Fréttir

true

Borgnesingar fá bikarinn í kvöld

Eins og áður hefur komið fram er Skallagrímur búinn að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild karla í körfuknattleik. Honum fylgir farseðill í Domino’s deildina og því munu Borgnesingar leika í deild þeirra bestu næsta vetur. Skallagrímur mætir Vestra í lokaleik tímabilsins í Borgarnesi í kvöld. Að leik loknum fá Skallagrímsmenn deildarmeistarabikarinn afhentann. Það verður…Lesa meira

true

Valdís Þóra í toppbaráttu í Suður-Afríku

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, lék afar vel á öðrum hring á Investec SA Women‘s Open mótinu í Suður-Afríku í dag. Hún lauk hringnum á þremur 69 höggum, þremur undir pari og er í fjórða sæti mótsins á einu höggi undir pari samanlagt fyrir lokahringinn sem fram fer á morgun, laugardag. Hin þýska…Lesa meira

true

Ívar Reynir keppir með heimamönnum

Heimamaðurinn Ívar Reynir Antonsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík. Ívar, sem verður 18 ára í sumar, er alinn upp hér hjá Víkingi en gekk í raðir Fram fyrir tveimur árum. Hann spilaði svo sína fyrstu leiki með Fram í Inkassodeildinni síðastliðið sumar. Þá á hann einnig að baki 13 landsleiki…Lesa meira

true

Harma framkvæmd samræmdra könnunarprófa

Skólastjórafélag Íslands og Félag grunnskólakennara harma framkvæmd samræmdra könnunarprófa í ensku og íslensku sem lögð voru fyrir nemendur 9. bekkjar í öllum grunnskólum landsins í þessari viku. Félögin tvö hafa sent frá sér ályktun vegna málsins og hljóðar hún svo: „Skólastjórafélag Íslands og Félag grunnskólakennara harma hvernig til hefur tekist við framkvæmd samræmdra könnunarprófa í…Lesa meira

true

Samræmd próf algjört klúður – Menntamálastofnun ber ábyrgðina

Fresta þurfti í morgun samræmdum prófum í ensku sem nemendur 9. bekkja grunnskóla í landinu áttu að þreyta. Sama gerðist á miðvikudag þegar próf í íslensku var lagt fyrir. Stærðfræðipróf í gær gekk hins vegar nokkurn veginn eins og til var ætlast. Ábyrgð á framkvæmd samræmdra prófa er í höndum Menntamálastofnunar. Fram hefur komið að…Lesa meira

true

Meirihluti íbúa fylgjandi persónukjöri

Eins og Skessuhorn greindi nýverið frá lagði sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skoðanakönnun fyrir íbúa þar sem kannað var hvort þeim hugnist betur persónukjör eða listakosningar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Öllum íbúum Hvalfjarðarsveitar sem náð hafa 18 ára aldri barst bréf þar sem þeim bauðst að taka þátt í könnuninni. Svörin átti svo að senda á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir…Lesa meira

true

Kona á skjön er sýning um Guðrúnu frá Lundi

Kona á skjön, sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi, verður opnuð á Bókasafni Akraness á morgun, laugardaginn 10. mars kl. 13:00. Rithöfundarferill Guðrúnar frá Lundi er sannkallað ævintýri í íslenskri bókmenntasögu. Óþekkt kona norðan úr Skagafirði verður metsöluhöfundur nánast á einni nóttu og bækurnar tróna á toppi vinsældalista í rúma tvo áratugi. Hún…Lesa meira

true

Tap í kveðjuleik Jóns Orra

ÍA og FSu mættust í lokaumferð 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Áður en leikurinn hófst var Jón Orri Kristjánsson, leikmaður ÍA, heiðraður af áhorfendum og liðsfélögum sínum. Hann hafði gefið það út að leikurinn yrði hans síðasti á 19 ára farsælum körfuknattleiksferli. Skagamenn voru fyrir leikinn á botni deilarinnar en FSu í sætinu…Lesa meira

true

Hittast einu sinni í mánuði til að ræða um bækur

Einu sinni í mánuði koma saman fáeinar konur í Grundarfirði og skiptast á skoðunum um bók sem þær hafa þá nýlokið við að lesa. Í febrúar 2016 hittust konurnar fyrst og stofnuðu leshóp sem hefur fengið nafnið Köttur úti í mýri. Í fyrsta skipti sem leshópurinn hittist voru þær aðeins fjórar en hafa nú tvöfaldað…Lesa meira

true

Talið fram á netinu

Ríkisskattstjóri opnaði um mánaðamótin fyrir skil á netframtali einstaklinga á www.skattur.is. Almennur skilafrestur er til 13. mars. Hægt er að sækja um frest en framlengdur frestur er til 16. mars. „Ríkisskattstjóri hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn skilríki við framtalsskilin. Rafræn skilríki eru almennt álitin öruggasti auðkenningarmáti sem framteljendum býðst í dag,“ segir í…Lesa meira