Fréttir

true

Þættirnir Á hálum ís teknir til sýningar í næsta mánuði

Ríkissjónvarpið tekur í næsta mánuði til sýningar nýja þáttaröð sem nefnist Thin Ice, sem þýði mætti; Á hálum ís. Þættirnir voru að stærstum hluta teknir upp í Stykkishólmi á fyrstu fjórum mánuðum liðins árs, en bærinn var eins og kom fram í Skessuhorni, dulbúinn sem Grænland og mikill fjöldi tökufólks og leikara staddur þar á…Lesa meira

true

Breiðafjarðarnefnd vill endurskoða lög um vernd fjarðarins

Breiðafjarðarnefnd, í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, stendur þessa dagana fyrir fræðslufundaröð um framtíð Breiðafjarðar í sveitarfélögum við fjörðinn. Fundir hafa þegar verið haldnir í Snæfellsbæ og Stykkishólmi, í næstu viku verður fundur í Grundarfirði og á næstunni verður sömuleiðis boðað til funda í Dalabyggð, á Reykhólum og í Vesturbyggð. Á fundunum kemur fram að Breiðafjarðarnefnd…Lesa meira

true

Leikskólabygging fokheld á Kleppjárnsreykjum

Viðbygging sem hýsa mun leikskólann Hnoðraból og kennslurými kennara við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum er nú fokheld. Verkið er á áætlun og áætlað er að taka húsið í notkun fyrir upphaf næsta skólaárs. Nýbyggingin er reist úr forsteyptum einingum, alls 530 fermetrar að flatarmáli. Byggingarverktaki er Eiríkur J. Ingólfsson. Stjórnendur Hnoðrabóls og GBF fóru í skoðunarferð…Lesa meira

true

Snæfellskonur réðu ferðinni í Vesturlandsslagnum

Snæfell sigraði Skallagrím örugglega í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Liðin mættust í Stykkishólmi á í gærkvöldi. Það voru Hólmarar sem höfðu yfirhöndina stærstan hluta leiksins og sigruðu að lokum með 19 stigum, 73-54. Snæfellskonur voru öflugar í upphafi leiks. Þær skoruðu fyrstu sjö stigin áður en Borgnesingar komust á blað. Snæfell réði ferðinni…Lesa meira

true

Landsréttur vísar frá beiðni um áfrýjun máls

Landsréttur hafnaði því með úrskurði 17. janúar síðastliðinn að verða við beiðni Akraneskaupstðar um áfrýjun dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá síðasta ári þar sem umsækjanda um starf forstöðumanns íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar voru dæmdar miskabætur þar sem framhjá honum hafði verið gengið við ráðningu í starfið. Var umsækjandanum, Indriða Jósafatssyni, dæmdar 700 þúsund króna miskabætur auk vaxta samkvæmt…Lesa meira

true

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir breikkun Vesturlandsvegar

Eins og kunnugt er tók Skipulagsstofnun ákvörðun um það í júní síðastliðnum að fyrirhuguð breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skyldi háð mati á umhverfisáhrifum. Þar sem óttast var að sú krafa myndi fresta verkinu um ófyrirséðan tíma var ákvörðunin kærð til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál strax þá um sumarið. Forgöngu að kæru hafði Akraneskaupstaðar enda…Lesa meira

true

Klóblaðka er nýuppgötvaður rauðþörungur við Ísland

Nýlega uppgötvuðu starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, ásamt vísindamönnum við Náttúrugripasafnið í Lundúnum, áður óþekkta tegund rauðþörunga hér við land, sem þeir hafa nú nefnt klóblöðku. Þörungurinn er blaðlaga, getur orðið 30 til 40 cm langur og 10 til 25 cm breiður. Hann er áberandi í fjörum, sérstaklega við Suðvesturland en finnst einnig víða við vesturströndina, við Vestfirði…Lesa meira

true

Vilja dusta rykið af hugmynd um brú yfir Hvítá hjá Stafholtsey

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hafði á síðasta fundi sínum samgöngumál til umræðu vegna endurskoðunar aðalskipulags sveitarfélagsins 2010-2022. Nefndin tók undir bókun skipulags- og byggingarnefndar um að skoða þurfi legu stofnvega og Hringvegar um sveitarfélagið í samvinnu við Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið.  „Þá er það álit nefndarinnar að taka beri hjáleið um Borgarnes út af aðalskipulagi sbr.…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á íbúafund um atvinnumál og stefnumótun Breiðarsvæðis

Í gærkvöldi boðaði Akraneskaupstaðar íbúa og fulltrúa atvinnulífsins til opins fundar um atvinnumál á Garðavöllum. Óhætt er að segja að mikill áhugi hafi verið fyrir umræðuefninu, en gestir voru um 130 þegar mest var. Markmið bæjaryfirvalda með fundinum var að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu atvinnulífs með sérstakri áherslu á Breið…Lesa meira

true

Veganvagninum á Akranesi lokað um mánaðamótin

Forsvarsmenn Junkyard vegan vagnsins á Akranesi hafa tilkynnt að vagninn verði lokaður frá og með 1. febrúar næstkomandi. Junkyard var opnaður af hjónunum Daniel Ivánovics og Evu Helgadóttur í mars á síðasta ári og fékk hann strax góðar viðtökur, en aðeins er seldur vegan matur í vagninum. Í tilkynningunni á Facebook síðu fyrir vagninn segir…Lesa meira