um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, sem sveitarstjórn segir ólýðræðislega. „Tillagan um lágmarksfjölda íbúa er sem slík í algjörri andstæðu við þær lýðræðislegu áherslur sem koma fram að öðru leyti í tillögunni,“ segir í bókun sveitarstjórnar frá 25. febrúar.…Lesa meira

true

Samdráttur í flugi í febrúar jafnast á við umsvif WOW

Áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli í febrúar síðastliðnum fækkaði um fjórðung miðað við sama tímabil í fyrra. Þessi fækkun jafngildir því vægi sem WOW air hafði á flugvellinum meðan félagsins naut við, en í febrúar í fyrra höfðu Skúli Mogensen og aðrir stjórnendur WOW air verið með blóðugan niðurskurðarhnífinn á lofti. Þetta kemur fram á vefnum turisti.is.…Lesa meira

true

Byrjað á landfyllingu við Framnes

Starfsmenn Borgarverks eru byrjaðir að stækka Grundarfjarðarbæ um eina fjögur þúsund fermetra, en þeir hafa byrjað að fylla upp í svæðið norðan við höfnina, á móts við Hótel Framnes. Áætlað er að þessari framkvæmd ljúki í sumar. Landfyllingin mun stækka iðnaðarsvæðið á höfninni fyrir athafnalóðir fyrir hafnsækna starfsemi.Lesa meira

true

Sendir Baska kveðju

Björgvin Hólm Hagalínsson á Akranesi sá í síðasta Skessuhorni nýverið mynd af Bjarna Skúla Ketilssyni myndlistarmanni, þar sem hann var staddur við opnun mynlistarsýningar sinnar í gamla Iðnskólanum á Akranesi. Baski málaði veisluborð með öllum helstu íslensku hnallþórunum og stillti upp fyrir framan verkið borði með samskonar hnallþórum og kallaði verkið; „Fyrirgefið þetta lítilræði,“ í…Lesa meira

true

Siggi Hösk bauð á stofutónleika

Sigurður Höskuldsson bauð á stofutónleika á heimili sínu í Ólafsvík um síðustu helgi. Þar bauðst gestum og gangandi að koma við og hlýða á ljúfa tóna, falleg lög og ljóð um fólk, umhverfi og tilfinningar. Auk Sigga Hösk, eins og hann er venjulega kallaður, sungu þau Aðalsteinn Kristófersson sem einnig spilaði á gítar og Olga…Lesa meira

true

Ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás og morðhótun í Grundarfirði, aðfararnótt laugardagsins 20. október 2018. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Vesturlands 13. mars næstkomandi. DV greinir frá, en miðillinn hefur ákæru héraðssaksóknara undir höndum. Manninum er gefið að sök að hafa ýtt öðrum manni upp að grindverki, þrengt að hálsi hans þar til…Lesa meira

true

Björk hlaut viðurkenningu Hagþenkis

Viðurkenning Hagþenkis, Félags höfunda fræðirita og kennslugagna, var veitt í gær í Þjóðarbókhlöðunni. Hana hlaut Björk Ingimundardóttir skjalavörður frá Hæli í Flókadal í Borgarfirði fyrir ritið Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I–II, sem Þjóðskjalasafn gaf út. Í orðum viðurkenningaráðsins sagði um ritið: „Yfirgripsmikið uppflettirit ásamt kortum sem auðveldar yfirsýn yfir sögu landsins og á…Lesa meira

true

Skeljungur kaupir Bauluna og opnar Orkustöð

Fram kemur í tilkynningu frá Skeljungi í dag að fyrirtækið hafi keypt rekstur Baulunnar í Stafholtstungum. Í kaupunum fylgja allar fasteignir og lóðarréttindi ásamt verslunar- og veitingarekstrinum sjálfum. Fyrirhugað er að bensínstöð Orkunnar verði opnuð á svæðinu á komandi mánuðum og þá hyggst Skeljungur efla rekstur veitingasölunnar. Samhliða því að Orkan verður söluaðili munu merki…Lesa meira

true

Engar heimsóknir leyfðar og dregið úr ferðalögum

Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði fer að dæmi annarra fiskvinnslufyrirtækja hér á landi og hefur nú beint þeim tilmælum til starfsmanna að engar heimsóknir eru leyfðar í starfsstöð fyrirtækisins um óákveðinn tíma vegna óvissuástands sem ríkir vegna Covid-19 veirunnar. Að auki er starfsfólk hvatt til að draga úr ferðalögum eins og frekast er unnt og…Lesa meira

true

Ritsmiðjur framundan í Safnahúsi

Miðvikudagana 11. og 25. mars næstkomandi stendur bókasafn Safnahússins í Borgarnesi fyrir tvenns konar ritsmiðjum í umsjón Sunnu Dísar Másdóttur. Hún er sjálfstætt starfandi bókmenntagagnrýnandi, ritlistarleiðbeinandi og skáld. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 og aðgangur er ókeypis. Ritsmiðjan miðvikudaginn 11. mars verður klukkan 19:20-22:30 og nefnist „Að skrifa lífið.“  Þar er um að ræða fræðandi smiðja…Lesa meira