Fréttir

true

Valdísi Þóru gekk illa í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 61. sæti á Lalla Meryem Cup mótinu í Marokkó um helgina. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Spilamennska Valdísar var mjög kaflaskipt. Hún lék frábærlega á upphafshringnum en náði sér ekki á strik á næstu þremur hringjum mótsins. Lauk hún leik á 19 höggum yfir pari í…Lesa meira

true

Dregið í Mjólkurbikar karla

Dregið var í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í hádeginu í dag. Vesturlandsliðin ÍA, Víkingur Ó. og Kári voru öll í pottinum. Drátturinn fór á þá leið að ÍA mætir liði Selfoss á útivelli, Víkingur Ó. heimsækir Hamar í Hveragerði og Kári fær Hött í heimsókn á Akranes. Dráttinn í heild sinni má…Lesa meira

true

Aðalfundur Hollvinasamtaka Borgarness á miðvikudaginn

Aðalfundur Hollvinasamtaka Borgarness verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl kl. 20:00 í samkomusal Stéttarfélags Vesturlands. Á dagskrá er kosning stjórnar, skýrsla formanns og lagðir fram reikningar. Þá verður rætt um skipulag Brákarhátíðar sem og önnur mál. Hollvinasamtökin eru opin öllum þeim sem áhuga hafa á að styðja málefni til hagsbóta fyrir íbúa Borgarness og nærsveita. Helsta…Lesa meira

true

Byggja skemmu fyrir tækjakost jöklafyrirtækis

Ferðaþjónustufyrirtækið Into the Glacier, eignarhaldsfélag um ísgöngin í Langjökli, hóf í byrjun mánaðarins framkvæmdir við byggingu nýrrar vélaskemmu við afleggjarann upp Kaldadalsveg ofan við Húsafell. Verið er að taka grunn fyrir 300 fermetra skemmu og eru framkvæmdir við sjálfa bygginguna að hefjast á næstu vikum. „Ætlunin er að skemman verði komin upp fyrir sumarið eða…Lesa meira

true

Sögulega lítil þátttaka í símenntun

Þátttaka í símenntun hefur farið minnkandi á landsvísu undanfarin tvö ár eftir aukningu á milli áranna 2014 og 2015. Samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands sóttu sér fræðslu tæplega 23% landsmanna á aldrinum 25-64 ára, annað hvort í skóla eða aðra fræðslu með leiðbeinanda árið 2017. Þetta voru alls 39.600 einstaklingar. Þótt fækkun milli ára sé eingöngu…Lesa meira

true

Þróunarverkefnið Hreint haf í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Nemendur í 6. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar ætla svo sannarlega að láta til sín taka í umhverfismálum. Ætla þeir að hafa áhrif með plastrannsóknum, plastlausum áskorunum og hreinsunum, en Grunnskóli Snæfellsbæjar er í samstarfi við Landvernd um að vinna að þróunarverkefni sem heitir Hreint haf – Ungt fólk á móti plasti. Stefnt er að því að…Lesa meira

true

Strandveiðar hefjast í næstu viku

Nú styttist óðum í að strandveiðisjómenn haldi til hafs á ný, en veiðar hefjast í á miðvikudaginn í næstu viku, 2. maí. Bræðurnir Bergvin Sævar og Birgir Guðmundssynir í Grundarfirði voru önnum kafnir við að undirbúa Sif SH fyrir átökin í sumar þegar fréttaritari Skessuhorns hitti þá nýlega. Bátur þeirra bræðra hefur jafnan verið með…Lesa meira

true

Kútter Sigurfari skrásettur með myndmælingu

Nýverið fór fram vinna við skrásetningu á kútter Sigurfara á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Norðmaðurinn Gunnar Holmstad myndaði skipið í bak og fyrir í fjóra daga. Ljósmyndirnar notar hann til að útbúa þrívíddarlíkan af skipinu. Byggðasafnið í Görðum fær síðan öll gögnin afhent til notkunar á safninu. Skessuhorn hitti Gunnar að máli meðan vinna…Lesa meira

true

Halda aðalfund Samfylkingarinnar

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar sunnudaginn 6. maí kl. 12-16 í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Guðjón Brjánsson, þingmaður kjördæmisins, ávarpar fundinn og tekur þátt í umræðum. „Þeir félagsmenn sem hafa hug á að bjóða sig fram eða tilnefna í stjórn, eða til annarra embætta sem kosið verður um hafi…Lesa meira

true

Næturlokanir í göngin alla þessa viku

Skessuhorn minnir á að Hvalfjarðargöngin verða lokuð í fimm nætur í þessari viku. Fyrst í kvöld og til aðfararnætur föstudags. Lokað er frá miðnætti og til klukkan 6 að morgni alla dagana.    Lesa meira