Fréttir

true

Sektir hækkaðar umtalsvert frá 1. maí

Skrifað hefur verið undir nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot. Tekur breytingin gildi 1. maí næstkomandi. Sektir fyrir umferðarlagabrot hafa margar hverjar verið óbreyttar í rúman áratug og mörgum þótt þær of lágar og hafa lítinn fælingarmátt. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig…Lesa meira

true

Skagamenn sigursælir á Opna Borgarfjarðarmótinu

Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds lauk í gærkvöldi í Logalandi. Að venju var mótið bæði spilað á Akranesi og í Borgarfirði, að þessu sinni með þátttöku 18 para.  Sigurvegarar urðu Skagamennirnir Karl Alfreðsson og Jón Alfreðsson með skor upp á 67,5%. Í öðru sæti urðu Borgfirðingarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Sigurður Einarsson með 54,9%. Sjónarmun á eftir…Lesa meira

true

Syntu til verðlauna og settu met

Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug fór fram í Laugardalslaug um liðna helgi. Tólf keppendur frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í mótinu. Sneru keppendur heim með nokkra verðlaunapeninga auk þess sem eitt Akranesmet féll. Sævar Berg Sigurðsson vann til silfurverðlauna í 50 m bringusundi og Atli Vikar Ingimundarson hreppti bronsið í 100 m flugsundi…Lesa meira

true

Þrjú gull og þrjú brons á ÍM – 50

Sundkonan Inga Elín Cryer frá Akranesi keppti á ÍM -50 um liðna helgi og náði þar frábærum árangri. Hún keppti í 100m og 200m flugsundi og 200m skriðsundi og varð Íslandsmeistari í öllum þessum greinum. Þá vann hún til þriggja bronsverðlauna í boðsundsgreinum. Þannig að afrakstur helgarinnar voru þrjú gull og þrjú brons. Inga Elín…Lesa meira

true

Unnið við viðgerðir á Kjalarnesi

Í dag, þriðjudaginn 24. apríl frá kl. 10.00 og fram eftir degi verður unnið við viðgerðir á Vesturlandvegi, á milli Grundarhverfis á Kjalarnesi og Hvalfjarðarganga. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.…Lesa meira

true

Óskað eftir tillögum um bæjarlistamann

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar hefur óskað eftir tillögum almennings til útnefningar bæjarlistamanns Akraness fyrir árið 2018. Bæjarlistamaður Akraness hefur verið útnefndur árlega frá árinu 1992 þegar Hrein Elíasson myndlistarmaður varð þess heiðurs aðnjótandi. Leirlistakonan Kolbrún S. Kjarval var útnefnd bæjarlistamaður Akraness á síðasta ári. Tillögum skal skilað inn rafrænt í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar fyrir 11.…Lesa meira

true

Sló 19 ára gamalt Íslandsmet

Skagamaðurinn Jóhann Ársæll Atlason sló þriðjudaginn 17. apríl sl. 19 ára gamalt Íslandsmet í einum leik í 1. flokki pilta í keilu. Í 1. flokki leika keppendur 17-18 ára. Jóhann spilaði 299 stiga leik í 2. deildinni á Akranesi þennan dag, en hæsta mögulega skor í keilu er 300. Eldra metið í 1. flokki pilta…Lesa meira

true

Auglýst eftir presti til afleysingar

Biskup Íslands hefur auglýst eftir presti til að sinna afleysingaþjónustu í Borgarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi. Um tímabundna setningu í sóknarprestsembættið er að ræða, frá 1. september nk. til 31. maí 2019. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 7. maí og er sótt um í gegnum kirkjan.isLesa meira

true

Strandhreinsunarátaki hleypt af stokkunum

Landvernd og Blái herinn hleypa strandhreinsunarátakinu „Hreinsum Ísland“ af stokkunum í annað sinn á Degi umhverfisins á morgun, 25. apríl. „Dagana 25. apríl – 6. maí vekja Landvernd og Blái herinn athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. Landsmenn eru hvattir til að skipuleggja sínar eigin strandhreinsanir og má skrá sig til leiks…Lesa meira

true

Líkur á að grásleppuvertíðin verði lengd

Í frétt Fiskistofu í síðustu viku segir að von sé á reglugerð frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem leyfi til grásleppuveiða verða lengd úr 32 dögum í 44. Eins og kunnugt er var heimilt að hefja veiðar 1. apríl sl. í Faxaflóa, á utanverðum Breiðafirði og Vestfjörðum, en innanverður Breiðafjörður verður opnaður til veiðanna 20.…Lesa meira