Fréttir

true

Skallagrímskonur völtuðu yfir Stjörnuna

Skallagrímskonur rúlluðu upp Stjörnunni í mikilvægum leik í Domino‘s deild kvenna í Borgarnesi í gærkvöldi. Liðin bítast um fjórða sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni og fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik. Sú varð raunin í fyrri hálfleik, en Skallagrímskonur höfðu þó alltaf yfirhöndina. Þær stungu svo af í síðari hálfleik…Lesa meira

true

Segja sjálftöku ögrun við launafólk

„Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega þeirri sjálftöku launa sem á sér stað meðal stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum,“ segir í tilkynningu frá félaginu. „Allt frá því að kjararáð gaf tóninn með hækkun launa til þingmanna og forstöðumanna stofnana hefur orðið til hyldýpi milli þessara aðila og launafólks. Þrátt fyrir að ákvörðunum kjararáðs hafi verið mótmælt…Lesa meira

true

Stærra eldhús í Sjávarpakkhúsinu

Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi hefur nú fengið örlitla yfirhalningu en opnað var út í kalda útigeymslu við húsið og þar komið upp eldhúsi. „Eldhúsið sem við vorum með var mjög lítið, aðeins um fjórir eða fimm fermetrar að stærð. Þetta rými er töluvert stærra, örugglega um 16 fermetrar svo munar töluverðu,“ segir Sara Hjörleifsdóttir vert í…Lesa meira

true

Textaland er nýtt fyrirtæki á Akranesi

Textaland ehf. hóf nýlega starfsemi með formlegum hætti á Akranesi. Fyrirtækið veitir fjölbreytta þjónustu á sviði ritaðs máls, m.a. textagerð, prófarkalestur og þýðingar fyrir fyrirtæki, stofnanir og háskólanema, svo eitthvað sé nefnt. Stofnendur Textalands eru Arnar Óðinn Arnþórsson og Halla Sigríður Bragadóttir. Þau eru bæði upplýsingafræðingar og hafa áralanga reynslu af margs konar skrifum og…Lesa meira

true

Sveit Tryggva er Akranesmeistari í bridds

Akranesmótinu í sveitakeppni í bridds lauk síðastliðinn fimmtudag með þátttöku sex sveita. Keppnin var fremur jöfn á toppnum en leikar fóru þannig að sveit Tryggva Bjarnasonar bar sigur úr býtum og hlaut 95 stig. Með Tryggva spiluðu Þorgeir Jósefsson, Karl Alfreðsson og Bjarni Guðmundsson. Eitt kvöld leystu af í sveitinni þeir Steinberg Ríkharðsson og Jón…Lesa meira

true

Húnvetningar gjörsigruðu í Vesturlandsriðlinum

Í dag var keppt í fjórum riðlum undankeppni Skólahreysti, hreystikeppni grunnskóla. Keppnin er liðakeppni og fimm gerðir þrauta; hraðaþraut, upphýfingar, armbeygjur, dýfur og hreystigreip. Í Vesturlandsriðlinum gerðu nýir skólar sig gildandi á toppnum og þeir sem vermt hafa þau sæti á liðnum árum skoruðu nokkrir mjög lágt í keppninni. Sigurvegarar, og skólinn sem fer í…Lesa meira

true

Bjarnheiður kosin formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

Bjarnheiður Hallsdóttir framkvæmdastjóri Kötlu Travel var í dag kjörin nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, á aðalfundi sem nú stendur yfir. Tekur hún við af Grími Sæmundsen framkvæmdastjóra Bláa Lónsins sem gegnt hefur formennsku á langmesta vaxtarskeiði íslenskrar ferðaþjónustu frá upphafi. Fjögur sóttust eftir embættinu, auk Bjarnheiðar þeir Róbert Guðfinnsson, Þórir Garðarsson og Margeir Vilhjálmsson. Róbert dró…Lesa meira

true

„Vinsamlegast farið úr skítugum stígvélunum“

Hjalti Ragnar Arnórsson er 23 ára gamall, frá Hofsstöðum í Reykhólasveit. Hann hélt í ársbyrjun upp í mikið ferðalag, 50 daga reisu yfir hálfan hnöttinn, alla leið til Nýja-Sjálands til að læra rúning. En ekki var um hreina skemmtiferð að ræða, heldur tók á móti honum verktaki og kennari. Hjalti hóf skömmu síðar starfsnám í…Lesa meira

true

Grunnskólakennarar felldu kjarasamning

Mikill meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara hefur fellt nýgerðan kjarasamning FG og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skrifað var undir samninginn 13. mars síðastliðinn, en atkvæðagreiðsla stóð yfir dagana 16. til 21. mars. „Nei“ sögðu 68,52% en „já“ sögðu 29,74%. Atkvæði greiddu 3.793 félagsmenn eða 80,75%. Á kjörskrá voru 4.697.Lesa meira

true

Snorrastofa kemur að útgáfu þriggja bóka um Reykholt og goðafræði

Óhætt er að segja að starfsemi Snorrastofu í Reykholti sé á tímamótum. Þrátt fyrir að hún hafi verið sett á fót 1995 var ekki ráðinn starfsmaður að henni fyrr en þremur árum síðar, eða árið 1998. Um þessar mundir eru því tuttugu ár síðan Bergur Þorgeirsson kom á sinn fyrsta fund með stjórn Snorrastofu og…Lesa meira