Fréttir

true

Skipulagsnefnd samþykkti auglýsingu umdeilds máls

Umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur samþykkt fyrir sitt leyti til að setja í auglýsingaferli tillögur að breytingu á deiliskipulagi og aðalskipulagi Borgarbyggðar sem gerir ráð fyrir að heimila skotæfingasvæði í landi Hamars, ofan við Borgarnes. Mál þetta hefur verið afar umdeilt á liðnum árum. Meðal annars mótmæltu 123 einstaklingar skipulagslýsingu með formlegum hætti. Við…Lesa meira

true

Kolmunnavinnsla hafin á Akranesi

Vinnsla á kolmunna hófst fyrr í vikunni í fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi eftir að Víkingur AK landaði þar um 2.600 tonnum. Aflinn fékkst á miðunum suðvestan við Færeyjar. Víkingur hélt strax að nýju á veiðislóð, í sína fimmtu ferð á Færeyjamið, en siglingin er nokkuð löng. Albert Sveinsson skipstjóri á Víkingi segir að veiðin…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu sigur til Akureyrar

ÍA bar sigurorð af Þór með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar karla í kanttspyrnu. Leikið var á Þórsvelli á Akureyri í gær. Leikurinn var líflegur og jafnræði með liðinum. Var það aðeins mark Steinars Þorsteinssonar snemma í síðari hálfleik sem skildi á milli. Skagamenn voru sterkari í fyrri…Lesa meira

true

Þrír framboðsfundir verða í næstu viku (leiðrétt)

Borgarbyggð hefur boðað þrjá framboðsfundi í næstu viku í aðdraganda kosninganna 26. maí. Fyrsti fundurinn verður í Logalandi mánudaginn 14. maí, annar fundurinn í Lindartungu þriðjudaginn 15. maí og sá þriðji í Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 17. maí. (Athugið að hér er leiðrétt röð fundanna miðað við frétt sem birtist fyrr í dag). Allir hefjast…Lesa meira

true

Fjárhagur Akraneskaupstaðar sterkur í samanburði stærstu sveitarfélaga

Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman upplýsingar um rekstur og efnahag tólf stærstu sveitarfélaga landsins. Greiningin nefnist; „Betur má ef duga skal“ og vísar í fremur dapurlega niðurstöðu á rekstri og ekki síst er skuldsetning sveitarfélaga sem gerir fjárhagslegt svigrúm þeirra erfitt. Þá kemur fram að þau sveitarfélög sem koma best út úr þeim samanburði taka…Lesa meira

true

Víkingur Ó. bætir við hópinn

Víkingur Ó. hefur samið við enska miðvörðinn Michael Newberry um að leika með liðinu í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar. Michael er tvítugur að aldri og kemur úr U23 ára liði Newcastle. Árið 2016 var hann valinn besti ungi leikmaður enska liðsins, verðlaun sem meðal annars David Ginola, Andy Carroll og Shola Ameobi…Lesa meira

true

Ferðasaga nemenda í Grunnskóla Borgarfjarðar til Danmerkur

“Það var fyrir réttu ári síðan á föstudagsmorgni að nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar kvöddu nýfundna vini sína frá Eistlandi og Danmörku. Það var eftir fyrstu heimsókn af þremur í tveggja ára samvinnuverkefni okkar. Verkefnið heitir The Voice og er styrkt af Nordplus Junior. Verkefni sem þetta gefur nemendum tækifæri á að vinna með jafnöldrum sínum í…Lesa meira

true

Opnuðu pólskt bókasafn í kassa á heimili sínu í Ólafsvík

Hjónin Agnieszka og Marek Imgront hafa komið upp litlu bókasafni með pólskum bókum á heimili sínu í Ólafsvík. Hugmyndina af safninu má rekja til þess að fyrir fjórum árum stofnuðu þau hjónin hóp fyrir pólsk börn og foreldra þeirra í Ólafsvík, en þar búa margir Pólverjar. Hópurinn hittist reglulega til að gera eitthvað saman eins…Lesa meira

true

Undir yfirborðinu er mynd sem fjallar um sjókvíaeldi

Undir yfirborðinu nefnist ný íslensk heimildamynd um sjókvíaeldi á laxi hér á landi og víðar í heiminum. Myndin verður sýnd í Ríkissjónvarpinu sunnudaginn 13. maí kl. 20.15. Í henni er fjallað um mengun af sjókvíaeldi og hættuna á erfðablöndun við villtu íslensku laxastofnana. „Þetta snýst fyrst og fremst um náttúru Íslands,“ segir leikstjórinn Þorsteinn J.…Lesa meira

true

Smiðjuloftið opnað á Akranesi

Margt var um manninn við opnun Smiðjuloftsins, nýju afþreyingarsetri við Smiðjuvelli á Akranesi, um liðna helgi. Það eru hjónin Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson sem eiga og reka Smiðjuloftið en þar er að finna klifuraðstöðu og rými sem m.a. hentar undir ýmsa viðburði eða tónlistariðkun. „Nóg var um að vera á Smiðjuloftinu í tilefni af…Lesa meira