Fréttir

true

Sjómenn í Grundarfirði heimsóttu leikskólabörnin

Í morgun mættu sjómenn í Grundarfirði galvaskir á leikskólann Sólvelli. Sýndu þeir börnunum ýmsa fiska úr sjónum og gáfu þeim einnig harðfisk. Þá var slegið upp reiptogkeppni. Börnin tóku afar vel í heimsóknina enda nýnæmi fyrir mörg þeirra að sjá ólíka fiska, fá að snerta og spjalla við gestina. Heimsóknin á Sólvelli er fastur liður…Lesa meira

true

Nýr formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana

Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar hefur verið kosinn formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana á aðalfundi félagsins. Félagið hefur sem markmið að vinna að sameiginlegum hagsmunum félagsmanna, þar með talið kjara- og starfsþróunarmálum, og er tengiliður og samstarfsaðili við stjórnvöld varðandi gagnkvæm málefni. Aðrir stjórnarmenn eru: Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla, Halldór Ó. Sigurðsson forstjóri Ríkiskaupa, Magnús Guðmundsson forstjóri…Lesa meira

true

Sveitaskólastjórar halda hópinn

Fyrrum skólastjórar sem stýrt hafa sveitaskólum á Vesturlandi hafa reglulega komið saman einu sinni til tvisvar á ári ásamt mökum þeirra. Slíkur hittingur var í lok síðustu viku á Akranesi. Komið var saman og snæddur hádegisverður á Gamla kaupfélaginu og farin skoðunarferð um Akranes og nágrenni undir leiðsögn Braga Þórðarsonar. Samstarf dreifbýlisskólanna á Vesturlandi var…Lesa meira

true

Akranesleikarnir í sundi verða um helgina

Hinir árlegu Akranesleikar í sundi fara fram dagana 1. – 3. júní. Synt verður í Jaðarsbakklaug á Akranesi. Mótið er stigakeppni milli félaga þar sem fyrstu fimm keppendur í hverri grein fá stig. Í boðsundum er stigagjöfin tvöföld. Stigahæsta liðið stendur síðan uppi sem sigurvegari mótsins. Alls hafa 302 keppendur frá 13 félögum boðað komu…Lesa meira

true

Hlaut hæstu einkunn frá upphafi skólans

Ísól Lilja Róbertsdóttir lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga á föstudaginn með hæstu einkunn á lokaprófi frá upphafi skólans, eða 9,8. Ísól Lilja segir í samtali við blaðamann að lykillinn að góðum námsárangri sé fyrst og fremst að vanda sig í verkefnavinnu. „Það skiptir máli að gera vel í öllum verkefnum sem maður skilar af sér…Lesa meira

true

Kútterinn Wesward Ho kominn að Akranesi

Færeyski kútterinn Westward Ho er nú staddur sunnaustan við Breiðina á Akranesi, en skipinu var siglt frá Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Skipið er nú kyrrstætt suðaustan við vitana á Breiðinni, en því verður siglt til hafnar nú um kaffileitið í dag. Kútterinn mun verða við bryggju á Skaganum í kvöld en siglt til Reykjavíkur á Hátíð…Lesa meira

true

Seljendur útgerðarfyrirtækja hæstu skattgreiðendur

Þeir sem tróna á toppi skattgreiðenda hér á landi í ár eru seljendur hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum. Samkvæmt tilkynningu frá ríkisskattstjóra greiðir hæstu skattana Sigríður Vilhjálmsdóttir, 425 milljónir króna. Sigríður ásamt systkinunum Kristjáni og Birnu Loftsbörnum voru stærstu hluthafar í Venusi hf. stærsta hluthafi í Hval hf. Í öðru til fjórða sæti yfir skatthæstu einstaklingana eru…Lesa meira

true

Alþjóðlegur tóbaksvarnardagur er í dag

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) stendur að vanda fyrir alþjóðlegum tóbaksvarnardegi í dag, 31. maí. Að þessu sinni beinir stofnunin sjónum að skaðlegum áhrifum tóbaks á heilsu fólks um allan heim. Sérstaklega er bent á tóbaksreykingar sem áhættuþátt hjarta- og æðasjúkdóma. Áætlað er að á heimsvísu dragi tóbaksreykingar meira en sjö milljónir manna til dauða á hverju ári,…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskipið til Grundarfjarðar

Í morgun kom fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins til Grundarfjarðar. Skipið heitir Seabourn Quest og sigldi það inn fjörðinn í blíðskaparveðri; logni og sólskini. Skipið er 38.348 tonn að stærð og rétt tæplega 200 metra langt. Um borð eru 400 ferðamenn og fjöldi auk þess í áhöfn. Skip þetta býður eingöngu upp á dýrar lúxusferðir. Í sumar…Lesa meira

true

Lokadagur sjóstangveiðimóts er í dag

Í dag er lokadagur á hinu fjölmenna evrópska EFSA sjóstangveiðimóti sem haldið er í Ólafsvík. Vel á annað hundrað gestir hafa frá því á sunnudaginn verið í bænum. Róið var á mánudaginn, en ekki á þriðjudag vegna veðurs. Í gær var haldið út aftur þrátt fyrir að talsverð ylgja væri á sjó eftir veðrið daginn…Lesa meira