Fréttir

true

Óvissustigi lýst yfir vegna kórónaveiru

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveirunnar (2019-nCoV). Ekkert smit hefur þó verið staðfest á Íslandi. Á vef Almannavarna kemur fram að í lok desember 2019 bárust fregnir af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína. „Í kjölfarið var staðfest að um áður óþekkt kórónaveiruafbrigði er að ræða,…Lesa meira

true

Gunnhildur er íþróttamaður HSH 2019

Körfuknattleikskonan Gunnhildur Gunnarsdóttir var valin körfuknattleiksmaður ársins og íþróttamaður ársins 2019 hjá Héraðssambandi Snæfellsness og Hnappadalssýslu. Greint var frá valinu á föstudagskvöld. Gunnhildur hefur leikið megnið af sínum ferli með Snæfelli og verið ein besta körfuknattleikskona landsins um langt skeið. Með Snæfelli hefur hún þrisvar sinnum fagnað Íslandsmeistaratitlinum og einu sinni orðið bikarmeistari, auk þess…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu stórt

Snæfellingar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn sterku liði Breiðabliks þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var í Stykkishólmi. Eftir jafnan upphafsfjórðung tóku gestirnir að síga fram úr og unnu að lokum stórsigur, 73-111. Fyrsti leikhluti var sem fyrr segir mjög jafn. Liðin fylgdust að lengst framan…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn sterku liði Hattar, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik tóku gestirnir stjórnina í þeim síðari og sigruðu að lokum örugglega, 64-88. Borgnesingar byrjuðu leikinn betur og leiddu 10-3 eftir fjögurra míntúna leik. Þá tóku gestirnir við sér, jöfnuðu…Lesa meira

true

Club71 sendir þakkir til Skagamanna

“Hjartans þakkir kæru Skagamenn,“ eru upphafsorð félaga í Club71 á Akranesi í tilkynningu sem þeir sendu frá sér að loknu þorrablóti Skagamanna síðastliðin laugardag. „Þið eigið heiður skilinn fyrir að mæta á Þorrablót Skagamanna og gera þennan magnaða menningarviðburð jafn stórkostlegan og raun ber vitni. Því án jákvæðra og fjörugra gesta verður engin veisla.“ Eftir…Lesa meira

true

Norræn rannsókn á launakerfi í sjávarútvegi

Síðastliðið haust tók sjávarútvegsráðuneytið, að frumkvæði Kristján Þórs Júlíussonar ráðherra, til umræðu á vettvangi norræns samstarfs í fiskimálum hvort framkvæma mætti samanburð á kjörum og launakerfum sjómanna í hinum norrænu ríkjum, sérstaklega með tilliti til umræðu sl. haust um verðmun á uppsjávarafla hér á landi og í Noregi. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness hefur verið…Lesa meira

true

Rýmri opnun Bókasafns Akraness

Bókasafn Akraness hefur tekið upp þá nýbreytni á nýju ári að opna safnið klukkan 10:00 virka daga og býður þá upp á „Opnun án þjónustu“. Klukkan 12 er safnið svo opnað með fullri þjónustu. „Á síðasta ári var starfsemi safnsins endurskoðuð og hugað að framtíðar þess. Efnt var til vinnufundar undir stjórn sérfræðinga frá Advanina…Lesa meira

true

Íbúum í fjölbýlishúsum sagt upp húsaleigu

Leigufélagið Heimavellir sagði nýverið upp húsaleigu allra þeirra sem leigja af þeim íbúðir í fjölbýlishúsinu Holtsflöt 4 á Akranesi, alls 18 fjölskyldum. Það er gert í kjölfar þess að fyrirtækið seldi húsið í byrjun árs. Í tilkynningunni frá Heimavöllum kemur fram að leigusamningar hafi verið seldir með húsinu, en nú hafi komið í ljós að…Lesa meira

true

Andrea er Skagamaður ársins 2019

Andrea Þ. Björnsdóttir er Skagamaður ársins 2019. Þetta var tilkynnt á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í Íþróttahúsinu við Vesturgötu í gærkvöldi. Það er bæjarráð Akraness sem staðfestir val á Skagamanni ársins hverju sinni. Fram kom í ávarpi sem Elsa Lára Arnardóttir, formaður bæjarráðs flutti, að Andrea hljóti verðlaunin fyrir óeigingjarnt starf hennar við aðstoð…Lesa meira

true

Norðaustan hríð í nótt og á morgun

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun um landið sunnan- og vestanvert frá því í kvöld og til morguns. Viðvörunin tekur gildi á Breiðaffjarðarsvæðinu á miðnætti og þar til á hádegi. Spáð er norðaustan hríð, austan og norðaustan 15-25 m/s með snjókomu og skafrenningi. Búast má við takmörkuðu eða lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum á…Lesa meira