Fréttir

true

Keppt í Mjólkurbikarnum

Leikið verður í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í dag og á morgun. Þar munu þrjú Vesturlandslið etja kappi; ÍA, Víkingur Ó. og Kári. ÍA og Víkingur Ó. leika bæði í kvöld, miðvikudaginn 30. maí. ÍA mætir úrvalsdeildarliði Grindavíkur á útivelli og Víkingur Ó. heimsækir Fram. Báðir þessara leikja hefjast kl. 19:15. Á…Lesa meira

true

Í samstarf við HÍ um Ugluna

Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hafa undirritað viljayfirlýsingu um að tölvukerfið Ugla, sem er í eigu Háskóla Íslands, verði innleitt hjá Háskólanum á Bifröst á árinu 2019. Uglan hefur hingað til eingöngu verið notuð sem megintölvukerfi opinberu háskólanna þannig að hér er um nokkur tímamót að ræða…Lesa meira

true

Endurtalning breytti engu um niðurstöðuna í Borgarbyggð

Búið er að telja að nýju atkvæði sem greidd voru í Borgarbyggð til sveitarstjórnarkosninganna á laugardaginn. „Niðurstaða endurtalningar á atkvæðum í Borgarbyggð nú í dag breytir engu um úrslit kostningana,“ segir í tilkynningu frá kjörstjórn sem rétt í þessu var að ljúka endurtalningu.Lesa meira

true

Vellíðan og Vinátta í öndvegi hjá Uglukletti

Leikskólinn Ugluklettur hefur fengi úthlutað styrk upp á 1,2 milljón króna úr Sprotasjóði fyrir verkefnið Vellíðan og Vinátta í skólasamfélagi. Árið 2013 varð skólinn tilraunaleikskóli fyrir verkefnið Vinátta – Fri for Mobberi á vegum Barnaheilla og hefur gefist vel að nýta efni verkefnisins í sérstökum stundum en nú er áætlað að taka verkefnið skrefinu lengra…Lesa meira

true

Brælustopp í dag á stóru evrópsku sjóstangveiðimóti

Evrópumót í sjóstangveiði var sett við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík síðastliðinn sunnudag. Setningin hófst með skrúðgöngu og trommuslætti frá North Star Hotel Ólafsvík að félagsheimilinu. Fánum bæði félaga og þeirra landa sem þátt taka í mótinu var haldið á lofti. Í Klifi setti Horst Schneider forseti EFSA mótið. Kristinn Jónasson bæjarstóri flutti…Lesa meira

true

Forystu-Flekkur og fleiri sögur

Út er komin hjá bókaforlaginu Sæmundi endurútgefin bók; Forystu-Flekkur og fleiri sögur. Bókin kom fyrst út árið 1950 og er fallegt safn sagna af samskiptum manna og dýra. „Hér er á ferðinni einstæður gluggi inn í gamla bændasamfélagið og hina rómantísku náttúrusýn þar sem saman fóru nytjar af búpeningi og virðing fyrir hverju dýri sem…Lesa meira

true

Kristján Örn og Arnar Smári áfram hjá Skallagrími

Kristján Örn Ómarsson og Arnar Smári Bjarnason hafa skrifað skrifað undir nýja samninga við Skallagrím og munu leika með liðinu á komandi leiktímabili í Domino‘s deild karla. Báðir eru þeir ungir og efnilegir leikmenn. Kristján Örn er 21 árs gamall og leikur stöðu framherja. Hann skoraði 5,7 stig og tók þrjú fráköst í leik með…Lesa meira

true

Sýningin ,,Konur í landbúnaði í 100 ár“ opnuð á Hvanneyrarhátíð í sumar

Vantar myndir úr búskaparsögu borgfirskra kvenna í hundrað ár Í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands verður sýning um þátt kvenna í landbúnaði síðustu 100 árin sett upp í Halldórsfjósi á Hvanneyri. Sýningin er samstarfsverkefni Landbúnaðarsafns Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Kvenfélagsins 19. júní sem einnig á afmæli í ár en þetta fjölmennasta kvenfélag Borgarfjarðar fyllir…Lesa meira

true

Hátíð í tali og tónum í Borgarfirði á laugardaginn

Laugardaginn 2. júní næstkomandi verður þess minnst í Reykholti að 250 ár eru liðin frá drukknun Eggerts Ólafssonar og fylgdarliðs hans – 30. maí 1768. Staðurinn í Reykholti er hins vegar tengdur minningu Eggerts með gleðilegri hætti, því í fyrra voru 250 ár liðin frá hinu fræga brúðkaupi þeirra Eggerts og Ingibjargar Guðmundsdóttur þar á…Lesa meira

true

Mæla atvinnuleysi 4,5%

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 205.200 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í apríl 2018, sem jafngildir 81,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 196.000 starfandi og 9.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,3% en hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,5%. Samanburður mælinga fyrir apríl…Lesa meira