Fréttir

true

Verðlaunaðir fyrir góðan vetur í körfunni

Verðlaunahóf Körfuknattleikssambands Íslands vegna keppnistímabilsins 2017 til 2018 var haldið í hádeginu í dag. Þar voru veitt verðlaun í 1. deildum karla og kvenna og Domino‘s deildum karla og kvenna, bæði einstaklingsverðlaun og tilkynnt um lið ársins. Liðsmenn deildarmeistara Skallagríms voru áberandi þegar veitt voru verðlaun fyrir 1. deild karla. Eyjólfur Ásberg Halldórsson var valinn…Lesa meira

true

Fimm buðu í rekstur tjaldsvæðis

Akraneskaupstaður hefur opnað tilboð í rekstur tjaldvæðis við Kalmansvík á Akranesi árin 2018 – 2020. Fimm tilboð, frá 800.000 til 2.621.000 krónum, bárust og var samþykkt á fundi skipulags- og umhverfisráðs í gær að ganga til viðræðna við hæstbjóðanda, Ástu Ósk Sigurðardóttur, á grundvelli tilboðsins.Lesa meira

true

Söfn á Vesturlandi fengu styrk úr Safnasjóði

Nýverið var boðið til fagnaðar með safnafólki í Listasafni Reykjavíkur vegna aðalúthlutunar Safnasjóðs. Að fenginni umsögn safnaráðs hefur mennta- og menningarmálaráðherra úthlutað tæpum 115 milljónum úr sjóðnum fyrir árið 2018. Þar af var tæpri 91 milljón úthlutað í verkefnastyrki til 88 verkefna. Alls bárust 146 umsóknir um verkefnastyrki og veittir styrkir voru á bilinu 200…Lesa meira

true

Frestur til að skila framboðum rennur út eftir 25 tíma

Á hádegi á morgun, laugardaginn 5. maí, rennur út frestur til að skila framboðslistum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi. Hér á Vesturlandi er vitað að enn á eftir að tilkynna um framboðslista þrátt fyrir að frestur sé að renna út. Staða þeirra mála eftir sveitarfélögum er nokkurn veginn eftirfarandi (birt með fyrirvara). Á Akranesi hafa…Lesa meira

true

Breyting gerð á lista VG í Borgarbyggð

Á félagsfundi VG í Borgarbyggð í gær var samþykkt breyting á áður samþykktum framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Guðmundur Freyr Kristbergsson, ferðaþjónustubóndi á Háafelli í Hvítársíðu, tekur þriðja sæti á listanum. Kemur hann í stað Eiríks Þórs Theódórssonar sem óskað hafði eftir því að draga framboð sitt til baka af persónulegum ástæðum. Listinn er að öðru leyti…Lesa meira

true

Dregið í 16 liða úrslitum bikarsins

Dregið var í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í gær. Vesturlandsliðin ÍA, Kári og Víkingur Ó voru öll í pottinum eftir sigra í fyrri umferð. Drátturinn fór á þá leið að Kári mætir Víkingi R. á Akranesi og er þetta í fyrsta sinn sem liðið er í 16 liða úrslitum bikarsins. Víkingur Ó.…Lesa meira

true

Slysavarnadeildin Sumargjöf sjötíu ára

Slysavarnadeildin Sumargjöf var stofnuð 22. apríl 1948 og hélt upp á 70 ára afmæli sitt á sumardaginn fyrsta. Haldið var upp á daginn með veislu í Mettubúð og komu um 90 manns og þáðu kaffiveitingar í tilefni dagsins. Afhjúpaður var minnisvarði um Mettu Kristjánsdóttur við Mettubúð sem var húsnæði slysavarnadeildarinnar og björgunarsveitarinnar Sæbjargar áður en…Lesa meira

true

Hálka og éljagangur

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er nú snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum leiðum á Vesturlandi. Éljagangur er á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Þúsund fermetra þjónustuhús byggt við brúarsporðinn

Síðastliðinn föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að þúsund fermetra þjónustumiðstöð í Borgarnesi þar sem fyrirhugað er að verði til húsa verslanir og veitingahús. Húsið verður reist á lóðinni Digranesgötu 4, á milli húsa Bónuss og Arionbanka næst þjóðveginum þegar ekið er inn í bæinn að sunnan. Það er Borgarland ehf. sem byggir með tilstyrk Kaupfélags…Lesa meira

true

Kammerkór Norðurlands syngur á Akranesi

Kammerkór Norðurlands heldur tónleika á Akranesi næstkomandi sunnudag, 6. maí. Tónleikarnir fara fram í safnaðarheimilinu Vinaminni. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi. Hann segir Kammerkór Norðurlands um margt óvenjulegan kór. „Hann hefur verið starfandi síðan 1998 en ég hef verið stjórnandi síðan árið 2000. Upphaflega var honum ætlað að veita fólki…Lesa meira