Fréttir

true

Valdís Þóra kemst ekki á Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni lék í gær á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Leiknir voru tveir hringir á Buckinghamshire vellinum í Englandi og aðeins fjögur efstu sætin gáfu þátttökurétt á Opna bandaríska. Valdís Þóra lék vel á fyrri hring úrtökumótsins og var í 9. sæti að honum loknum á tveimur höggum…Lesa meira

true

Álfurinn valinn í byrjunarliðið

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Helgi Kolviðarson aðstoðarlandsliðsþjálfari og Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari keyptu fyrsta álfinn í álfasölu SÁÁ sem hefst í dag. Það voru Kolfinna, Dóróthea og Embla Margrét sem sáu um söluna en álfurinn í ár er í landsliðslitunum í tilefni af þátttöku Íslands í HM í Rússlandi. Álfasalan stendur fram á sunnudag en hún er…Lesa meira

true

Telja að ákvörðun sýslumanns muni hafa áhrif á kjörsókn

Á heimasíðu L-lista Samstöðu í Grundarfirði er nú greint frá því að framboðið hafi fengið margar fyrirspurnir varðandi það að ekki er hægt að kjósa utan kjörfundar í Grundarfirði. „Bæjarstjóri hefur fengið þau svör frá dómsmálaráðuneytinu, eftir að hafa mótmælt þessu eina ferðina enn, að sýslumaður hafi lokavald. Þetta er því algjörlega ákvörðun sýslumannsins á…Lesa meira

true

Súpufundir Sjálfstæðisflokksins á Akranesi

Í vikunni hefjast opnir súpufundir Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Tilgangur fundanna er létt spjall við bæjarbúa og kynna um leið helstu málefni flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Súpufundirnir hefjast stundvíslega klukkan 12 á hádegi á Gamla Kaupfélaginu að Kirkjubraut 11. Dagskrá: 16. maí – Þórður Guðjónsson, frambjóðandi ræðir framtíðaruppbyggingu við Jaðarsbakka 17. maí – Gestur Pétursson, forstjóri…Lesa meira

true

Ólíklegt að allir nái tólf veiðidögum í maí

Góður afli hefur verið á strandveiðum það sem er af mánuði, en miklar frátafir hafa verið vegna veðurs á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi og norður um til Súðavíkur. Nú er talið líklegt að margir nái ekki dögunum tólf sem úthlutað var fyrir þennan mánuð til strandveiða. En þrátt fyrir ótíð lætur Magnús Guðni…Lesa meira

true

Í undirbúningi er stærsta sjóstangveiðimót sem haldið hefur verið

Undirbúningur er nú hafinn vegna fjölmenns alþjóðlegs sjóstangveiðimóts sem haldið verður í Snæfellsbæ í lok þessa mánaðar. Það eru Íslandsdeild samtaka evrópskra sjóstangveiðimanna (EFSA) sem skipuleggur mótið sem fram fer dagana 27. maí til 1. júní. Þetta er fimmta Evrópumótið sem haldið er á Íslandi og er þetta í annað skipti sem það verður í…Lesa meira

true

Eitt glæsilegasta skip flotans í Grundarfjarðarhöfn

Sólberg ÓF 1 gnæfði yfir hafnarbakkann í Grundarfirði miðvikudaginn 9. maí þar sem það lá við festar í höfninni. Togspil í skipinu hafði bilað og komu viðgerðarmenn frá Reykjavík með varahluti og gerðu við spilið í Grundarfjarðarhöfn. Skipið kom fyrst til Íslands í fyrra og er eitt af fullkomnustu veiðiskipum flotans og afar glæsilegt á…Lesa meira

true

Veitur opna nýja hreinsistöð á Akranesi

Á morgun, miðvikudaginn 16. maí, taka Veitur í notkun nýja hreinsistöð á Akranesi. Er öllum Akurnesingum boðið af því tilefni í heimsókn að Ægisbraut 31 frá klukkan 16-18. Þar munu Inga Dóra Hrólfsdóttir framkvæmdastjóri Veitna og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri ávarpa samkomuna og að því loknu verður gestum boðið að skoða stöðina og þiggja veitingar.…Lesa meira

true

Valdís Þóra reynir við Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, er í 9. sæti eftir fyrri hring á úrtökumóts fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Mótið hófst í dag í Buckinghamskíri á Englandi í dag. Leiknir verða tveir hringir og að móti loknu komast fjórir efstu kylfingarnir beint á Opna bandaríska mótið, sem haldið verður dagana í kringum…Lesa meira

true

Sögulegur sigur Kára

Páll Sindri Einarsson var hetja Kára þegar liðið krækti í fyrsta sigurinn í sögu félagsins í 2. deild karla í knattspyrnu. Hann skoraði öll mörk liðsins í 1-3 útisigri gegn Hugin á Seyðisfirði á laugardag. Varð hann þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að skora þrennu í þriðju efstu deild Íslandsmótsins. Heimamenn fengu…Lesa meira