Fréttir

true

Perlað af Krafti á Akranesi í dag

Kraftur hvetur alla sem eru búsettir á Akranesi og nágrenni að perla með sér nýtt „Lífið er núna“ armband í dag, miðvikudaginn 8. janúar. Kraftur mun þá leggja leið sína í bæjarfélagið og verður í Grundaskóla milli klukkan 16:30 og 20:00. „Armböndin sem um ræðir eru í sannkölluðum norðurljósalitum og eru sérstök afmælisarmbönd í tilefni…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Íslands kaupir nýja ísvél í Rif

Seint á síðasta ári keypti Fiskmarkaður Íslands nýja og öfluga ísvél sem komið var fyrir í útibúi fiskmarkaðarins í Rifi. Stefnt er að gangsetningu hennar á næstu dögum, en hún kemur til með að framleiða 20 tonn af ís á sólarhring. Vélin var keypt af KAPP ehf. í Garðabæ, sem einnig annaðist uppsetningu á dreifikerfi…Lesa meira

true

Næg verkefni björgunarsveita í gær og nótt

Björgunarsveitin Berserkir var kölluð til þegar smábátur losnaði frá bryggju í Stykkishólmshöfn í morgun. Landfestar bátsins slitnuðu um hálf sjö leytið og stóð útkallið yfir í meira en klukkustund. Vonskuveður var í Hólminum þegar óhappið varð. „Það var leiðinda vestan þræsingur, en útkallið gekk vel. Auðvitað tekur svona lagað tíma en þetta gekk bara fínt…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Borgarfirði

Rafmagnstruflanir eru á Norðurárdalslínu. Straumlaust er frá Vatnshömrum að Varmalandi. Verið er að skipta um brotinn einangrara og er áætlað að þeirri vinnu ljúki um kl. 12:00 á hádegi, að því er fram kemur í tilkynningu Rarik. Einnig er straumlaust við Hreðavatn vegna bilunar á línunni. Bilanaleit hefur ekki komist á staðinn enn til að…Lesa meira

true

Forsvarsmenn Mountaineers of Iceland með dólg við blaðamann

Fréttablaðið hefur í dag verið í samskiptum við forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineer of Icaland sem skipulagði og ber ábyrgð á snjósleðaferð með 39 manna hóp á Langjökul í gær, þvert á viðvaranir um válynt veður. Björgunarsveitum tókst að bjarga öllum hópnum til byggða í nótt, en þá voru margir orðnir mjög kaldir af vosbúð á jöklinum.…Lesa meira

true

Áfram eru viðvaranir vegna veðurs

Appelsínugul viðvörun er nú gefin út af Veðurstofunni til klukkan 18 í dag vegna veðurs á eftirtöldum svæðum: Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra sem og Norðurlandi eystra. Gul viðvörun er vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Vestfjörðum, Austfjörðum, Suðausturlandi og miðhálendinu. Við Faxaflóa er í dag spáð suðvestan 15-25 m/s. Búast má við talsverðri snjókomu eða…Lesa meira

true

Höfuðborgarsvæðið hefur sogað til sín störf opinber störf á kostnað landsbyggðarinnar

Hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi er kominn út nýr Hagvísir sem fjallar um ríkisstörf á Vesturlandi, staðsetningu ríkisstarfa vítt og breitt um landið og fjallað um hlutfallslegan fjölda á Vesturlandi og í einstökum sveitarfélögum innan landshlutans. Höfundur skýrslunnar er Vífill Karlsson hagfræðingur. Fram kemur að hvergi er eins lítið af ríkisstörfum og á Vesturlandi þegar…Lesa meira

true

Giftusamleg björgun stórs hóps ferðafólks

Björgunarsveitir Landsbjargar á sunnan- og suðvestanverðu landinu voru kallaðar út í gærkvöldi til leitar og björgunar á stórum hópi fólks sem var í ferð á snjósleðum við rætur Langjökuls. 39 erlendir ferðamenn auk fararstjóra frá ferðaþjónustufyrirtæki var þá strand í afar slæmu veðri, þar sem skyggni var ekkert og mikill skafrenningur. Hluti hópsins gróf sig…Lesa meira

true

Enn er straumlaust á Norðurárdalslínu

Starfsfólk Rarik hefur í alla nótt unnið að bilanaleit og viðgerðum á flutningskerfi raforku á þremur stöðum í Borgarfirði. Í gærkvöldi fór rafmagn af línunni frá Vatnshömrum og að Hafnarmelum. Viðgerð lauk kl. 21:43. Þá fór rafmagn einnig af flutningslínunni frá Eskiholti í Borgarhreppi í Varmaland í Stafholtstungum. Viðgerð þar lauk laust fyrir klukkan 6…Lesa meira

true

Flæði er samsýning kvenna með tengingu við Borgarfjörð

Laugardaginn 11. janúar næstkomandi verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar fyrsta samsýning hópsins Flæðis. Í honum eru átta konur sem hittast reglulega og mála saman. Allar hafa þær bakgrunn úr Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell. Einnig hafa þær sótt námskeið erlendis jafnt sem innanlands hjá kennurum eins og Keith Hornblower, Ann Larsson Dahlin og Bridget Woods.…Lesa meira