Fréttir

true

Kvenfélagskonur fengu svuntur að gjöf í tilefni 80 ára afmælis

Kvenfélagið 19. júní í Borgarfirði hélt upp á 80 ára afmælið sitt á kaffihúsinu Skemmunni á Hvanneyri í síðustu viku og voru 30 kvenfélagskonur mættar til að halda upp á daginn. Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður félagsins til rúmlega fimm ára, sagði þetta hafa verið einstaklega skemmtileg stund. „Við fögnuðum afmælinu á Hvanneyri og bauð…Lesa meira

true

Aukinn kostnaður vegna samninga og veikinda

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku voru lögð fram gögn með samanburði á rekstri fyrstu fimm mánuð ársins við fjárhagsáætlun 2018. Fram kom að almennt var rekstur sveitarfélagsins í góðu samræmi við fyrirliggjandi fjárhagsáætlun. Langtímaveikindi hafa þó haft áhrif á rekstur einstakra stofnana. Niðurstöður úr kjarasamningum félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa einnig…Lesa meira

true

Malbikað á Innnesvegi á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 27. júní, er stefnt að því að malbika aðra akrein á Innnesvegi á Akranesi og verður veginum lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum, að sögn Vegagerðarinnar. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 til kl. 20:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar sýna aðgát við vinnusvæðin…Lesa meira

true

Á fjórða tug afreksnema fékk styrk til náms við Háskóla Íslands

Þrjátíu og þrír nemendur sem hyggjast hefja nám í Háskóla Íslands í haust tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í gær. Sjóðurinn fagnar tíu ára afmæli í ár. Styrkþegarnir koma úr tólf framhaldsskólum víða af landinu og eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri í…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum

Skagamenn hafa lokið þátttöku sinni í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu eftir 1-0 tap gegn Pepsi deildar liði FH í átta liða úrslitum. Liðin mættust á Akranesvelli í gærkvöldi. FH-ingar skoruðu eina mark leiksins strax á 3. mínútu. Atli Guðnason fékk boltann úti á vinstri kanti. Hann leit upp og sendi frábæra lága fyrirgjöf fyrir markið,…Lesa meira

true

Þyrla sótti mann sem féll af hestbaki

Maður féll af hestbaki í Borgarfirði á tíunda tímanum á laugardag. Þegar í stað var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands. Þyrlan var þá nýlögð af stað í hefðbundnu gæsluflugi á Faxaflóa. Beiðni um aðstoð kom skömmu eftir flugtak. Var þyrlunni samstundis snúið við til Reykjavíkur þangað sem hún sótti lækni og hélt að því…Lesa meira

true

Norræn strandmenningarhátíð framundan á Siglufirði

„Þar verður sungið, smíðað og þæft, unnið með roð, rekavið, ull og net, myndir sýndar, prjónað og járnið hamrað. Dansað og leikið og málþing haldin. Þegar kvöldar tekur svo Þjóðlagahátíðin við þar sem tónlistin ómar og sungið verður fram yfir miðnætti,“ segir í tilkynningu frá Vitafélaginu sem stendur fyrir norrænni strandmenningarhátíð á Siglufirði dagana 4.-8.…Lesa meira

true

Heitir nú Náttúruhamfaratrygging Íslands

Viðlagatrygging Íslands, sem hefur það hlutverk að vátryggja gegn beinu tjóni af völdum náttúruhamfara, svo sem eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjó- og vatnsflóða, fær nafnið Náttúruhamfaratrygging Íslands, skammstafað NTÍ, frá 1. júlí næstkomandi þegar breytingar á lögum um starfsemi stofnunarinnar taka gildi. Alþingi samþykkti þessi lög í byrjun maí. Með breytingunum er það hlutverk stofnunarinnar að…Lesa meira

true

FVA er lýðræðislegasti framhaldsskólinn

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi er lýðræðislegasti framhaldsskóli landsins, samkvæmt niðurstöðum Skuggakosninganna sem fram fóru 12. apríl síðastliðinn. Skuggakosningarnar voru haldnar í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar í vor og eru hápunktur lýðræðisherferðiarinnar Ég kýs. Herferðin er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands ungmennafélaga. Lagt er upp með að kosningarnar séu sem líkastar almennum kosningum, með kjörkössum, kjörseðlum…Lesa meira

true

Nærri tvö þúsund brautskráðir frá HÍ

Nærri tvö þúsund kandídatar voru brautskráðir úr grunn- og framhaldsnámi við Háskóla Íslands á laugardaginn á tveimur athöfnum. Fyrst vor útskrifaðir 745 kandídatar úr framhaldsnámi og 748 tóku við prófskírteinum. Meðal þeirra sem útskráðust úr meistaranámi eða kandídatsnámi voru fyrstu nemendurnir sem ljúka námi með MS gráðu í hagnýtri sálfræði. Alls brautskráðust 1219 kandídatar úr…Lesa meira