
Árlegt kútmagakvöld Lionsklúbbs Grundarfjarðar var haldið í samkomuhúsinu laugardaginn 22. febrúar síðastliðinn. Við það tilefni afhentu Lionsmenn peningastyrki til málefna í heimabyggð. Að þessu sinni hlutu styrki Ungmennafélag Grundarfjarðar, Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness, Klifurfell menningarhús og Golfklúbburinn Vestarr.Lesa meira








