Fréttir

true

Hefja brátt vinnu við nýjan meðferðarkjarna Landspítalans

Útboð jarðvinnu við nýjan meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík hefur verið auglýst og framkvæmdir munu hefjast í sumar. Meðferðarkjarninn er stærsta bygging framkvæmdarinnar og mun gjörbreyta allri aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og aðra sem tengjast starfsemi sjúkrahússins. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir útboðið risastóran og langþráðan áfanga í uppbyggingu Landspítalans við Hringbraut: „Nú styttist…Lesa meira

true

Hatturinn tekinn ofan

Í morgun var þak gamla heitavatnstanksins ofan við Akranes híft af í heilu lagi. Fenginn var öflugur krani úr Reykjavík til verksins, enda stálþakið alls 29 tonn að þyngd. Unnið er við hreinsun og lagfæringar á tankinum og hann hækkaður um einn metra áður en nýtt þak verður sett á tankinn. Það eru Veitur, dótturfyrirtæki…Lesa meira

true

Suðurnesjamenn vilja ganga til liðs við VR

Á aðalfundi Verslunarmannafélags Suðurnesja, sem haldinn var í Reykjanesbæ í gærkvöldi, var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, að gengið verði til viðræðna við VR um sameiningu félaganna. Á fundinum kynnti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, starfsemi félagsins og Gils Einarsson fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurlands (VMS) sagði frá reynslunni af sameiningu VR og VMS. Á vef…Lesa meira

true

Hátíðardagskrá á Vesturlandi á 1. maí

Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí er næstkomandi þriðjudag. Í Skessuhorni vikunnar eru birtar auglýsingar um nokkra þá viðburði sem framundan er í landshlutanum, sbr. meðfylgjandi: Á Akranesi verður safnast saman við Kirkjubraut 40 kl. 14:00 og genginn hringur á neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast Skólahljómsveit Akraness. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á…Lesa meira

true

Áætlun um átak í byggingu hjúkrunarrýma

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í síðustu viku áætlanir um stórátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma á landsvísu. Áætlunin nær til ársins 2023. Í henni er dregið fram hvernig auknir fjármunir til uppbyggingar og reksturs hjúkrunarrýma samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2019 – 2023 gera kleift að ráðast í framkvæmdir við rúmlega 300 hjúkrunarrými á landsvísu, til viðbótar við…Lesa meira

true

Næsta blað verður prentað á mánudaginn

Hátíðis- og baráttudagur verkalýðsins er næstkomandi þriðjudag, 1. maí. Þann dag verður að sjálfsögðu lokað á skrifstofu Skessuhorns. Af þeim sökum verður blað næstu viku prentað á mánudagskvöldið. Þarf því allt efni og auglýsingar í það að hafa borist í síðasta lagi á hádegi á mánudegi, helst fyrr. Bendum við á símanúmerið 433-5500 og netfangið…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ samþykkja framboðslista

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ kynntu og samþykktu framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ í gærkvöldi. Í síðustu bæjarstjórnarkosningum hlaut D-listinn fjóra bæjarfulltrúa af sjö og gefa þrír af þeim kost á sér áfram til forystu; þau Björn Haraldur Hilmarsson, Júníana Björg Óttarsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson en formaður bæjarráðs síðustu fjögur ár,…Lesa meira

true

Kraftur að nýju í lagningu Grundarfjarðarlínu

Vinna Landsnets við lagningu Grundarfjarðarlínu 2, raforkujarðstrengs á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur, er hafin að nýju. Verkefnið hefur tekið lengri tíma en til stóð en vegna vetrarveðurs þurfti Steypustöð Skagafjarðar sem annast verktöku að stöðva lagningu strengsins. En þeir hjá Steypustöðinni sátu ekki auðum höndum og náðu að undirbúa allar þveranir og vinnuslóða í vetur.…Lesa meira

true

Verðlaunaður fyrir bestu klippingu tónlistarmyndbands

Kvikmyndahátíðin WideScreen Film & Music Video Festval fór fram í Miami í Flórídafylki í Bandaríkjunum um þarsíðustu helgi. Á hátíðinni fékk Knútur Haukstein Ólafsson, kvikmyndagerðarmaður á Akranesi, verðlaun fyrir bestu klippingu á tónlistarmyndbandi. Verðlaunin hlaut hann fyrir myndband við lagið Hope með íslensku hljómsveitinni Major Pink, en Knútur leikstýrði einmitt því myndbandi. Knútur var að…Lesa meira

true

Samþykktu frumvarp um breytingu á strandveiðum

Alþingi samþykkti í dag breytingarfrumvarp um fyrirkomulag strandveiða. Meðal helstu breytinga nú er að veiðar verða leyfðar í 12 daga í senn í hverjum mánuði og geta veiðimenn þá róið þegar vel viðrar til veiðanna. Með breytingunni er reynt að koma í veg fyrir svokallaðar ólympískar veiðar sem taldar voru stefna öryggi sjómanna í hættu.…Lesa meira