Fréttir

true

Yngri en 67 ára komist í dvalarrými

Gildandi aldursmörk sem einskorða þjónustu dagdvalar og dvalarrýma við aldraða verða numin úr gildi samkvæmt nýju frumvarpi heilbrigðisráðherra. Aðgangur að þessari þjónustu verður bundinn við faglegt mat á þörf viðkomandi fyrir þessi úrræði. Svandís Svavarsdóttir ráðherra kynnti nýverið frumvarpið á fundi ríkisstjórnarinnar. „Nokkuð er um að óskað sé eftir undanþágum frá aldursmörkum laganna vegna fólks…Lesa meira

true

Elva Björk hafnaði í þriðja sæti á söngkeppni Samfés

Söngkeppni Samfés fór fram í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Rúmlega 3000 áhorfendur lögðu leið sína í höllina og horfðu á fulltrúa félagsmiðstöðva víðsvegar af landinu keppa. Það var Aníta Daðadóttir frá félagsmiðstöðinni Fönix í Kópavogi sem söng til sigurs og í öðru sæti var Benedikt Gylfason frá félagsmiðstöðinni Bústöðum. Söngkonan Elva Björk Jónsdóttir frá félagmiðstöðinni Eden…Lesa meira

true

Randi og Þytur sigruðu í gæðingafiminni

Keppt var í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum á fimmtudagskvöldið. Randi Holaker á Skáney á hestinum Þyt sigraði í þeirri keppni með miklum yfirburðum, hlaut 7,15 í einkunn. Í öðru sæti varð Ylfa Guðrún Svafarsdóttir á Glanna frá Hofi með 6,79. Þriðji varð Siguroddur Pétursson á Stegg með 6,74, fjórði Haukur Bjarnason á Ísari með…Lesa meira

true

Fimm leikkonur flytja Passíusálmana í Saurbæ

Föstudaginn langa, 30. mars, munu fimm leikkonur flytja Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Leikkonurnar eru: Edda Þórarinsdóttir, Halla Guðmundsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guðmundsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir sem jafnframt hefur umsjón með flutningnum. Tónlistarflutningur milli þátta verksins er í höndum Zsuzsönnu Budai organista kirkjunnar. Leikkonurnar fimm störfuðu allar á árum áður við Þjóðleikhúsið en…Lesa meira

true

Hvessir upp úr hádegi í dag

Í dag hvessir af suðaustan á Suður- og Vesturlandi. Til að byrja með verður ekki úrkoma samhliða hvassviðrinu en reikna má með sterkum vindhviðum við Hafnarfjall frá því um klukkan 12 og fram yfir miðjan dag. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni eru vegir á Vesturlandi að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Bröttubrekku en snjóþekja á…Lesa meira

true

Myrkvað Snæfellsnes á Jarðarstund

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi, í samstarfi við RARIK, slökktu öll götuljós og ljós í stofnunum á þeirra vegum laugardaginn 24. mars síðastliðinn. Var þetta gert í tengslum við Jarðarstund eða Earth Hour sem er alþjóðlegur viðburður sem haldinn hefur verið frá árinu 2007. Ætlunin með þessu er að vekja fólk til umhugsunar um orkunotkun og loftslagsbreytingar…Lesa meira

true

Byggðaumræðan frá óvæntum hliðum á Landsbyggðarlatte

Annan dag í páskum hefur göngu sína nýr umræðuþáttur á N4 sem ber nafnið Landsbyggðarlatté. Í þessum þætti verður komið víða við í umræðunni um landsbyggðarmál. Nafnið á þættinum er til að undirstrika að hann brýtur svolítið upp klisjunar sem einkenna oft umræðuna um byggðamál. „Í þættinum verða landsmálin rædd af áhugafólki um samfélags- og…Lesa meira

true

Blað þessarar viku degi fyrr í prentun

Vegna dymbilvikunnar sem nú er gengin í garð verður útgáfu Skessuhorns í þessari viku flýtt um einn dag. Blaðið kemur því út á morgun, í stað miðvikudags. Auglýsendum og þeim sem vilja koma efni á framfæri er bent á að skilafrestur rennur út á hádegi í dag, mánudaginn 26. mars. Skrifstofa blaðsins verður opin í…Lesa meira

true

Innanbæjarstrætó í viðgerð

Innanbæjarstrætisvagninn á Akranesi fer í viðgerð í dag, mánudaginn 26. mars, og verður frá af þeim sökum þar til á miðvikudaginn. Í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar segir að þessir dagar hafi verið valdir til viðhalds og viðgerða á vagninum þar sem skólastarf sé ekki hafið enn að loknu páskafríi. Á meðan hefur verið fengin lítil…Lesa meira

true

Bílvelta við Hafnarfjall

Bíll og hestakerra fóru út af veginum og ultu við Hafnarfjall snemma síðastliðið föstudagskvöld. Þrír voru í bílnum og voru þeir sendir undir læknishendur. Eitt hross var í kerrunni og slapp það með skrámur. Óhapp þetta má rekja til ísingar sem gerði skömmu áður.Lesa meira