Fréttir

true

Hálkublettur og sumsstaðar snjóþekja

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram um færð á Vesturlandi að greiðfært eða hálkublettir eru í nágrenni Borgarness en snjóþekja á vegum og éljagangur eða snjókoma á Snæfellsnesi og í Dölum.Lesa meira

true

B59 Hotel í Borgarnesi auglýsir eftir starfsfólki

Hús og Lóðir ehf, fyrirtæki Snorra Hjaltasonar byggingaverktaka sem byggir tvö sambyggð hús á lóðunum Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi hefur skrifað undir hótelstjórnunarsamning við Capital Hótels um rekstur á nýju fjögurra stjörnu hóteli við Borgarbraut 59. Þá hefur Jóel Salómon Hjálmarsson verið ráðinn hótelstjóri og stefnt er að opnun í byrjun sumars, en nákvæm dagsetning…Lesa meira

true

Fyrsta mótið af nokkrum hjá hestamannafélaginu Snæfellingi

Hestamannafélagið Snæfellingur hélt þrígangsmót i reiðhöllinni í Ólafsvik síðasliðið föstudagskvöld. Var boðið upp á pollaflokk, þrígang 17 ára og yngri, minna vana og meira vana. Að sjálfsögðu urðu allir i fyrsta sæti i pollaflokki. Í flokki minna vanra sigraði Íris Huld Sigurbjörnsdóttir og meira vana sigraði Gunnar Tryggvason. Engin skráning var að þessu sinni í…Lesa meira

true

Einn öflugasti krani landsins

Vinna við grunn íbúðablokkar við Stillholt 21 á Akranesi hófst í vetur. Nú er búið að koma fyrir á byggingarsvæðinu gríðarstórum krana sem notaður verður við verkið. Það er Skagatorg ehf. sem byggir á lóðinni 37 íbúða blokk, sambærilega þeirri sem fyrirtækið byggði einnig á næstu lóð við hliðina, Stillholti 19, fyrir um tólf árum…Lesa meira

true

Sérhæfir sig í verkefnastjórnun og innkaupum

Síðasta sumar tók Reynir Georgsson á Akranesi upp þráðinn hjá verktakafyrirtækinu Glerfelli og hóf starfsemi fyrirtækisins á ný eftir 16 ára pásu. Glerfell var upphaflega stofnað í Dalabyggð af tengdaföður Reynis, Halldóri Guðmundssyni frá Magnússkógum í Dölum, en er nú rekið á Akranesi. Halldór rak fyrirtækið allt þar til hann féll frá árið 2001. Reynir…Lesa meira

true

Óvissa er um framtíð almenningssamgangna vegna taprekstrar

Uppsafnaður rekstrarvandi sveitarfélaganna á landsbyggðinni vegna aðkomu þeirra að rekstri almenningssamgangna er 119 milljónir króna á árabilinu 2012-2017. Svo virðist sem dregið hafi úr notkun almennings á hópferðabílum milli landshluta og sífellt fleiri sem kjósi að ferðast með öðrum hætti, svo sem með flugi eða bílaleigubílum. Einungis í eitt ár frá 2012 hefur akstur strætó…Lesa meira

true

Gæðingafimi Líflands í Faxaborg í kvöld

Þriðja mót Vesturlandsdeildarinnar 2018 í hestaíþróttum fer fram í kvöld og verður keppt í gæðingafimi. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg í Borgarnesi. „Deildin hefur farið vel af stað í vetur og aldrei verið sterkari. Von er á fjölda sterkra hrossa og knárra knapa og má því búast við góðri skemmtun í Faxaborg.…Lesa meira

true

Þvottabjörn veiddur á Reykjanesi

Fyrr í vikunni fannst þvottabjörn við Hafnir á Reykjanesi. Það var Borgfirðingurinn Birgir Hauksson frá Vatnsenda í Skorradal sem var í fjöruferð annarra erinda ásamt minkahundi sínum Tyson: „Einu sinni í mánuði erum við Tyson sendir til að tína öðuskeljar. Yfirleitt finnum við ekkert annað í þannig leiðöngrum en skeljar og oftast nóg af þeim.…Lesa meira

true

Orka heimilanna er nýtt fyrirtæki á raforkumarkaði

Orka heimilanna er nýtt fyrirtæki í sölu rafmagns á Íslandi. „Fyrirtækið hóf starfsemi í mars á þessu ári og markmiðið er að stuðla að aukinni samkeppni og bjóða lægra verð á rafmagni til hagsbóta fyrir heimili og smærri fyrirtæki um land allt,“ segir í tilkynningu frá eigendum, þeim Bjarna Ingvari Jóhannssyni og Lofti Már Sigurðssyni.…Lesa meira

true

Snæfellskonur stálu sigrinum

Snæfell vann dramatískan útisigur á Val, 58-59, eftií næstsíðustu umferð Domino‘s deildar kvenna í gærkvöldi. Leikurinn fór hægt af stað og Valskonur leiddu 4-3 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þær tóku síðan frá rispu seint í leikhlutanum og náðu sex stiga forystu. Snæfell átti lokaorðið í leikhlutanum og var einu stigi á eftir að upphafsfjórðungnum…Lesa meira