Fréttir

true

Fundu líkamsleifar á botni Faxaflóa

Fyrir nokkru komu líkamsleifar í veiðarfæri fiskibáts sem staddur var á netaveiðum norðarlega á Faxaflóa. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins en hefur notið aðstoðar ýmissa við leit og rannsókn. Sérútbúinn bátur var sendur á vettvang og kannaði sjávarbotn á þeim stað sem um ræðir. Þá sáust líkamsleifar en vegna sjógangs og dýpis reyndist…Lesa meira

true

Okkar Stykkishólmur kynnir framboðslista

Okkar Stykkishólmur kynnti í gærkvöldi framboðslista sinn á vel sóttum opnum fundi sem fram fór í Skúrnum í Stykkishólmi. Listinn mun bjóða fram undir listabókstafnum O. „Okkar Stykkishólmur leggur m.a. áherslu á að mikilvægar ákvarðanir verði teknar með samstarfi allra bæjarfulltrúa í stað meirihlutaræðis. Í samræmi við það leggur listinn til að auglýst verði eftir…Lesa meira

true

Snar, Snöggur og Fljót á Spágilsstöðum

Ein kind á Spágilsstöðum í Dölum tók forskot á sæluna og bar óvenju snemma í ár. Hún bar þremur lömbum, tveimur hrútum og einni gimbur, á miðvikudaginn í síðustu viku. Kindin sem er í eigu Gísla Þórðarsonar bónda á Spágilsstöðum kærði sig þó ekki um öll lömbin og afneitaði einu þeirra. „Bjarni Hermannsson á Leiðólfsstöðum…Lesa meira

true

Fínn kolmunni af Írlandsmiðum

Víkingur AK er væntanlegur á morgun til Vopnafjarðar með tæplega 2.600 tonn af kolmunna sem veiddist á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi. Þetta er fyrsta veiðiferð skipsins á kolmunnamið eftir að loðnuveiðum lauk fyrr í mánuðinum. Við Írland var fyrr í vikunni töluverður fjöldi íslenskra, færeyskra og rússneskra skipa að veiðum. Að sögn Alberts Sveinssonar…Lesa meira

true

Snæfellingar með bakið upp við vegg

Snæfell tók á móti Hamri í öðrum leik undanúrslitarimmunnar í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Eftir jafnan og spennandi leik lengst framan af máttu heimamenn sætta sig við tap, 89-104. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks þar sem liðin skiptust á að skora og leiða leikinn. Snæfell leidd með tveimur…Lesa meira

true

Einar Örn setti Íslandsmet í bekkpressu

Um síðustu helgi var haldið Íslandsmót í klassískum kraftlyftingum og einnig Íslandsmót í klassískri bekkpressu. Bæði mótin voru haldin af Kraftlyftingafélagi Reykjavíkur. Helgin hófst með keppni í klassískri bekkpressu á laugardaginn. Kraftlyftingafélag Akraness átti þar tvo fulltrúa; Einar Örn Guðnason og Svavar Örn Sigurðsson. Svavar gerði sér lítið fyrir og sigraði í 74 kg flokki…Lesa meira

true

Mokafli af miðunum

Netabáturinn Bárður SH mokfiskaði í síðustu viku og aflinn var hreint ævintýralegur. Í tvígang hefur Bárður SH landað yfir 40 tonnum yfir daginn. Á sunnudag var landað tvisvar sinnum, í þeirri fyrri var aflinn 17,5 tonn sem fékkst í eina trossu en í þeirri síðari var landað 27 tonnum svo dags aflinn var 43.750 kíló.…Lesa meira

true

Gæðingafimi Líflands í Faxaborg á fimmtudagskvöldið

Þriðja mót Vesturlandsdeildarinnar 2018 í hestaíþróttum fer fram fimmtudagskvöldið 22. mars og verður keppt í gæðingafimi. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg í Borgarnesi. „Deildin hefur farið vel af stað í vetur og aldrei verið sterkari. Von er á fjölda sterkra hrossa og knárra knapa og má því búast við góðri skemmtun í…Lesa meira

true

Blóði safnað á Hvanneyri og í Borgarnesi í dag

Blóðbankabíllinn verður á tveimur stöðum í Borgarbyggð í dag, þriðjudaginn 20. mars. Bíllinn verður við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri frá kl. 10:00-12:30. Klukkan 14-17 verður hann svo við N1 í Borgarnesi. Allir eru velkomnir og hvattir til að gefa blóð.Lesa meira

true

Óskað eftir stækkun landfyllingar

Bæjarstjórn Akraness samþykkti í lok febrúar að auglýsa lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi sem nefnist „Grenjar H3 hafnarsvæði.“ Samkvæmt tillögunni er fyrirhuguð stækkun landfyllingar til norðurs til að rýma fyrir stækkun athafnahúsnæðis Skagans og Þ&E. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður deiliskipulag fyrir reitinn kynnt. Fyrir liggur umsókn Skagans 3X um stækkun iðnaðarbygginga um fjögur þúsund…Lesa meira