Fréttir

true

Landsmót UMFÍ var um liðna helgi

Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 18 ára og eldri fór fram á Sauðárkróki um liðna helgi samhliða meistaramóti í frjálsum íþróttum. Er þetta í fyrsta skipti sem mótið er haldið með þessu sniði þar sem ekki þarf að keppa undir merkjum aðildarfélags. Var það tilraun til í að endurvekja mótið og auka þátttöku á því. Að…Lesa meira

true

Ævintýrin gerast í laxveiðinni

„Við vorum að ljúka tveggja daga veiði í Reykjadalsá í Borgarfirði og erum algjörlega í skýjunum,“ sagði Pétur Jónsson í samtali við Skessuhorn fyrr í dag. Veitt er á tvær stangir í ánni og náði hollið sem lauk veiði í dag samanlagt 31 laxi og fimm silungum. „Það var lax bókstaflega út um alla á…Lesa meira

true

Grindhvalur á golfvelli

Dauðan grindhval rak á land í Stykkishólmi í gærkvöldi. Hefur hvalurinn verið dauður í nokkurn tíma ef marka má ólyktina. Vonast er til að hægt verði að draga hræið á haf út sem fyrst, í það minnsta áður en það spryngur, enda liggur það við enda einnar brautarinnar á golfvelli bæjarbúa, golfspilurum til takmarkaðrar gleði.Lesa meira

true

Mótmælt á Austurvelli

Fjöldi fólks er nú saman kominn á Austurvelli í Reykjavík. Tilefnið er mótmæli þar sem vakin er athygli á slæmri stöðu í kjaradeilu ríkisins og ljósmæðra. Að óbreyttu hefst yfirvinnubann ljósmæðra á miðnætti í kvöld. Því er ljóst að grafalvarleg staða er  komin upp í fæðingarþjónustu hér á landi. Almenningur á Austurvelli krefst aðgerða og…Lesa meira

true

Makríllinn kominn á Breiðafjörð

Strandveiðisjómenn sem nú eru að veiðum á Breiðafirði, um tuttugu sjómílur norðvestan við Ólafsvík, hafa orðið varir við töluvert af makríl sem lóðar í yfirborðinu. Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns hélt í strandveiðitúr frá Ólafsvík í morgun. Hann segir að töluvert af makríl komi á krókana og félagar hans á miðunum hafi séð makrílflekki uppi við…Lesa meira

true

Hátíðarfundur Alþingis á morgun á Þingvöllum

Alþingi kemur saman til fundar í dag, þriðjudaginn 17. júlí, og á morgun, miðvikudag, í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins. Í dag hefst þingfundur kl. 13.30. Á morgun verður hátíðarfundur Alþingis að Lögbergi á Þingvöllum og hefst sá fundur kl. 14. Á dagskrá þingfundarins á Þingvöllum verður eitt mál tillaga formanna stjórnmálaflokkanna um verkefni…Lesa meira

true

Dúettinn Ylja í Borgarnesi og Stykkishólmi

Söngkonurnar Gígja Skjaldardóttir og Bjartey Sveinsdóttir skipa dúettinn Ylju sem fagnar nú tíu ára afmæli. Af því tilefni ætla þær Gígja og Bjartey í stutta tónleikaferð um Vesturland og Vestfirði. Þær munu m.a. spila á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi sunnudaginn 22. júlí klukkan 16:00 og í Stykkishólmi föstudaginn 27. júlí. Dúettinn hefur vakið athygli fyrir…Lesa meira

true

Ari Gunnarsson er Vestfjarðavíkingurinn 2018

Keppt var í lokagreinum Vestfjarðavíkingsins á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal sem fram fór um liðna helgi. Fjórða árið í röð var það Ari Gunnarsson sem hampaði titlinum. Það þurfti hvorki meira né minna en sterkasta mann heims til að afhenda verðlaunin, en Hafþór Júlíus Björnsson mætti til að hvetja strákana áfram og krýna Vestfjarðavíkinginn 2018.…Lesa meira

true

Sveitarfélögin lögðu spilin á borðið

Í gær hélt Ríkisstjórn Íslands sérstakan sumarfund sinn að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Að loknum ríkisstjórnarfundi var haldinn fundur með fulltrúum allra sveitarstjórna á Vesturlandi. Þar hélt Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi kynningu þar sem hún fór yfir mörg af sameiginlegum hagsmunamálum landshlutans gagnvart fjárveitingavaldinu. Rakel segir…Lesa meira

true

Norsk harmonikkuhljómsveit mun koma fram í Reykholti

Í júlílok er von á norskri harmonikkuhljómsveit til landsins; Bodö trekkspilklubb, sem stofnaður var árið 1971. Hljómsveitin sem skipuð er tíu harmonikkuleikurum auk bassa og gítars, hefur á undanförnum árum komið fram á hinum ýmsu harmonikkumótum á Norðurlöndunum og unnið til margra verðlauna fyrir sérlega vandaðan flutning. Hljómsveitin er hér á vegum Félags harmonikkuunnenda í…Lesa meira