Fréttir

true

Atkvæði verða endurtalin í Borgarbyggð

Kjörstjórn í Borgarbyggð hefur samþykkt að fram fari endurtalning atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum. Á morgun, þriðjudag, mun kjörstjórn koma saman ásamt fulltrúum framboða í sveitarfélaginu. Þetta er gert að beiðni Sjálfstæðisflokks. Einungis munaði 9 atkvæðum á að Sigurður Guðmundsson þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokks næði inn, á kostnað Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur fjórða manns á lista Framsóknarflokks.…Lesa meira

true

Formlegar viðræður um meirihluta hafnar á Akranesi

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknarmanna með frjálsum eru byrjaðir formlegar viðræður um myndun meirihluta flokkanna í bæjarstjórn á Akranesi. Hópurinn hittist í gær og svo aftur síðdegis í dag og ákvað að hefja formlegar viðræður. Að sögn oddvitanna; Elsu Láru Arnardóttur hjá Framsókn og Valgarðs Lyngdal Jónssonar hjá Samfylkingunni, er ágætur samhljómur milli flokkanna um helstu…Lesa meira

true

Unnur Ýr með þrennu í sigri ÍA

Skagakonur unnu góðan útisigur á Fjölni, 2-3, þegar liðin mættust í þriðju umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Unnur Ýr Haraldsdóttir, fyrirliði ÍA, gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk liðsins í leiknum. Fyrri hálfleikur einkenndist af baráttu en ÍA liðið var heilt yfir sterkara. Skagakonur sköpuðu sér nokkur ágætis marktækifæri…Lesa meira

true

Víkingur Ó. sótti sigur til Hafnarfjarðar

Víkingur Ó. vann góðan útisigur á Haukum þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu síðastliðinn föstudag. Leiknum lyktaði með einu marki gegn engu. Leikmenn Víkings voru mun ákveðnari í fyrri hálfleik en náðu ekki að skapa sér nein afgerandi marktækifæri. Mikil harka var í leiknum á köflum og menn hikuðu ekki við að…Lesa meira

true

Jafnt á Akranesvelli

ÍA og Njarðvík skildu jöfn, 2-2, í fjórðu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á föstudag. Gestirnir fengu óskabyrjun og komust yfir strax á 4. mínútu leiksins. Njarðvíkingar komust inn í slaka sendingu Skagamanna á miðsvæðinu. Þeir léku sín á milli þar til Stefán Birgir Jóhannesson fékk boltann á vinstri kanti.…Lesa meira

true

Fyrsta hlaðan á Snæfellsnesi opnuð

Það var Sandarinn Þröstur Kristófersson sem í síðustu viku fékk fyrstu hleðsluna á bíl sinn úr nýrri hraðhleðslu Orku náttúrunnar í Ólafsvík. Hlaðan stendur við þjónustustöð Orkunnar og er fyrsta hlaða ON á Snæfellsnesi og fyrsta hraðhleðslan á Nesinu. Nú vinnur Orka náttúrunnar einnig í að koma upp hraðhleðslustöð nálægt Vegamótum. Þröstur býr á Hellissandi…Lesa meira

true

Hvasst á Vesturlandi á morgun

Sólin lætur sjá sig um allt land í dag og víða á morgun en þá gæti 20 gráðu múrinn verið rofinn á landinu. Hitinn verður þó ekki svo mikill á Vesturlandi og þó sólin láti sjá sig er spáð töluverðum vindi á Vesturlandi á morgun. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að vindhviður á Vesturlandi gætu orðið…Lesa meira

true

Íslandsbanki styður áfram við KFÍA

Nýverið skrifuðu fulltrúar Knattspyrnufélags ÍA og Íslandsbanka undir endurnýjun á samstarfssamningi. Íslandsbanki hefur verið dyggur stuðningsaðili KFÍA um margra ára skeið og með þessum samstarfssamningi mun bankinn halda áfram að styðja vel við bakið á knattspyrnufólki á Akranesi. Samningurinn er til tveggja ára. „Íslandsbanki hefur verið mikilvægur stuðningsaðili við fótboltann á Akranesi í mörg ár…Lesa meira

true

UDN fagnar aldarafmæli

Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga, UDN, átti aldarafmæli síðastliðinn fimmtudag, 24. maí. Stefnt er að því að afmælinu verði fagnað í sumar, að því er kemur fram á vef sambandsins. Sambandið á rætur sínar að rekja til Hjeraðssambands Dalamanna sem stofnað var 24. maí 1918 af félögunum: Umf. Ólafi Pá, Unni Djúpúðgu, Umf. Dögun og…Lesa meira

true

Nýtt húsnæði FSS tekið í notkun í Ólafsvík

Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS) tók síðastliðinn fimmtudag formlega í notkun nýtt húsnæði fyrir Smiðjuna við Ólafsbraut 19 í Ólafsvík. Þar var síðast rekin blómabúð. Þar verður rekin dagþjónustu- og hæfingarstöð FSS fyrir fatlaða og aðra með skerta starfsgetu. Byggðasamlagið sér um rekstur FSS og festi það kaup á þessu húsnæði undir starfsemina. Unnið hefur…Lesa meira