Fréttir

true

Þerna bar fimm lömbum og alls sautján á fimm árum

Nú er sauðburður í fullum gangi og miklar annir hjá sauðfjárbændum víðsvegar um landið. Á bænum Bakkakoti Stafholtstungum bar ærin Þerna fimm lömbum fyrr í þessari viku og öll þeirra eru við góða heilsu. Þerna er afar frjósöm kind en í þau fimm skipti sem Þerna hefur borið hafa komið samtals 17 lömb. „Við finnum…Lesa meira

true

Hlutu viðurkenningu fyrir störf í þágu barna

Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar var í gær. Af því tilefni var hin árlega fjölskylduviðurkenning SOS Barnaþorpanna afhent. Með henni vilja SOS Barnaþorpin vekja athygli á einstaklingum, hópum, fyrirtækjum eða samtökum sem starfa í þágu fjölskyldna á Íslandi og hafa velferð barna í fyrirrúmi. Í ár heiðra samtökin kennara í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum fyrir störf þeirra…Lesa meira

true

Vestramenn hrepptu silfrið í 10. flokki drengja

Vestramenn, sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra, tapaði naumlega fyrir KR í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í 10. flokki drengja. Leikið var um síðustu helgi. Úrslitaleikurinn var hnífjafn og spennandi enda áttust þar við tvö frábær körfuknattleikslið. Úrslit leiksins réðust ekki fyrr en eftir framlengingu og þar höfðu KR-ingar betur með einu stigi, 74-75. Vestramenn urðu því…Lesa meira

true

Ærslabelgur væntanlegur í Borgarnes

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti viðauka við fjárhagsáætlun 2018 á fundi sínum á mánudaginn. Meðal þess sem gert er ráð fyrir í viðaukanum eru kaup á svokölluðum ærslabelg fyrir 2,5 milljónir króna. Verður belgnum komið fyrir í Borgarnesi. Ærslabelgir eru uppblásnir, niðurgrafnir belgir, leiktæki sem börn á öllum aldri geta hoppað á eins og trampólíni. Hefur slíkum…Lesa meira

true

Helstu úrslit frá íþróttamóti Borgfirðings

Íþróttamót hestamannafélagsins Borgfirðings fór fram í Borgarnesi í góðviðrinu um liðna helgi. Var mótið haldið með stuðningi frá Arion banka og Líflandi. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: Tölt T1 Opinn flokkur: Haukur Bjarnason/ Ísar frá Skáney, 7,28 Erlendur Ari Óskarsson/ Byr frá Grafarkoti, 6,72 Randi Holaker/ Þytur frá Skáney, 6,61   Tölt T3 Opinn flokkur: Anna…Lesa meira

true

Þrír sameiginlegir framboðsfundir í Borgarbyggð

Sveitarfélagið Borgarbyggð stendur í þessari viku fyrir þremur sameiginlegum framboðsfundum allra framboða sem bjóða fram til sveitarstjórnar 26. maí. Í gærkvöldi var fundur í Logalandi, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Í kvöld  klukkan 20:30 verður fundur í Lindartungu en fimmtudaginn 17. maí verður fundur klukkan 20:30 í Hjálmakletti í Borgarnesi. Fyrirkomulag fundanna er að…Lesa meira

true

Bílastæðagjald við Hraunfossa gefur afslátt í Bauluna

Þeir sem keypt hafa aðgang að bílastæðum við Hraunfossa í Borgarfirði, eftir að meint ólögleg innheimta bílastæðagjalds hófst þar í morgun, fá afhentan miða sem gefur afslátt ef verslað er í Baulunni í Stafholtstungum. Á miðanum er sýnd leiðarlýsing frá Hraunfossum, um malarveg Hvítársíðu og að Baulunni. Handhafar miðans geta fengið frían kaffibolla í Baulunni…Lesa meira

true

Hófu í morgun að nýju meinta ólöglega gjaldtöku á bílastæði

Leigutakar að jarðarpartinum Hraunsási II í Hálsasveit hófu í morgun að nýju að innheimta gjald fyrir að leggja bílum á bílastæði við Hraunfossa í Borgarfirði. Þessi meinta ólöglega gjaldtaka vakti mikla athygli síðastliðið sumar og aftur um haustið enda töldu allar hlutaðeigandi stofnanir; Umhverfisstofnun, Vegagerðin og sveitarfélagið Borgarbyggð, að gjaldtakan stæðist ekki lög. Eftir fjögurra…Lesa meira

true

Akranesferjan siglir ekki í sumar

Sæferðir munu ekki sigla milli Akraness og Reykjavíkur á komandi sumri. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að ekki hafi tekist að fá hentuga ferju sem uppfyllir kröfur yfirvalda á Íslandi um slíkar siglingar. Sem kunnugt er stóð fyrirtækið fyrir áætlanasiglingum yfir Faxaflóann síðasta sumar. Um var að ræða tilraunaverkefni í samvinnu við Akraneskaupstað og Reykjavíkurborg. Var…Lesa meira

true

Sveitarstjórn samþykkti auglýsingu vegna skotæfingasvæðis

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að setja í auglýsingaferli tillögur að breytingu á deiliskipulagi og aðalskipulagi Borgarbyggðar sem gerir ráð fyrir að heimila skotæfingasvæði í landi Hamars, ofan við Borgarnes. Sveitarstjórn staðfestu þannig afgreiðslu umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefndar frá því í síðustu viku. Sveitarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum gegn tveimur þessa niðurstöðu…Lesa meira