Fréttir

true

L listi félagshyggjufólks í Stykkishólmi

Kynntur hefur verið til leiks framboðslisti félagshyggjufólks í Stykkishólmi fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar; L-listi. Tvö efstu sæti listans skipa sitjandi bæjarfulltrúar L-listans, sem báðir höfðu lýst því yfir í vetur að þeir ætluðu ekki að gefa kost á sér til framboðs í vor, þeir Lárus Ástmar Hannesson hestamaður og grunnskólakennari og Ragnar Már Ragnarsson byggingfræðingur. Nú…Lesa meira

true

„Niður með strompinn“ segja 94 prósent

Eins og greint var frá í Skessuhorni vikunnar var opnað fyrir kosningu um framtíð Sementsstrompsins á Akranesi 18. apríl síðastliðin. Um var að ræða ráðgefandi skoðanakönnun sem lauk á miðnætti síðasta þriðjudags, 24. apríl. Íbúar bæjarins gátu kosið um málið  í íbúagáttinni á vef Akraneskaupstaðar. Alls tjáðu 1095 íbúar á Akranesi hug sinn í könnuninni…Lesa meira

true

Árgangamót leikskólanna var í dag

Leikskólarnir á Akranesi héldu árgangamót í dag þar sem hver árgangur hittist á ákveðnum leikskóla. Börnin áttu mjög góða stund saman, borðuðu pylsur og léku sér saman. Að sögn Margrétar Þóru Jónsdóttur leikskólastjóra á Teigaseli hafa árgangamót verið haldinu í nokkur ár og alltaf heppnast mjög vel. Börnin eru glöð að hitta jafnaldra sína á…Lesa meira

true

Íbúar mótfallnir fyrirhugaðri landfyllingu í Krókalón

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaður hefur auglýst almennan íbúafund um skipulagsmál miðvikudaginn 2. maí klukkan 18 í bæjarþingsalnum á Stillholti 16-18. Á fundinum verða kynntar tillögur um breytingu aðalskipulags vegna tveggja aðskildra framkvæmda í sjó fram. Annars vegar verður kynnt fyrirhuguð lenging hafnargarðs og brimvarnargarðs í Akraneshöfn. Hins vegar verður kynnt fyrirhuguð breyting á hafnarsvæðinu við…Lesa meira

true

Norðurlandamót stúlkna í skák verður í Borgarnesi um helgina

Norðurlandamót stúlkna í skák fer fram á Hótel Borgarnesi helgina 27.-29. apríl. Taflmennskan hefst kl. 20 á föstudagskvöldið en á laugardag og sunnudag eru tefldar tvær umferðir. Sú fyrri hefst kl. 10 og sú síðari kl. 16. Verðlaunaafhending verður síðan á sunnudagskvöld. Alls taka 33 stúlkur þátt í mótinu á aldrinum 10-20 ára. Níu þeirra…Lesa meira

true

Betri afkoma bæjarsjóðs Akraneskaupstaðar en reiknað hafði verið með

Ársreikningur Akraneskaupstaðar var til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness á þriðjudaginn. Rekstrarafkoma samstæðu A og B hluta bæjarsjóðs, að teknu tilliti til óreglulegra liða, nam 239,7 milljónum króna en þá hefur verið gjaldfært uppgjör lífeyrisskuldbindinga A-hluta vegna uppgjörs við lífeyrissjóðinn Brú að fjárhæð 476,6 milljónir, eins og fram hefur komið í fréttum. Sú stóra eingreiðsla…Lesa meira

true

Skarð komið í efnisgeymsluna

Fyrirtækið Work North ehf. sem annast niðurrif hluta mannvirkja Sementsverksmiðjunnar á Akranesi er nú búið að rjúfa skarð í efnisgeymsluna sem nú er í niðurrifi. Verkið er unnið frá Faxabraut og er gatan því lokuð allri umferð næstu dagana. Athygli er vakin á að meiri þungaflutningar fara nú af þessum sökum um aðrar götur í…Lesa meira

true

Skerpa frásögnina og breyta framsetningunni á nýrri grunnsýningu

Byggðasafnið í Görðum á Akranesi fagnar 60 ára afmæli á næsta ári, nánar til tekið í desember 2019. Af því tilefni stendur nú yfir vinna við nýja grunnsýningu safnsins. Með nýrri grunnsýningu er ætlunin að skapa safninu sess sem metnaðarfullu og faglegu byggðasafni sem áhugavert og fróðlegt verður að heimsækja. Sýningunni er ætlað að endurspegla…Lesa meira

true

Hjúkrunarheimilið Fellsendi fagnaði 50 ára afmæli

Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlega á Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dölum í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá því heimilið var formlega vígt. „Við höfum haldið fjölskyldu- og vinadag fyrir íbúa á vorin síðastliðin þrjú ár og hefur það lukkast vel. Dagurinn er þá haldinn hátíðlegur og íbúar ásamt aðstandendum fá sér kaffi og…Lesa meira

true

Pungsig blæs til útgáfu- og afmælistónleika

Pönksveitin Pungsig stendur á tímamótum. Sveitin fagnar tíu ára afmæli sínu um þessar mundir og sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu. Að eigin sögn hefur sveitin á undanförnum árum haslað sér völl í íslensku pönksenunni sem hljómsveit sem flestir hafa heyrt um en ekki heyrt í. Pungsig var stofnað haustið 2008 af Kristjáni Gauta Karlssyni,…Lesa meira