Fréttir

true

Reiðhöll verður byggð á Æðarodda

Í dag var skrifað undir samning um byggingu nýrrar reiðhallar á svæði hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda við Akranes. Félagið er eitt fárra hestamannafélaga á landinu sem enn eru án reiðhallar eða annarrar heilsársaðstöðu til tamningar og þjálfunar. Akraneskaupstaður verður eigandi hússins, en það verður byggt fyrir um sextíu milljóna króna framlagi frá Akraneskaupstað auk afsláttar…Lesa meira

true

Smellur er hin besta skemmtun

Söngleikurinn Smellur var frumsýndur fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi siðastliðið föstudagskvöld. Söngleikurinn er færður á fjalirnar af nemendum á unglingastigi í Grundaskóla. Höfundar verksins eru Einar Viðarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi Einarsson, en þeir kenna allir við skólann. Fjörtíu nemendur stíga á svið í sýningunni en alls koma áttatíu nemendur að uppsetningunni…Lesa meira

true

Baráttudagur verkalýðsins er í dag

Fyrsti maí, einnig kallaður hátíðis- eða baráttudagur verkamanna, er í dag. Það mun hafa verið fyrst árið 1889 sem fulltrúar alþjóðasamtaka kommúnista hittust á ráðstefnu í París í tilefni af því að hundrað ár væru liðin frá því að Parísarbúar tóku Bastilluna. Þar var ákveðið að gera fyrsta maí að baráttudegi hreyfingarinnar. Þessi tiltekni dagur…Lesa meira

true

Mercedes-Benz í hringferð um landið

Mercedes-Benz heldur í hringferð um landið í maí og mun kynna úrval fólks- og atvinnubíla frá þýska lúxusbílaframleiðandanum á landsbyggðinni. Lestin kemur á Akranes við Bílás á morgun 1. maí og verður 2. maí við Kjörbúðina í Grundarfirði. Í báðum tilfellum er kynningin frá kl. 12-16. ,,Við gerum víðreist í maí og bjóðum íbúum á…Lesa meira

true

Líkur á að fyrsti heimaleikur Víkings verði á sjómannadaginn

Framkvæmdir við Ólafsvíkurvöll eru nú á síðustu metrunum. Þegar þetta er skrifað er búið að aka grófa undirlaginu í völlinn, jafna það út og þjappa. Því næst verður borið jöfnunarlag af fínna efni í völlinn. Áður en hægt verður að leggja gervigrasið sjálft þarf svo að malbika í kringum völlinn. Vonast er til að öll…Lesa meira

true

Þjónustuformið NPA nú innleitt með lögum

Alþingi hefur samþykkt heildarlög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lög um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lagabreytingarnar fela m.a. í sér lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA). Lögin um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir gilda um fatlaða einstaklinga sem þurfa þjónustu í meira en 15 klukkustundir á viku. Ákvæði…Lesa meira

true

Kynna í dag fyrirhugaða breytingu aðalskipulags

Sveitarfélagið Borgarbyggð vill vekja athygli á að í dag, mánudaginn 30. apríl milli klukkan 17:00 og 18:00, verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Þar verður tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir skotæfingarsvæði í landi Hamars kynnt sérstaklega þeim sem þess óska.Lesa meira

true

Vesturlandsmót í boccia verður spilað í Grundarfirði

Vesturlandsmót í boccía fer fram laugardaginn 12. maí næstkomandi í Grundarfirði. Mótið hefst klukkan 12 og fer fram í íþróttahúsi staðarins. Keppt verður í fjórum, fjögurra liða riðlum, alls sextán lið. Þátttökutilkynningar berist á netfangið flemmingj@simnet fyrir 4. maí næstkomandi. -fréttatilkynningLesa meira

true

Fjórir milljarðar í viðbótarframlög til brýnna vegaframkvæmda

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudaginn tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um að veita fjögurra milljarða króna framlagi til brýnna vegaframkvæmda árið 2018 úr almennum varasjóði sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með. Ekki er enn ákveðið hvaða verkefni verður ráðist í. „Afar brýnt er að verja þau verðmæti sem liggja…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að nýrri þjónustumiðstöð í Borgarnesi

Síðastliðinn föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að þúsund fermetra þjónustumiðstöð í Borgarnesi þar sem fyrirhugað er að verði til húsa verslanir og veitingahús. Húsið verður reist á lóðinni Digranesgötu 4, á milli húsa Bónuss og Arionbanka næst þjóðveginum þegar ekið er inn í bæinn að sunnan. Það er Borgarland ehf. sem byggir með tilstyrk Kaupfélags…Lesa meira