Fréttir

true

Sindri og Þórunn hefja laxveiðisumarið í Norðurá

Næstkomandi mánudagsmorgun hefst laxveiðisumarið hér á landi þegar byrjað verður að veiða í Norðurá í Borgarfirði. Að þessu sinni hefur verið boðið að hefja veiðarnar þeim Sindra Sigurgeirssyni formanni Bændasamtaka Íslands og Þórunni Sveinbjörnsdóttur formanni Landssambands eldri borgara. Að sögn Einars Sigfússonar umsjónarmanns í Norðurá voru þau tvö valin vegna þess hversu vel þau hafa…Lesa meira

true

Kvennahlaupið er heilbrigð skemmtun fyrir alla

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í tuttugasta og níunda sinn á morgun, laugardaginn 2. júní. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Er þetta einn stærsti almenningsíþróttaviðburðurinn á Íslandi á hverju ári. Fólk á öllum aldri kemur sama á hlaupadegi og á saman skemmtilega stund þar sem sumir hlaupa…Lesa meira

true

Listamiðstöðin í Munaðarnesi opnuð á morgun

Á morgun verður listamiðstöðin í Munaðarnesi í Borgarfirði opnuð á nýjan leik þegar sýning Kristínar Hálfdánardóttur myndlistarkonu verður opnuð. „Til margra ára var Munaðarnes mekka myndlistar og viljum við endurreisa þá ímynd með opnun sýningar Kristínar,“ segir í tilkynningu listamiðstöðvarinnar. Opnun sýningarinnar og listamiðstöðvarinanr verður kl. 16:00 á morgun, laugardaginn 2. júní.Lesa meira

true

Átta prósent kjósenda beittu útstrikunum

Samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna geta kjósendur breytt nafnaröð á þeim lista sem þeir kjósa eða strikað yfir nafn frambjóðanda ef kjósandinn vill hafna þeim frambjóðanda. Við sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 26. maí síðastliðinn nýttu 153 kjóendur, eða 8% þeirra sem kusu, þennan rétt sinn og strikuðu yfir nöfn ákveðinna frambjóðenda eða breyttu röð þeirra.…Lesa meira

true

Samþykktu menningarstefnu Akraneskaupstaðar

Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar fyrir kosningar var formlega samþykkt menningarstefna bæjarfélagsins. Menningarstefnan hefur verið í vinnslu hjá menningar- og safnanefnd í hálft annað ár. Ýmsir aðilar hafa komið að mótun hennar og var m.a. haldinn opinn vinnufundur með íbúum 17. apríl í vor þar sem línur voru lagðar. Tilgangur menningarstefnu er að setja fram…Lesa meira

true

Staða tónlistarskólastjóra auglýst

Guðmundur Óli Gunnarsson skólastjóri Tónlistarskóla Akraness hefur sagt upp og látið af störfum. Hann hefur gegnt starfinu undanfarin tvö ár. Að sögn Valgerðar Janusdóttur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar verður staðan auglýst laus til umsóknar á næstu dögum. „Við leggjum miklum áherslu á að byggja áfram upp með góðan og framsækinn tónlistarskóla hér á Akranesi,…Lesa meira

true

Skúli hættir í Hvalfjarðarsveit

Skúli Þórðarson hefur tilkynnt forystumönnum Á-lista, sem hlaut meirihluta í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar við kosningarnar 26. maí, að hann sækist ekki eftir endurráðningu í stöðu sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar. Skúli hefur starfað sem bæjar- og sveitarstjóri frá árinu 1994. Hann var á Blönduósi 1994-2002, í Húnaþingi vestra 2002-2014 og í Hvalfjarðarsveit frá árinu 2014. Skúli mun láta af…Lesa meira

true

Tekið á því á á Akratorgi

Segja má að upphaf hátíðarhalda á Akranesi í tilefni sjómannadags helgarinnar, hafi verið í morgun. Þá mættu krakkar af leikskólanum Teigaseli á Akratorg. Þar færði Verkalýðsfélag Akraness krökkunum harðfisk, farið var í pokahlaup og í reiptog. Á meðfylgjandi mynd er tekið á því í reiptoginu. Krakkarnir fóru í göngutúr að Akratorgi þar sem var sungið…Lesa meira

true

Ærslabelgur kominn við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi

Byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti í síðasta mánuði að fjárfesta í svokölluðum ærslabelg. Slíkur belgur er niðurgrafinn og uppblásinn og ætlaður fyrir börn og reyndar fólk á öllum aldri til að hoppa og leika sér á. Á vef Borgarbyggðar segir að búið hafi verið að finna belgnum stað við Arnarklett í Borgarnesi, en við nánari skoðun hafi…Lesa meira

true

Káramenn höfðu í fullu tré við úrvalsdeildarliðið

Kári féll úr Mjólkurbikar karla eftir 3-4 tap gegn Víking R. í ótrúlegum leik í Akraneshöllinni Akranesi í gærkvöldi. Kári leikur sem kunnugt er í 2. deild en Víkingur tveimur deildum ofar, í Pepsi deildinni. Leikurinn byrjaði mjög fjörlega. Strax á 3. mínútu fengu Káramenn þrjú góð færi í sömu sókninni en Serigne Mor Mbaye,…Lesa meira