Fréttir

true

Einn listi barst í Eyja- og Miklaholtshreppi

Einn framboðslisti barst kjörstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps fyrir lögbundinn lokafrest til að skila inn framboðum á hádegi í dag. Það var H-listi Betri byggðar, en oddviti hans er Eggert Kjartansson núverandi oddviti í sveitarfélaginu. Halldór K Jónsson formaður kjörstjórnar staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Samkvæmt kosningalögum er nú gefinn 48 tíma frestur til að…Lesa meira

true

Íbúalistinn býður fram í Hvalfjarðarsveit

Íbúalistinn, sem fengið hefur listabókstafinn Í, var lagður fram til kjörstjórnar í Hvalfjarðarsveit í dag og býður fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Ragna Ívarsdóttir leiðbeinandi á Lækjarmel er oddviti listans, Atli Halldórsson sauðfjárbóndi skipar annað sæti og Sunneva Hlín Skúladóttir þriðja. Í heild er listinn þannig: Ragna Ívarsdóttir, leiðbeinandi, Lækjarmel 6 Atli Halldórsson sauðfjárbóndi, Neðra-Skarði Sunneva…Lesa meira

true

Þrír listar lagðir fram í Hvalfjarðarsveit

Á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn framboðslistum vegna kosninga til sveitarstjórna. Í Hvalfjarðarsveit var kosið persónukjöri fyrir fjórum árum en svo verður ekki nú. Að sögn Jóns Hauks Haukssonar formanns kjörstjórnar bárust þrír framboðslistar. Kjörstjórn mun síðar í dag yfirfara listana og staðfesta lögmæti þeirra og mun á morgun klukkan…Lesa meira

true

Miðflokkurinn kynnir framboðslista á Akranesi

Miðflokkurinn hefur birt framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akranesi 26. maí næstkomandi. Helga K. Jónsdóttir vélsmiður mun leiða lista flokksins. Í öðru sæti er Rúnar Ólason framkvæmdastjóri og þriðja sæti skipar Steinþór Árnason veitingamaður. Í tilkynningu frá framboðinu segir að málefnaáherslur flokksins verði kynntar á næstu dögum. Listinn í heild sinni er eftirfarandi: Helga K.…Lesa meira

true

Telur sýslumann brjóta jafnræðisregluna gagnvart Grundfirðingum

Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri í Grundarfirði hefur sent sýslumanninum á Vesturlandi kröftuga athugasemd vegna þess að ekki er gert ráð fyrir að íbúar í Grundarfirði geti kosið utan kjörfundar í heimabyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 26. maí nk. Hefur hann ritað sýslumanni bréf þar sem farið er þess á leit að bætt verði snarlega úr. Þá hefur…Lesa meira

true

Opna kosningaskrifstofu í dag

„Framsókn og frjálsir á Akranesi munu opna kosningaskrifstofu sína að Kirkjubraut 54 – 56 í dag, laugardaginn 5. maí frá klukkan 16 – 18,“ segir í tilkynningu frá framboðinu. „Formaður Framsóknarflokksins og samgönguráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mætir á svæðið. Því er tilvalið fyrir Skagamenn að mæta og ræða brýnar samgöngubætur við ráðherrann. Frambjóðendur Framsóknar og…Lesa meira

true

Uppfylling í Krókalóni var samkvæmt skipulagi

Akraneskaupstaður birtir í dag tilkynningu á upplýsingavef bæjarins þar sem ákveðnar rangfærslur eru leiðréttar, eins og það er orðað, vegna umfangs landfyllingar við Krókalón. „Landfylling í Krókalóni frá árinu 2012 er í samræmi við aðal- og deiliskipulag,“ segir í frétt Akraneskaupstaðar. Þá segir: „Á almennum íbúafundi sem haldin var í Grundaskóla miðvikudaginn 2. maí síðastliðinn…Lesa meira

true

Samþykktu J listann í Snæfellsbæ

Á fjölmennum fundi J- listans, bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar, sem haldinn var í Klifi í gærkvöldi var tilkynnt um framboð í komandi sveitastjórnarkosningum. Var listinn einróma samþykktur. Sex af þeim sem voru síðast á J listanum gáfu aftur kost á sér. Það eru þau Kristján Þórðarson, Marta Pétursdóttir, Drífa Skúladóttir, Guðmundur Ólafsson, Fríða Sveinsdóttir og Svandís Jóna…Lesa meira

true

Vatnsverksmiðjuhúsið í Rifi rifið

Í vikunni var byrjað að rífa niður vatnsverksmiðjuhúsið í Rifi í Snæfellsbæ og mun eigendur hússins, fyrirtækið Móabyggð í Reykjavík, láta flytja það með skipi burt af staðnum. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstóra veittu skipulagsnefnd og bæjarstjórn samþykki fyrir niðurrifi hússins og því að það yrði fjarlægt af svæðinu. Húsið er um 7200 fermetrar að…Lesa meira

true

Ræða framtíð háskólastarfs á landsbyggðinni

Háskólinn á Bifröst verður aðsetur tólftu ráðstefnunnar um íslenska þjóðfélagið dagana 10. – 11. maí, en ráðstefnan er vettvangur fyrir fræðimenn í öllum greinum hug- og félagsvísinda til að koma á framfæri rannsóknaverkefnum sínum og bera saman bækur sínar við aðra fræðimenn. Framtíð háskólastarfs á landsbyggðinni er yfirskrift ráðstefnunnar og vísar hún til þess að…Lesa meira