Fréttir

true

Bjarni segir frá þróun heyskaparhátta á Íslandi í nýjustu bók sinni

Bókin Íslenskir heyskaparhættir, eftir Hvanneyringinn Bjarna Guðmundsson, kemur út laugardaginn 7. júlí og mun hann kynna þetta nýjasta verk sitt á Hvanneyrarhátíðinni sem fer fram sama dag á Hvanneyri. „Bókin á að gefa dálítið yfirlit yfir það hvernig heyskaparhættir Íslendinga hafa þróast frá byrjun vega til dagsins í dag,“ segir Bjarni um bókina sína. „…Lesa meira

true

Fimmtíu ára útskriftarafmæli Varmalandsmeyja

Dagana 13. – 15. júní sl. kom saman föngulegur hópur kvenna sem útskrifaðist fyrir réttum fimmtíu árum frá Húsmæðraskólanum á Varmalandi. Skólinn var á sinni tíð vinsæll og hann sóttu konur víða af landinu. Fjórir af kennurum skólans slógust í hópinn þannig að hópur kvenna taldi 30 en 50 með mökum. Kennarar voru þær Rósa…Lesa meira

true

Danshópurinn Sporið sýndi um borð í skemmtiferðaskipi

Danshópurinn Sporið af Vesturlandi hefur æft og sýnt þjóðdansa um árabil. Hópurinn hefur víða komið fram í gegnum tíðina, hér heima og erlendis. Hópurinn er því býsna vinsæll en til marks um það er hann bókaður á um þrjátíu viðburði á þessu ári. Síðastliðinn mánudag fór danshópurinn ásamt Gísla S Einarssyni harmonikkuleikara um borð í…Lesa meira

true

Lifandi tónlist flutt í Akranesvita

Nemendur úr Tónlistarskóla Akraness skipta með sér vikum í sumar þar sem þau spila lifandi tónlist í Akranesvita á Breiðinni. Nemendurnir sem spila hverju sinni fá þá að taka sér pásu frá vinnuskólastörfum og fara í staðinn eftir hádegi og spila í Vitanum frá klukkan 13 til 16 fyrir gesti og gangandi. Núna, vikuna 25.-29.…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur spilaður annað kvöld í Ólafsvík

ÍA sækir Víking Ó. heim í sannkölluðum Vesturlandsslag í Inkasso-deild karla í knattspyrnu á morgun, föstudaginn 29. júní klukkan 19:15. Leikurinn fer fram á Ólafsvíkurvelli þar sem nýr gervigrasvöllur var tekinn í gagnið fyrir nokkrum vikum. Skagamenn tróna nú á toppi deildarinnar með 20 stig. Ólafsvíkingar eru þó ekki langt á eftir en þeir eru…Lesa meira

true

Skólar mega ekki birta persónuupplýsingar á Facebook

Foreldrar leikskólabarna á Akranesi fengu fyrir stuttu síðan tilkynningu þess efnis að ekki væri lengur heimild til að halda úti Facebook-síðu fyrir skólana. Slíkt væri óheimilt samkvæmt nýjum persónuverndarlögum sem samþykkt voru á Alþingi 13. júní síðastliðinn. Valgerður Janusdóttir, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar, segir að þetta eigi við um alla leik- og grunnskóla, ekki…Lesa meira

true

Kom skemmtilega á óvart að vera boðið starf sveitarstjóra

Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar og tekur við starfinu um næstu mánaðamót. Linda er fædd og uppalin á Akranesi en flutti í Borgarfjörðinn árið 1994 þegar hún hóf nám í rekstarfræði við Samvinnuskólann á Bifröst og Karvel L. Karvelsson, eiginmaður hennar, hóf nám á Hvanneyri. Að námi loknu fluttu þau ásamt tveimur…Lesa meira

true

Fyrrum bæjarstjóri í Grundarfirði tekur aftur til starfa

Björg Ágústsdóttir hefur verið ráðin í stöðu bæjarstóra í Grundarfirði og mun hún hefja störf strax eftir verslunarmannahelgi. Björg er ekki ókunnug starfinu en hún gegndi stöðu bæjarstjóra í Grundarfirði á árunum 1995-2006. Síðustu tólf ár hefur hún starfað sem ráðgjafi hjá Alta ráðgjafarfyrirtæki í starfsstöð fyrirtækisins sem hún stýrir í Grundarfirði. Blaðamaður Skessuhorns hitti…Lesa meira

true

Aftanákeyrsla við Leirársveitarveg

Bíl var ekið aftan á annan kyrrstæðan á þjóðvegi 1 við Beitistaði í Hvalfjarðarsveit skömmu fyrir hádegi í dag. Ökumaður fyrri bílsins hugðist beygja til vinstri inn á Leirársveitarveg og var að bíða vegna umferðar á móti þegar hinum bílnum var ekið aftan á hann. Þrennt var í bílunum og var fólkinu ekið til aðhlynningar…Lesa meira

true

Snæfellskar kvenfélagskonur komu saman

Á hverju ári er þess minnst 19. júní að þann dag árið 1915 hlutu íslenskar konur fjörutíu ára og eldri kosningarétt til Alþingis. Það var svo fimm árum síðar sem konur öðluðust kosningarétt til jafns við karla. Kvenfélagskonur í Kvenfélagasambandi Snæfellsness og Hnappadalssýslu, (KSH), gera sér alltaf glaðan dag af þessu tilefni og skiptast á…Lesa meira