Fréttir

true

Séra Jón Ásgeir leysir af í tveimur prestaköllum

Eins og kunnugt er tók séra Elínborg Sturludóttir í vor við embætti prests í Dómkirkjuprestakalli í Reykjavík. Nú hefur biskup sett séra Jón Ásgeir Sigurvinsson, eiginmann séra Elínborgar í Stafholti, til að leysa séra Þorbjörn Hlyn Árnason á Borg af í níu mánaða námsleyfi sem hefst í september í haust. Jafnframt hefur Jón Ásgeir verið…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna hefst á sunnudaginn

Landsmót hestamanna fer fram í 23. sinn í byrjun næsta mánaðar. Það hefst sunnudaginn 1. júlí og stendur til 8. júlí. Mótið verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík. Er þetta í 23. sinn sem mótið er haldið, hið fyrsta var haldið á Þingvöllum árið 1950. Mótið er einn stærsti íþróttaviðburður sem fram…Lesa meira

true

Forvarnarverkefni VÍS og ÞÞÞ ýtt úr vör

Vátryggingafélag Íslands og Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi eru í sameiningu að ýta úr vör forvarnarverkefni. Snýr það að vörumóttöku og vöruafhendingu. Skessuhorn ræddi um málið við Snorra Guðmundsson, skoðunarmann hjá VÍS á Akranesi, Ágúst Mogensen sérfræðing í forvörnum hjá VÍS og Ingþór Guðjónsson framkvæmdastjóra hjá ÞÞÞ. „Til að geta ráðist í þetta verkefni höfum við…Lesa meira

true

Glennurnar nýttar til heyskapar

„Það þýðir ekkert annað en að nota hvert tækifæri sem gefst,“ sagði Þorgrímur Einar Guðbjartsson bóndi á Erpsstöðum í Dölum, þegar blaðamaður hitti hann úti á túni í gær við heyskap. Tíð hefur verið afar óhagstæð til heyskapar um vestanvert landið það sem af er sumri, en Þorgrímur hefur gjörnýtt þá tvo daga sem hangið…Lesa meira

true

Leggja til nýja veglínu um Reykhólasveit – fréttaskýring

Reykhólahreppur boðaði í gær til opins fundar þar sem kynntar voru niðurstöður norsku verkfræðistofunnar Multiconsulant og ráðgjafarstofunnar Alta á rýnivinnu vegna endurbóta á Vestfjarðavegi. Það var Reykhólahreppur sem setti þessa vinnu í gang í kjölfar þess að sveitarfélagið fékk í vor utanaðkomandi styrk til aukinna rannsókna á vænleika ólíkra leiða í vegagerð um sveitarfélagið. Mál…Lesa meira

true

Uppgröftur hafinn á fornum skála í Ólafsdal

Innarlega í Ólafsdal í Gilsfirði má nú sjá greinilega móta fyrir veglegum vegghleðslum aldagamals skála. Skálinn og aðrar tóftir fundust óvænt í fyrra við skráningu á minjum frá tíma búnaðarskólans sem var starfræktur í dalnum árin 1880-1907. Síðastliðnar vikur hefur þarna verið um sex manna hópur fornleifafræðinga frá Fornleifastofnun Íslands sem hefur unnið að því…Lesa meira

true

Perlað fyrir Kraft á Akranesi

Næstkomandi mánudag 2. júlí á milli klukkan 15:00 og 19:00 ætlar Íþróttabandalag Akraness að perla armbönd til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Perlað verður í hátíðarsalnum í Íþróttabandalagi Akranes við Jaðarsbakka. Það íþróttafélag og/eða bæjarfélag sem perlar flest armbönd á fjórum klukkustundum fær svokallaðan Perlubikar sem nú…Lesa meira

true

Undirbúningur fyrir Írska daga á Akranesi kominn vel af stað

Írskir dagar verða á Akranes 5.-8. júlí næstkomandi. Það er Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar- og safnamála, sem sér um að skipuleggja hátíðina í ár og er undirbúningur kominn langt á leið. „Það gengur vel að skipuleggja. Við erum með aðeins meira af írsku í boði þetta árið sem ég er virkilega ánægð með,“ segir…Lesa meira

true

Sumarmarkaður á Breiðabliki um helgina

Sumarmarkaður Sveitamarkaðarins Breiðabliki verður haldinn í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi, dagana 30. júní – 1. júlí næstkomandi. Markaðurinn verður opinn milli kl. 12:00 og 17:00 báða dagana. Þar verður á boðstólunum heimaunnið handverk og matvörur beint frá bændum í Snæfells- og Hnappadalssýslu. Kjötvörur, sultur, prjónavörur, handspunnið band, brjóstsykur, salat, egg og heimabakað svo fátt…Lesa meira

true

Skagfirskar konur í skemmtiferð um Snæfellsnes

Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur fengu nýverið góða gesti þegar þær tóku á móti rúmlega 30 skagfirskum konum sem voru á ferðalagi um Snæfellsnes. Fóru þær í Stykkishólm, ferð um Breiðafjörð og til Bjarnarhafnar áður en haldið var til Ólafsvíkur. Kvenfélagskonur í Ólafsvík buðu þeim upp á fiskisúpu, heimabakað brauð og annað meðlæti. Var mikið spjallað…Lesa meira