Fréttir

true

Pósturinn hættir dreifingu fjölpósts á Akranesi og víðar

Frá og með 1. maí næstkomandi mun Íslandspóstur hætta dreifingu á ónafnamerktum fjölpósti á Akranesi, Reykjanesi, Selfossi og höfuðborgarsvæðinu. Pósturinn mun halda áfram að bjóða upp á dreifingu á fjölpósti á öðrum svæðum landsins og í dreifbýli. Þessi breyting er sögð leiða til um 200 milljóna króna lækkunar kostnaðar á ársgrundvelli hjá fyrirtækinu, en sömuleiðis…Lesa meira

true

Ný skurðstofa á Akranesi í undirbúningi

Til stendur að setja upp nýja skurðstofu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og fjölga liðskiptaaðgerðum þar verulega. Verkefnið er komið á rekspöl og er í undirbúningsferli um þessar mundir. Að sögn Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur, forstjóra HVE, getur hún ekki sagt til um hvenær taka mætti nýja skurðstofu á Akranesi í notkun, en vonast til að…Lesa meira

true

Gömlu Björginni verður siglt til Flateyrar

Björgunarbáturinn Björg í Rifi er á næstu dögum á leiðinni í nýtt verkefni. Báturinn er búinn að liggja við bryggju í Rifi frá síðasta hausti þegar ný Björg kom í flota Lífsbjargar. Til stóð að selja gömlu Björgina, en það hefur ekki gengið eftir og er þessa dagana unnið að því að standsetja hana og…Lesa meira

true

Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri

Stefán Eiríksson verður nýr útvarpsstjóri og tekur til starfa 1. mars næstkomandi. Stjórn RÚV tilkynnti um þá ákvörðun sína að ráða Stefán í dag. Var hann valinn úr hópi 41 umsækjanda. Umsóknarfrestur var upphaflega til 2. desember en var framlengdur eftir það til að stjórn hefði úr fleiri umsóknum að velja. Ekki var opinberað hverjir…Lesa meira

true

Gáfu Hollvinasamtökum HVE andvirði þriggja nýrra sjúkrarúma

Síðastliðinn sunnudag hélt Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranesi afmælis- og hátíðarfund sinn í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Tilefnið var að hálf öld er nú liðin frá stofnun klúbbsins. Við þetta tækifæri færði Kiwanisklúbburinn Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands veglega gjöf, en félagið hefur látið gott af sér leiða til ýmissa mannúðarstarfa alla tíð. Steinunn Sigurðardóttir formaður stjórnar Hollvinasamtaka…Lesa meira

true

Enrique Snær hreppti silfrið

Keppt var í sundi á Reykjavíkurleikunum um síðustu helgi. Alls tóku 315 keppendur þátt í mótinu, þar af 115 erlendir. Sundfélag Akraness átti níu keppendur á Reykjavíkurleikunum að þessu sinni. Bestum árangri þeirra náði Enrique Snær Llorens sem hreppti silfurverðlaun í 200 metra flugsundi. Brynhildur Traustadóttir synti til úrslita í 200 m skriðsundi og Guðbjörg…Lesa meira

true

Biskupsvísitasía framundan í Vesturlandsprófastsdæmi

Séra Agnes M Sigurðardóttir biskup Íslands mun heimsækja Vesturlandsprófastsdæmi dagana 30. janúar til 3. febrúar næskomandi. „Þetta er fyrsta vísitasía biskups Íslands í nýju Vesturlandsprófastsdæmi frá 2010, þegar Borgarfjarðarprófastsdæmi og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi voru sameinuð í eitt. Fyrrum víslubiskup, séra Kristján Valur Ingólfsson, vísiteraði prófastsdæmið ásamt prófasti árið 2017,“ segir séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur…Lesa meira

true

Vetrarríki og gular viðvaranir

Íbúar á Snæfellsnesi hafa ekki farið varhluta af gulum veðurviðvörunum frekar en aðrir landsmenn undanfarnar vikur. Margt hefur komið uppá í veðurhamnum, en sem dæmi um það má nefna að í síðustu viku stíflaðist rör á vegi 54 vestan við Grundarfjörð. Flæddi vatn yfir veginn en mikil úrkoma var þennan dag og mjög hvasst. Þurfti…Lesa meira

true

Kristín þriðja á Reykjavíkurleikunum

Kristín Þórhallsdóttir úr Kraftlyftingafélagi Akraness hafnaði í þriðja sæti í kvennaflokki í klassískum kraftlyftingum á Reykjavíkurleikunum 2020. Hún lyfti 170 kg í hnébeygju, 87,5 kg í bekkpressu og 180 kg í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur var því 437,5 kg sem skilaði henni 677,4 IPF stigum. Varð hún hlutskörpust í 84 kg flokki og þriðja í heildarstigakeppninni.…Lesa meira

true

Íbúafundur um fjárhagsáætlun í Borgarbyggð í kvöld

Sveitarstjórn Borgarbyggðar stendur þessa dagana fyrir íbúafundum. Stærsti fundurinn verður haldinn í mennta- og menningarhúsinu Hjálmakletti í kvöld kl. 20:00. Þar verður fjárhagsáætlun Borgarbyggðar kynnt. Í kjölfarið verður kynning á úrgangsmálum í sveitarfélaginu, meðal annars söfnun lífræns úrgangs og dýraleifa. Streymt verður beint frá fundinum í Hjálmakletti og hann því gerður öllum aðgengilegur. Að sögn…Lesa meira