
Vetrarfærð er um mestallt land og sumsstaðar vonskuveður samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Vegir eru víða ýmist ófærir eða lokaðir. Á Snæfellsnesi eru flestar leiðir ófærar eða þungfærar, þar sem hálka eða snjóþekja er og sumsstaðar þæfingur og þónokkur snjókoma víða. Ófært er á Laxárdalsheiði. Vatnaleið er aðeins fær fjórhjóladrifsbílum, Brattabrekka er lokuð og sömuleiðis Holtavörðuheiði.…Lesa meira








