Fréttir

true

Rollukarlar meistarar fyrir misskilning – Guttarnir völtuðu yfir þá

Vissulega kemur það fyrir að Skessuhorn er fyrst með fréttirnar, en sjaldan að sagðar séu fréttir af úrslitum íþróttakappleikja sem ekki hafa farið fram. Það gerðist þó í síðustu viku þegar birtist kolröng frétt um úrslit í sveitakeppni Briddsfélags Borgarfjarðar. Blaðamaður gerðist sekur um að taka ekki eftir einu lykilorði sem birtist í fésbókartilkynningu briddsfélagsins…Lesa meira

true

Nýr eigandi Vitakaffis ætlar að opna kokteilbar

Eigendaskipti urðu á Vitakaffi við Stillholt á Akranesi í liðinni viku þegar Kolbrún Líndal Guðjónsdóttir keypti barinn af Steinþóri Árnasyni. Sjálfur keypti Steinþór Vitakaffi í lok síðasta árs og ætlaði að breyta staðnum í írskan pöbb þar sem hægt yrði að kaupa fínni pöbbamat. Skömmu síðar keypti hann Lesbókina Café við Akratorg þar sem hann…Lesa meira

true

„Án sjálfboðaliða væri ekki hægt að halda uppi íþrótta- og félagsstarfi“

Á sambandsþingi Ungmennasambands Borgarfjarðar í síðustu viku var Rósu Marinósdóttur á Hvanneyri veitt gullmerki UMFÍ fyrr framlag sitt til starfa innan UMSB í gegnum árin. Rósa er vel að verðlaunum komin enda hefur hún unnið mjög óeigingjarnt sjálfboðastarf innan UMSB frá því hún flutti á Hvanneyri árið 1980. „Ég flutti hingað frá Akureyri en þar…Lesa meira

true

„Þó hon enn lifir“ – Um nýjar þýðingar eldfornra og síungra Eddukvæða

Málþing verður haldið í Snorrastofu í Reykholti laugardaginn 24. mars næstkomandi klukkan 13. Efnt er til málþings um nýjar þýðingar eddukvæða í tilefni af þýðingum Knuts Ødegård, sem komu út í tvímála útgáfu í fjórum bindum 2013-2016. Auk þess verður fagnað og vakin athygli á öðrum þýðingum og útgáfum, sem nýlega hafa komið út og…Lesa meira

true

Fræðslufundur um plast, matar- og fatasóun

Umhverfisverkefnið „Egla tekur til hendinni“ í Borgarbyggð hefur síðan í haust verið með fræðslufundi í samstarfi við UMÍS-environice, um plast og sóun. Að sögn Bjarkar Jóhannsdóttur verkefnisstjórar er þetta þriðja verkefnið sem Egla ræðst í í vetur. „Fyrst var verkefnið „Poki að láni“ sem startað var í október, þá heimsóttu Eglurnar allar stofnanir sveitarfélagsins til…Lesa meira

true

Hálkublettir á vegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að greiðfært sé um alla vegi á Vesturlandi. Þó er athygli vakin á því að nokkuð víða eru hálkublettir, en hálka er á Bröttubrekku.Lesa meira

true

Gáfu Lífsbjörgu tvo nýja galla

Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ fékk góða gjöf á dögunum þegar Lionsklúbbur Ólafsvíkur færði sveitinni tvo Víkinggalla að gjöf. En kominn var tími á að endurnýja galla sveitarinnar og hún farin að huga að því. Þessir gallar eru því góð byrjun á því ferli. Gallar þessir eru með innbyggðu vesti og því þægilegra að vinna í…Lesa meira

true

Fjölmenni á púttmóti í Brákarey

Síðastliðinn fimmtudag var haldið púttmót félags eldri borgara í púttsalnum í fyrrum kjötsal Sláturhússins í Brákarey. Þar hefur Golfklúbbur Borgarness komið fyrir prýðilegri inniaðstöðu til æfinga og keppni. Félag eldri borgara í Borgarbyggð æfir þar reglulega með um og yfir tuttugu þátttakendum í hvert skipti undir stjórn Ingimundar Ingimundarsonar íþróttakennara. Honum til fulltingis er annar…Lesa meira

true

Brunahanar bæjarins í máli og myndum

Föstudaginn 23. mars verður sýningin „300 Brunahanar – stúdía í máli og myndum“ opnuð á Akranesi. Höfundar sýningarinnar eru Garðar H. Guðjónsson blaðamaður og Guðni Hannesson ljósmyndari. Sýningin verður haldin í gömlu lögreglustöðinni að Kirkjubraut 10 á Akranesi. Opnun fer fram föstudaginn 23. mars kl. 17-19 og verður sýningin opin helgina 24. og 25. mars…Lesa meira

true

Andarungar bjóða upp á cosplay-fræðslu á föstudaginn

Undanfarið hefur Skessuhorn greint frá starfsemi Andarungahreyfingarinnar (e. Ducklings Movement) í gamla Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. Nýverið kom nýr hópur af félögum hreyfingarinnar til dvalar í skólanum og í gær kom hópur af búningaleikurum (e. cosplayers). Búningaleikur er sú afþreying, leikur og/eða skemmtun að klæða sig upp í búninga eða skreyta sig með ákveðnum munum sem…Lesa meira