Fréttir

true

Öruggur meirihluti Sjálfstæðisflokks í Snæfellsbæ

Kjörsókn í Snæfellsbæ var 81,2%. Atkvæði greiddu 920, en á kjörskrá voru 1133. Þar voru tveir listar í kjöri; D listi Sjálfstæðisflokks og J listi Bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar. Niðurstaðan varð sú að D listi hlaut 59,4% og fjóra menn í bæjarstjórn, en J listinn hlaut 40,6% og fær þrjá menn. Báðir listar bæta við sig fylgi…Lesa meira

true

H listi með fjóra menn og meirihluta í Stykkishólmi

Á kjörskrá í Stykkishólmi voru 833. 737 greiddu atkvæði sem er 88,48% kjörsókn. Niðurstaðan er sigur H listi framfarasinnaðra Hólmara sem hlaut 46,01% atkvæða, fjóra menn og því hreinan meirihluta í bæjarstjórn. O listi Okkar Stykkishólmur hlaut 31,19% og tvo menn í bæjarstjórn. L listi félagshyggjufólks hlaut 22,8% atkvæða og einn mann. Annan mann á…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur hlýtur meirihluta í Grundarfirði

Á kjörskrá í Grundarfjarðarbæ voru 626. Atkvæði greiddu 481. Tveir listar voru í boði. Niðurstaðan varð sú að D listi Sjálfstæðisflokks endurheimtir meirihluta í bæjarstjórn, fær fjóra bæjarfulltrúa og 56,16% fylgi. L listi Samstöðu bæjarmálafélags fékk 43,84% fylgi og þrjá bæjarfulltrúa. Fylgissveiflan er 8,33%.Lesa meira

true

Á listi Áfram sigurvegari kosninganna í Hvalfjarðarsveit

Talningu er lokið í Hvalfjarðarsveit. Greidd atkvæði voru 383 og var það 79,46% kjörsókn. Niðurstaðan var sú að Á listi Áfram Hvalfjarðarsveit hlaut hreinan meirihluta, fjóra menn í sveitarstjórn og 54,42% atkvæða. Í listi Íbúalistans fær tvo menn í sveitarstjórn og 23,48% fylgi. H Listi Hvalfjarðarlistans hlaut 22,1% og einn mann.  Lesa meira

true

Ný sveitarstjórn í Reykhólahreppi

Á kjörskrá í Reykhólahreppi voru 192 og nýttu 132 atkvæðisrétt sinn. Í sveitarstjórn voru kosin: Ingimar Ingimarsson Árný Huld Haraldsdóttir Jóhanna Ösp Einarsdóttir Karl Kristjánsson Embla Dögg B. Jóhannsdóttir.Lesa meira

true

Talningu lokið í Helgafellssveit

Búið er að telja atkvæði í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, en þar var óhlutbundin kosning. Á kjörskrá voru 45 og nýttu 37 atkvæðisrétt sinn. Í hreppsnefnd voru kosin: Guðrún Karólína Reynisdóttir Guðlaug Sigurðardóttir Karin Rut Bæringsdóttir Sif Matthíasdóttir Guðmundur Helgi Hjartarson.Lesa meira

true

Lokatölur frá Akranesi

Talningu er nú lokið á Akranesi. Kjörsókn var 69,1%. Auð og ógild atkvæði voru 3,6%. Atkvæði greiddu alls 3.583. Niðurstaðan er sú að Sjálfstæðisflokkur fær fjóra menn í bæjarstjórn og 41,36% fylgi. Samfylking hlýtur þrjá menn og 31,17% fylgi. Framsókn með frjálsum hlýtur 21,79% fylgi og tvo menn og Miðflokkurinn 5,67% sem nægir ekki til…Lesa meira

true

Talningu lokið í Eyja- og Miklaholtshreppi

Búið er að telja atkvæði í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Þar var nú viðhaft persónukjör. Í tilkynningu frá kjörstjórn kemur fram að aðalmenn í hreppsnefnd næsta kjörtímabil verða:   Eggert Kjartansson Halldór Jónsson Katrín Gísladóttir Gísli Guðmundsson Atli Sveinn Svansson. Varamenn: Herdís Þórðardóttir Sigurbjörg Ottesen Veronika Sigurvinsdóttir Valgarð S. Halldórsson Guðbjörg GunnarsdóttirLesa meira

true

Stefnir í sigur Á lista í Hvalfjarðarsveit

Búið er að telja 335 atkvæði í Hvalfjarðarsveit, en 482 voru á kjörskrá. Þar voru þrír listar í kjöri að þessu sinni, en við síðustu kosningar var viðhaft persónukjör. Niðurstaðan er nokkuð afgerandi og fær Á listi Áfram hreinan meirihluta í sveitarstjórn, fjóra menn og 54,93% fylgi. H listi Hvalfjarðarlistans hlýtur 23,28% og tvo menn…Lesa meira

true

Meirihlutinn fallinn á Akranesi

Samkvæmt fyrstu tölum úr kosningunum á Akranesi er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar fallinn. Björt framtíð býður að vísu ekki fram að þessu sinni né heldur VG. Þeir flokkar sem bæta við sig fylgi eru Framsókn og frjálsir (7,9%) og Samfylking (6,72%). Fylgi Sjálfstæðisflokks stendur nánast í stað frá síðustu kosningum, en flokkurinn tapar einum…Lesa meira