Fréttir

true

Úrslit liggja fyrir í Skorradalshreppi

Búið er að telja atkvæði í Skorradalshreppi í Borgarfirði, en þar var óhlutbundin kosning. Aðalmenn í Skorradalshreppi (í stafrófsröð): Árni Hjörleifsson Ástríður Guðmundsdóttir Jón E. Einarsson Pétur Davíðsson Sigrún Þormar   Varamenn (í réttri röð) Jón Arnar Guðmundsson Valdimar Reynisson Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir Jón Friðrik Snorrason Gunnar RögnvaldssonLesa meira

true

Framsókn og VG bæta við sig fylgi í Borgarbyggð

Fyrstu tölur hafa nú verið birtar úr sveitarstjórnarkosningunum í Borgarbyggð. Búið er að telja 1090 atkvæði, en á kjörskrá eru 2637. Niðurstaðan er sú að Framsóknarflokkur bætir við sig fylgi, fær þrjá í sveitarstjórn en einungis munar 4 atkvæðum að bæta við sig fjórða manni í sveitarstjórn. Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi frá síðustu kosningum en heldur…Lesa meira

true

Kosningadagur

Í dag, laugardaginn 26. maí, er kosningadagur til sveitarstjórna á Íslandi. Í liðnum kosningum, allt frá árinu 2002, hefur þátttaka farið dalandi í sveitarstjórnarkosningum. Því er sérstök ástæða til að hvetja landsmenn til að snúa þeirri þróun við, skunda á kjörstað, og nýta lögvarinn rétt sinn áhrifa. Allar nánari upplýsingar má finna á vefnum kosningar.is…Lesa meira

true

Mikilli úrkomu spáð í dag

Spáð er mikilli rigningu á Faxaflóavæðinu þar til í kvöld og við Breiðafjörð fram til hádegis. Uppsöfnuð úrkoma gæti farið yfir 50 mm/ 24 klst. Búast má við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum á svæðinu. Sjá nánar athugasemd vatnavársérfræðinga á vedur.isLesa meira

true

Þjónustumiðstöð eldri borgara mun rísa við Dalbraut 4

Í dag var boðað til samkomu í sal Félags eldri borgara á Akranesi. Tilefnið var að skrifað var undir samning milli Akraneskaupstaðar og Leigufélagsins Bestla ehf. um byggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar sem verður á neðstu hæð fjölbýlishúss sem reist verður á Dalbrautarreitnum á lóð númer 4. Bestla var eina fyrirtækið sem bauð í byggingarrétt á lóðinni…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðdegis í dag brautskráðust 29 nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Athöfnin hófst á því Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari brautskráði  nemendur og flutti ávarp. Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskólameistari afhenti síðan nemendum viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Sveitarfélögin sem standa að skólanum gáfu viðurkenningarnar ásamt Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Íslenska stærðfræðifélaginu, hugvísindadeild HÍ, danska sendiráðinu, Arion banka og…Lesa meira

true

Brautskráð frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Í dag var brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. 27 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn. Nemendur útskrifuðust af félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut, íþróttafræðibraut bæði af félagsfræða- og náttúrufræðasviði og af opinni braut. Hæstur á stúdentsprófi að þessu sinni var Steinþór Logi Arnarsson frá Stór-Holti í Saurbæ í Dölum. Steinþór fékk fjölmargar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur, þar…Lesa meira

true

Flamenco tónleikar Reynis Haukssonar í næstu viku

Reynir Hauksson Flamenco gítarleikari frá Hvanneyri í Borgarfirði heldur af stað í tónleikaferð um Vestur- og Suðvesturland í næstu viku. Fyrstu tónleikar hans verða í Reykholtskirkju og svo verða þrennir aðrir tónleikar í landshlutanum; í Grundarfirði, Akranesi og á Hvanneyri. Reynir býr í Granada á Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari en það heyrir…Lesa meira

true

Bæjarmálin rædd yfir íslenskri kjötsúpu

Lokasprettur stjórnmálafólks fyrir sveitarstjórnarkosningarnar er nú hafinn, en kjörstaðir verða opnaðir í fyrramálið. Frambjóðendur flokkanna eru nú á ferð og flugi á vinnustöðum, skólum og hvarvetna sem kjósendur leynast. Á kosningaskrifstofu Miðflokksins á Akranesi var í hádeginu í dag boðið upp á íslenska kjötsúpu, en miðstöðin er til húsa á veitingastaðnum Lesbókinni við Akratorg þar…Lesa meira

true

Kia Stinger og Stonic frumsýndir á Vesturlandi

Kia heldur áfram ferð sinni um landið þar sem frumsýndir eru Kia Stinger og Kia Stonic. Á morgun laugardag verða bílarnir sýndir á Vesturlandi hjá Bílás, Bílasölu Akraness. Ásamt Stinger og Stonic verður hin breiða lína Kia til sýnis og reynsluaksturs. Kia Stinger er kraftmikill Gran Turismo sem fengið hefur mikla athygli fyrir sportlegt og…Lesa meira