Fréttir

true

Lifandi tónlist flutt í Akranesvita

Nemendur úr Tónlistarskóla Akraness skipta með sér vikum í sumar þar sem þau spila lifandi tónlist í Akranesvita á Breiðinni. Nemendurnir sem spila hverju sinni fá þá að taka sér pásu frá vinnuskólastörfum og fara í staðinn eftir hádegi og spila í Vitanum frá klukkan 13 til 16 fyrir gesti og gangandi. Núna, vikuna 25.-29.…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur spilaður annað kvöld í Ólafsvík

ÍA sækir Víking Ó. heim í sannkölluðum Vesturlandsslag í Inkasso-deild karla í knattspyrnu á morgun, föstudaginn 29. júní klukkan 19:15. Leikurinn fer fram á Ólafsvíkurvelli þar sem nýr gervigrasvöllur var tekinn í gagnið fyrir nokkrum vikum. Skagamenn tróna nú á toppi deildarinnar með 20 stig. Ólafsvíkingar eru þó ekki langt á eftir en þeir eru…Lesa meira

true

Skólar mega ekki birta persónuupplýsingar á Facebook

Foreldrar leikskólabarna á Akranesi fengu fyrir stuttu síðan tilkynningu þess efnis að ekki væri lengur heimild til að halda úti Facebook-síðu fyrir skólana. Slíkt væri óheimilt samkvæmt nýjum persónuverndarlögum sem samþykkt voru á Alþingi 13. júní síðastliðinn. Valgerður Janusdóttir, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar, segir að þetta eigi við um alla leik- og grunnskóla, ekki…Lesa meira

true

Kom skemmtilega á óvart að vera boðið starf sveitarstjóra

Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar og tekur við starfinu um næstu mánaðamót. Linda er fædd og uppalin á Akranesi en flutti í Borgarfjörðinn árið 1994 þegar hún hóf nám í rekstarfræði við Samvinnuskólann á Bifröst og Karvel L. Karvelsson, eiginmaður hennar, hóf nám á Hvanneyri. Að námi loknu fluttu þau ásamt tveimur…Lesa meira

true

Fyrrum bæjarstjóri í Grundarfirði tekur aftur til starfa

Björg Ágústsdóttir hefur verið ráðin í stöðu bæjarstóra í Grundarfirði og mun hún hefja störf strax eftir verslunarmannahelgi. Björg er ekki ókunnug starfinu en hún gegndi stöðu bæjarstjóra í Grundarfirði á árunum 1995-2006. Síðustu tólf ár hefur hún starfað sem ráðgjafi hjá Alta ráðgjafarfyrirtæki í starfsstöð fyrirtækisins sem hún stýrir í Grundarfirði. Blaðamaður Skessuhorns hitti…Lesa meira

true

Aftanákeyrsla við Leirársveitarveg

Bíl var ekið aftan á annan kyrrstæðan á þjóðvegi 1 við Beitistaði í Hvalfjarðarsveit skömmu fyrir hádegi í dag. Ökumaður fyrri bílsins hugðist beygja til vinstri inn á Leirársveitarveg og var að bíða vegna umferðar á móti þegar hinum bílnum var ekið aftan á hann. Þrennt var í bílunum og var fólkinu ekið til aðhlynningar…Lesa meira

true

Snæfellskar kvenfélagskonur komu saman

Á hverju ári er þess minnst 19. júní að þann dag árið 1915 hlutu íslenskar konur fjörutíu ára og eldri kosningarétt til Alþingis. Það var svo fimm árum síðar sem konur öðluðust kosningarétt til jafns við karla. Kvenfélagskonur í Kvenfélagasambandi Snæfellsness og Hnappadalssýslu, (KSH), gera sér alltaf glaðan dag af þessu tilefni og skiptast á…Lesa meira

true

Opinn fundur í kvöld um endurbætur á Vestfjarðavegi

Í kvöld klukkan 20 hefur Reykhólahreppur boðað til opins fundar í Grunnskólanum á Reykhólum þar sem skipulag og væntanleg veglagning verður til umræðu. „Endurbætur á Vestfjarðavegi þola enga bið. Til þess að ná megi sátt og koma þannig í veg fyrir tafir fékk sveitarstjórn Reykhólahrepps norsku verkfræðistofuna Multiconsult til að rýna tillögur Vegagerðarinnar að legukostum. …Lesa meira

true

Líklega eini bæjarstjórinn sem býr hjá afa og ömmu

Jakob Björgvin Jakobsson er nýráðinn bæjarstjóri í Stykkishólmi. Hann er fæddur og uppalin í Hólminum þar sem hann bjó til 16 ára aldurs. Þá fluttist hann búferlum með fjölskyldu sinni á Suðurland og hóf nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Jakob lauk lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík og starfaði um árabil sem verkefnastjóri á skatta- og lögfræðisviði…Lesa meira

true

Vignir Jóhannsson sýnir í Óðinsvéum

Vignir Jóhannsson myndlistarmaður frá Akranesi, sem búsettur hefur verið í Danmörku síðustu sjö ár, opnaði í byrjun mánaðarins sýningu á verkum sínum í Nordatlantisk hus í Óðinsvéum í Danmörku. Á sýningunni sýnir Vignir málverk sem hann hefur málað síðasta árið. Sýninguna nefnir Vignir „Tid og sted“ eða upp á engilsaxnesku „A time and a place“…Lesa meira