Fréttir

true

Misjafn afli en létt lund á sjóstangveiðimóti

Það var létt yfir sjóstangveiðifólki og skipstjórum bátanna þegar þeir komu að landi hver af öðrum um miðjan dag eftir fyrri veiðidag á sjóstangveiðimóti SjósSkip á Akranesi. Aflinn var aðallega þorskur en nokkuð misstór fiskur eins og gengur, eftir því hvert róið var. Sumir veiðimenn voru með full kör, yfir 400 kíló meðan aðrir höfðu…Lesa meira

true

Skrifað undir samninga vegna ljósleiðaravæðingar

Í gær var skrifað undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs til sveitarfélaga vegna ljósleiðaravæðingar í tengslum við átakið Ísland ljóstengt. Fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaganna skrifuðu undir og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirritun sinni við athöfn í ráðuneytinu. Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, frá tveimur og upp…Lesa meira

true

Grundarfjarðarbær auglýsir deiliskipulag við Kirkjufell og Kolgrafafjörð

Grundarfjarðarbær hefur birt tillögur að deiliskipulagi við Kirkjufell og Kolgrafafjörð á heimasíðu sinni grundarfjordur.is. Við Kirkjufell er stefnt á að endurbæta bílastæði, gönguleiðir, upplýsingaskilti og áningarstaði á svæðinu en núverandi bílastæði er löngu sprungið og oft hefur skapast hættuástand á svæðinu sökum þungrar umferðar. Við vesturhluta Kolgrafafjarðarbrúar er unnið að skipulagi á bílastæði og áningarstað…Lesa meira

true

Glæpasagan Köld slóð gefin út af Mth

Mth útgáfa á Akranesi sendir frá sér þýdda glæpasögu fyrir þessa páska. Það er Köld slóð eftir sænska höfundinn Emelie Schepp sem var útnefnd glæpasagnahöfundur ársins 2017 í Svíþjóð. Er það annað árið í röð sem henni hlotnast sá heiður. Um efni bókarinnar segir á kápu: „Á köldu desemberkvöldi staðnæmist hraðlestin frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms…Lesa meira

true

Sendir frá sér nýja hljómplötu með gömlum perlum

Melódíur minninganna – hjartnæmustu lög Íslands á 20. öld, er ný plata sem tónlistarmaðurinn Ingimar Oddsson á Akranesi vinnur að útgáfu á. Á plötunni flytur Ingimar lögin sem kynslóðirnar hafa grátið saman yfir í gegnum tíðina og hefur sér til halds og trausts einvalalið íslenskra tónlistarmanna. „Engin rafmagnshljóðfæri eru notuð á plötunni og í einu…Lesa meira

true

Samningaviðræður framhaldsskólakennara eru í uppnámi

Félag framhaldsskólakennara hefur kallað samninganefnd félagsins saman næstkomandi mánudag 26. mars. Þar mun nefndin fara yfir stöðuna í yfirstandandi kjarasamningaviðræðum félagsins. „Eftir fund hjá Ríkissáttasemjara í morgun er þungt hljóð í forystu félagsins. Á mánudag mun nefndin fara yfir næstu skref en þegar hefur formanni verið falið að kalla, strax eftir páska, saman trúnaðarmenn framhaldsskólanna…Lesa meira

true

Kvenfélagið gaf fjórburakerru

Kvenfélag Hellissands færði leikskólanum Kríubóli fjórburakerru að gjöf síðastliðinn mánudag. Það voru þær Guðrún Halla Elíasdóttir formaður og Lísa Dögg Davíðsdóttir varaformaður kvenfélagsins sem afhentu leikskólanum kerruna með von um að hún nýttist leikskólanum vel. Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri tók við kerrunni, sagði hún að kerran myndi nýtast mjög vel þar sem nú væri hægt að…Lesa meira

true

Hafna kröfu um að stöðva framkvæmdir við steinmunasafn

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var kynnt bráðabirgða niðurstaða Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 15. mars sl. varðandi kæru um stöðvun framkvæmda við uppsteypu svokallaðs legsteinahúss í skipulögðu landi Bæjargils í landi Húsafells II í Borgarfirði. Í málinu var kveðinn upp úrskurður sem sneri að kröfu kærenda, eigenda Gamla bæjarins á Húsafelli I, um…Lesa meira

true

Kepptu í ringói í Borgarnesi

Síðastliðinn sunnudag var keppt í hinni nýlegu en mjög svo vaxandi íþróttagrein; ringói í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Flemming Jessen hefur umsjón með æfingum og mótum eldri borgara. Fjögur lið mættu til leiks á sunnudaginn. Auk heimafólks í UMSB voru lið frá Glóð í Kópavogi, HSK og frá Mosfellsbæ. Spiluð var tvöföld umferð og hver leikur…Lesa meira

true

Alþingismenn vilja lækka kosningaaldur – eru á skjön við vilja þjóðarinnar

Nú stefnir að óbreyttu í að Alþingi samþykki breytingu á lögum sem heimilar lækkun kosningaaldurs úr 18 ár í 16 ár, án þess að kjörfylgisaldri verði breytt. Ef lögin verða samþykkt tekur breytingin gildi fyrir kosningar til sveitarstjórna 26. maí næstkomandi og mörg þúsund nýir kjósendur bætast þá á kjörskrá. Eftir fyrri umræðu um frumvarpið…Lesa meira