
ÍA og Njarðvík skildu jöfn, 2-2, í fjórðu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á föstudag. Gestirnir fengu óskabyrjun og komust yfir strax á 4. mínútu leiksins. Njarðvíkingar komust inn í slaka sendingu Skagamanna á miðsvæðinu. Þeir léku sín á milli þar til Stefán Birgir Jóhannesson fékk boltann á vinstri kanti.…Lesa meira








