Fréttir

true

Jafntefli í hörkuleik

Víkingur Ó. og HK skiptu með sér stigunum eftir viðureign liðanna í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardag. Leikurinn einkenndist af baráttu og hörku þar sem bæði lið fengu sín færi en gekk illa að nýta þau. Lokatölur urðu 1-1. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og liðin létu finna fyrir sér frá fyrstu…Lesa meira

true

Unnu góðan útisigur í fyrsta leik

ÍA vann góðan útisigur á Haukum, 0-1, þegar liðin mættust í fyrstu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöld. Liðunum er báðum spáð prýðilegu gengi í sumar og fyrirfram var því búist við jöfnum leik. Sú varð einmitt raunin. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, sem einkenndist af mikilli baráttu. Bæði lið náðu…Lesa meira

true

Akstursbann er nú víða á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. „Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða…Lesa meira

true

Líkur á að verð á nýjum bílum hækki verulega

„Sala á nýjum bílum með þróuðustu og sparneytnustu bensín- og dísilvélunum mun dragast verulega saman vegna fyrirséðra verðhækkana frá og með 1. september 2018 grípi stjórnvöld ekki til mótvægisaðgerða gagnvart nýja alþjóðlega mengunarstaðlinum WLTP sem tekur við hlutverki eldri staðla við mælingar á eyðslu eldsneytis og útblæstri koldíoxíðs (CO2),“ segir í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu. Innleiðing…Lesa meira

true

Bjartari tímar framundan hjá Háskólanum á Bifröst

Aðalfundur Háskólans á Bifröst fyrir árið 2017 var haldinn miðvikudaginn 9. maí síðastliðinn. Á fundinum var fjallað um skólastarfið á liðnu ári og þróun þess til næstu framtíðar. „Rekstur skólans batnaði mjög á árinu 2017 eftir þrjú erfið rekstrarár. Skólinn skilaði 34 milljóna kr. hagnaði en þar af var söluhagnaður eigna 21,5 milljón. Á árinu…Lesa meira

true

Flestir spá svipuðum tekjum fyrirtækja

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa gefið út í vefriti niðurstöður fyrirtækjakönnunar sem gerð var í nóvember og desember á síðasta ári. Könnunin var send um 900 fyrirtækjum sem talið er að starfi á Vesturlandi og fengust svör frá rúmlega 280. Vífill Karlsson hagfræðingur, sem hafði umsjón með gerð könnunarinnar, telur svörin sem fengust endurspegla með…Lesa meira

true

Slökkvilið kallað út í kvöld

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var á ellefta tímanum í kvöld kallað út vegna elds í raðhússíbúð við Beykiskóga á Akranesi. Brunaviðvörunarkerfi í íbúðinni hafði gert nágrönnum viðvart en íbúðin var mannlaus. Nágranni brást skjótt við, komst inn í íbúðina og slökkti með handslökkvitæki eld sem kraumað hafði í skreytingu á granítplötu. Tjón af völdum elds…Lesa meira

true

Háskólalestin heillaði unga fólkið

Í gærdag var Háskólalestin á ferðinni í Borgarnesi. Í Hjálmakletti var haldin vísindaveisla þar sem gestir gátu spreytt sig á allskyns þrautum, tækjum og tólum. Meðal þess sem boðið verður upp á var speglagaldur, leikir með efni, ljós og hljóð, undarlegar fornleifar og margt fleira. Þegar ljósmyndari Skessuhorns leit við voru dágóður hópur af ungu…Lesa meira

true

Séra Elínborg skipuð dómkirkjuprestur

Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Elínborgu Sturludóttur í embætti prests í Dómkirkjuprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Fjórir umsækjendur voru um embættið. Umsóknarfrestur rann út 23. mars síðastliðinn. Biskup skipar í embættið í samræmi við niðurstöðu kjörnefndar prestakallsins. Séra Elínborg hefur undanfarin ár verið sóknarprestur í Stafholti í Borgarfirði.Lesa meira

true

Stærstum hluta þjóðlendukrafna í Dölum hafnað

Óbyggðanefnd kvað í síðustu viku upp úrskurði vegna krafna Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, um þjóðlendur á svæði 9A, sem nær yfir Dalasýslu að undanskildum fyrrum Skógarstrandarhreppi. Þjóðlendukröfur í Dölum náðu til Svínadals, Flekkudals, Vatnsþverdals, fjalllendi Skarðs í Haukadal, Stóra-Vatnshornsmúla, Jörfaafréttar, landsvæðis sunnan og vestan Villingadalsdraga, Geldingadals, Sauðafellslands, landsvæðis sunnan Hundadals og Hundadalsheiði,…Lesa meira