Fréttir

true

Dúettinn Ylja í Borgarnesi og Stykkishólmi

Söngkonurnar Gígja Skjaldardóttir og Bjartey Sveinsdóttir skipa dúettinn Ylju sem fagnar nú tíu ára afmæli. Af því tilefni ætla þær Gígja og Bjartey í stutta tónleikaferð um Vesturland og Vestfirði. Þær munu m.a. spila á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi sunnudaginn 22. júlí klukkan 16:00 og í Stykkishólmi föstudaginn 27. júlí. Dúettinn hefur vakið athygli fyrir…Lesa meira

true

Ari Gunnarsson er Vestfjarðavíkingurinn 2018

Keppt var í lokagreinum Vestfjarðavíkingsins á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal sem fram fór um liðna helgi. Fjórða árið í röð var það Ari Gunnarsson sem hampaði titlinum. Það þurfti hvorki meira né minna en sterkasta mann heims til að afhenda verðlaunin, en Hafþór Júlíus Björnsson mætti til að hvetja strákana áfram og krýna Vestfjarðavíkinginn 2018.…Lesa meira

true

Sveitarfélögin lögðu spilin á borðið

Í gær hélt Ríkisstjórn Íslands sérstakan sumarfund sinn að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Að loknum ríkisstjórnarfundi var haldinn fundur með fulltrúum allra sveitarstjórna á Vesturlandi. Þar hélt Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi kynningu þar sem hún fór yfir mörg af sameiginlegum hagsmunamálum landshlutans gagnvart fjárveitingavaldinu. Rakel segir…Lesa meira

true

Norsk harmonikkuhljómsveit mun koma fram í Reykholti

Í júlílok er von á norskri harmonikkuhljómsveit til landsins; Bodö trekkspilklubb, sem stofnaður var árið 1971. Hljómsveitin sem skipuð er tíu harmonikkuleikurum auk bassa og gítars, hefur á undanförnum árum komið fram á hinum ýmsu harmonikkumótum á Norðurlöndunum og unnið til margra verðlauna fyrir sérlega vandaðan flutning. Hljómsveitin er hér á vegum Félags harmonikkuunnenda í…Lesa meira

true

Féll af hestbaki við Löngufjörur

Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út vegna konu sem hafði fallið af hestbaki og slasast við Löngufjörur á Snæfellsnesi. Björgunarsveitir héldu til aðstoðar en auk þess þyrla Landhelgisgæslunnar sem sótti konuna og flutti á sjúkrahús.  Aðgerðir gengu vel.Lesa meira

true

Stefna að samræmdum þjónustuvef fyrir allt landið

Á fundi sem ríkisstjórn Íslands hélt í Langaholti í Staðarsveit í dag var samþykkt að tryggja öflun, samræmingu og áreiðanleika gagna sem þarf við áframhaldandi þróun þjónustukorts fyrir allt landið. Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti á fundinum fyrsta áfanga kortsins með opnun vefsjárinnar thjonustukort.is. Starfshópur skipaður starfsfólki nokkurra ráðuneyta mun fylgja samþykktinni eftir.…Lesa meira

true

Farið í úttekt á vegum á Vesturlandi

Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur er nú á ferð um Vesturland í þeim tilgangi að taka út vegi í landshlutanum, allt frá Hvalfirði að Gilfirði. Á fréttasíðunni budardalur.is ræðir Þorgeir Ástvaldsson við Ólaf, áður en ferðalag hans hófst. Þar segir Ólafur að hann muni aka um og mynda alla helstu vegi í landshlutanum, skoða ástandið á þeim…Lesa meira

true

Fræðin fléttast við Reykholtshátíð

Samkvæmt venju verður árleg Reykholtshátíð haldin síðustu helgina í júlí, sem nú er framundan. Saman fléttast þá og blómstra sterkir þræðir staðarins, tónlist í sögulegu umhverfi, fræðastarf Snorrastofu og helgihald Reykholtskirkju. Fyrirlestur Snorrastofu á hátíðinni er í höndum dr. Ólínu Þorvarðardóttur þjóðfræðings, laugardaginn 28. júlí kl. 13, Nefnist hann: “Fyrsti blaðamaðurinn – fyrstur til margs.…Lesa meira

true

Fullveldisbörnum boðið í veislu á fimmtudaginn

Afmælisnefnd vegna fullveldi Íslands hefur í samstarfi við Hrafnistu boðið öllum Íslendingum fæddum 1918 og fyrr, til hátíðarsamkomu í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Alls hafa 64 einstaklingar, búsettir um land allt, fengið boð í veisluna ásamt gesti. Þetta er í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar sem öllum Íslendingum 100 ára og eldri er…Lesa meira