Fréttir

true

Myndi aldrei vilja sleppa körfuboltanum

Andrea Björt Ólafsdóttir leikur körfubolta með meistaraflokki Snæfells í Stykkishólmi. Hún hefur æft körfubolta af krafti frá því hún var átta ára, byrjaði að æfa með Grindavík en hefur allt sitt líf verið viðriðin íþróttir. Hún bjó í Englandi milli tveggja og átta ára aldurs og var þar að læra sund, ballett og fimleika. Pabbi…Lesa meira

true

Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutaði styrkjum

Í lok síðustu viku var stóri úthlutunardagur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands þegar árlegum styrkjum ríkis og sveitarfélaga er úthlutað. Úthlutunarathöfn var í nýju húsi Amtbókasafnsins í Stykkishólmi. Að þessu sinni var úthlutað 75 styrkjum. 54 til menningarstarfsemi að upphæð 24,8 milljónir króna, sjö stofn- og rekstrarstyrkjum til stofnana að upphæð 5,9 milljónir króna og 13 styrkjum til…Lesa meira

true

Skessuhorn strax eftir páska

Nýjasta tölublað Skessuhorns kom út í morgun, þriðjudag og er nú á leið í lúgur og póstkassa áskrifenda. Fyrsta blað eftir páska kemur út miðvikudaginn 4. apríl. Vegna þess hversu fáir virkir dagar eru til vinnslu þess, eru þeir sem vilja tryggja sér auglýsingapláss, senda inn greinar eða hafa ábendingar um efni, beðnir að vera…Lesa meira

true

Hönnuðu nýja veglínu um Grunnafjörð

Fjórir nemendur á þriðja ári í umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskóla Íslands hafa hannað nýja veglínu um Grunnafjörð í Hvalfjarðarsveit. Nemendurnir skiluðu skýrslu þess efnis á dögunum og kynntu verkefni sitt þriðjudaginn 20. mars á Hvanneyri. Nemendurnir eru þau Brynja Sigríður Gunnarsdóttir, Esther Björg Andreasen, Guðni Rúnar Jónsson og Silja Sif Lóudóttir. Skessuhorn fylgdist með kynningu þeirra…Lesa meira

true

Fiskiðjan Bylgja gjaldþrota

Í Lögbirtingablaðinu kemur fram að Fiskiðjan Bylgja ehf. í Ólafsvík hefur verið úrskurðuð gjaldþrota. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns undir lok síðasta árs var öllu starfsfólki fyrirtækisins, um þrjátíu talsins, sagt upp í lok nóvembar. Bylgja seldi ferskar og frystar sjávarafurðir til neytenda á erlendum mörkuðum og þegar mest lét störfuðu um 70…Lesa meira

true

Spá fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu og fækkun á landsbyggðinni

Byggðastofnun hefur gert mannfjöldaspá til ársins 2066 fyrir sérhvert sveitarfélag á Íslandi. Spáin byggir á gögnum frá Hagstofu Íslands um fæðingar- og dánartíðni frá árinu 1971 og búferlaflutninga frá 1986. Við vinnu stofnunarinnar var þróað mannfjöldalíkan sem byggir á þekktum aðferðum sem nota eingöngu söguleg gögn til að spá fyrir um framtíðina. Stóra myndin sem…Lesa meira

true

Segir bílamálun vera starf fyrir alla sem hafa áhuga

„Það ættu allir bara að læra það sem þeim þykir skemmtilegt og þetta starf hentar vel fyrir alla,“ segir Katrín Jóna Wladecka Ólafsdóttir bílamálari. Katrín Jóna er rétt að verða tvítug stelpa, er Hólmari, ættuð úr Dölum en býr á Akranesi. Hún starfar sem bílamálari hjá Nýju bílasmiðjunni í Mosfellsbæ. Hún ætlaði upphaflega að læra…Lesa meira

true

Útvarpskonan Margrét Blöndal í opnuviðtali

Þó vor sé í lofti er heldur hráslagalegt um að litast fyrir utan stóra gluggana á kaffihúsinu Lesbókinni við Akratorg á Akranesi þegar blaðamaður Skessuhorns sest niður með Margréti Blöndal einn miðmorgun í mars. Hún er nýkomin frá Bonn í Þýskalandi þar sem hún var ásamt manni sínum Guðmundi Óla Gunnarssyni, skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi,…Lesa meira

true

„Endurnýjun sjúkrabílaflotans þolir enga bið“

Síðastliðinn fimmtudagsmorgun bilaði sjúkrabíll sem ekið var í forgangsakstri með sjúkling frá Ólafsvík á leiðinni til Akraness. Bilunarinnar var fyrst vart þegar komið var suður að Hítará og skömmu síðar stöðvaðist bíllinn alveg. Þurfti því að senda sjúkrabíl úr Borgarnesi til að sækja sjúklinginn og koma honum undir læknishendur á Akranesi. Dráttarbíll var síðan sendur…Lesa meira

true

Úraframleiðandi styður Landsbjörgu

Fyrr á þessu ári var undirritaður samstarfsamningur til fimm ára milli Slysavarnafélagsins Landsbjargar og svissneska úraframleiðandans Luminox. Er þetta í fyrsta skipti sem félagið gerir erlendan samning sem þennan en henn er hugsaður sem fjáröflun fyrir félagið. Luminox skuldbindur sig til að framleiða nýja línu af úrum sem tengjast ICE-SAR á hverju ári næstu fimm…Lesa meira