Fréttir

true

Víkingur Ólafsvík kominn í undanúrslit Mjólkurbikarsins

Víkingur Ó. sótti nafna sína í Reykjavík heim þegar liðin mættust í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Víkingsvelli og var það komið á hreint áður en liðin mættust að sigurlið viðureignarinnar myndi mæta Breiðabliki í undanúrslitum. Heimamenn áttu fyrstu sókn leiksins og voru töluvert meira með boltann á meðan gestirnir…Lesa meira

true

Góður tónlistarskóli er skrautfjöður í hatt hvers bæjarfélags

Tónlistarskólinn á Akranesi er Jónínu Ernu Arnardóttur, nýráðnum skólastjóra, ekki ókunnur en segja má að hennar fyrstu skref í tónlistarkennslu hafi verið stigin þar. „Ég kom hingað í starfskynningu þegar ég var 15 ára og er það því vel við hæfi að ég komi hingað núna,“ segir hún brosandi. „Það hefur þó margt breyst hér…Lesa meira

true

Elskar þegar reynir á íslenskukunnáttuna

Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn í elsta hús Borgarness á dögunum sem nú hýsir starfsemi Kaffi Brákar og gistiþjónustuna Egils Guesthouse. Meðal starfsmanna þar er hin portúgalska Mariana Mendonça. Þegar blaðamann bar að garði var nóg um að vera og Mariana á fullu að útbúa kaffi fyrir viðskiptavin með brosi á vör. Loks þegar traffíkin…Lesa meira

true

Kláruðu báðar níunda og tíunda bekk á einu ári

Það var fallegur söngur og gítarspil sem tók á móti blaðamanni Skessuhorns í Akranesvita skömmu fyrir helgi. Tónlistin kom frá Skagastelpunum og vinkonunum Katrínu Leu Daðadóttur, Heklu Maríu Arnardóttur og Sigríði Sól Þórarinsdóttur, en blaðamaður ætlaði einmitt að hitta þær Katrínu Leu og Heklu Maríu og ræða við þær um námið og framtíðina. Þær vinkonurnar…Lesa meira

true

Þrýsta á þolmörk listarinnar á Plan-B Art Festival í Borgarnesi

Samtímalistahátíðin Plan-B Art Festival fer fram í Borgarnesi dagana 9. –12. ágúst næstkomandi. Þetta verður í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Stofnendur hátíðarinnar koma öll af svæðinu, en aðstandendur hátíðarinnar eru þau Logi Bjarnason myndlistarmaður, Sigursteinn Sigurðsson arktekt, Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir MA nemi í listfræði og sýningarstjóri og Bára Dís Guðjónsdóttir verkefnastýra. „Við…Lesa meira

true

Píratar sniðganga hátíðarfund á Þingvöllum

„Þingflokkur Pírata hefur ákveðið að sniðganga hátíðarfund Alþingis sem fram fer á Þingvöllum í dag,“ segir í tilkynningu. „Ástæðan er óforsvaranleg ákvörðun um að bjóða einum helsta höfundi og talsmanni útlendingaandúðar í Evrópu að ávarpa Alþingi á Þingvöllum á aldarafmæli fullveldis Íslendinga. Engin hefð er fyrir því að erlendir gestir ávarpi þingfundi af þessu tagi…Lesa meira

true

Merkar bækur gefnar Bókasafni Akraness

Bókasafni Akraness barst nýlega gjöf, tvær bækur sem hafa fylgt fjölskyldu á Akranesi í yfir hundrað ár. Gefandi bókanna er Erla Sigurðardóttir. Hún er myndlistarmaður, fædd á Akranesi, búsett í Kópavogi en dvelur mikið í bústað sínum í Ölveri. Erla er nú hætt málun, komin á eftirlaun, eins og hún segir sjálf. Um er að…Lesa meira

true

Völlurinn erfiður á Meistaramóti Leynis

Meistaramót Golfklúbbsins Leynis á Akranesi fór fram í síðustu viku þar sem 80 klúbbfélagar höfðu skráð sig til leiks. Mótið hófs miðvikudaginn 11. júlí og stóð til laugardags 14. júlí. Keppt var í nokkrum flokkum bæði karla og kvenna á öllum aldri. Aðstæður yfir mótstíma gerðu kylfingum erfitt fyrir á köflum. Klúbbmeistarar þetta árið voru…Lesa meira

true

Dekurbónstöð opnuð í Borgarnesi

Nú geta Borgfirðingar og nærsveitungar loks farið með bílinn sinn í gott dekur því Bónstöðin 310 hefur verið opnuð að efri Sólbakka númer 27 í Borgarnesi. Það eru frændurnir Kristján J. og Árni Hrafn Hafsteinsson, ættaðir frá Brennistöðum í Flókadal, sem eiga og reka stöðina. Amma Kristjáns, Valgerður Theodórsdóttir var fædd og uppalin á Brennistöðum…Lesa meira

true

Brauða- og kökugerðin flutt og nafninu breytt í Kallabakarí

Í lok næstu viku stendur til að Brauða- og kökugerðin við Suðurgötu verði flutt í nýtt húsnæði við Innnesveg 1 á Akranesi. Það verður jafnframt fyrsti flutningurinn í sögu þessa ríflega 50 ára fjölskyldufyrirtækis sem frá stofnun 1967 hefur verið til húsa í litlu iðnaðarhúsnæði við Suðurgötu 50a. Húsnæðið er tekið á leigu af eigendum…Lesa meira