Fréttir

true

H listinn í Stykkishólmi kynnir framboðslista og bæjarstjóraefni

Nýr framboðslisti H-lista í Stykkishólmi var kynntur á fundi í Lionshúsinu í gær. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni gefur enginn af núverandi bæjarfulltrúum H lista kost á sér til endurkjörs og er því um hreina nýliðun að ræða í efstu sætum listans. H listinn hefur nú fjóra bæjarfulltrúa og meirihluta í bæjarstjórn. Hrafnhildur…Lesa meira

true

Siguroddur og Hrynur sigurvegarar í slaktaumatöltinu

Annað mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg á föstudaginn. Keppt var í slaktaumatölti. Siguroddur Pétursson kom líkt og fyrsta kvöldið sterkur inn og sigraði og trónir á toppnum í einstaklingskeppninni með fullt hús stiga. Hann keppti á Hryn frá Hrísdal. Annar varð liðsfélagi hans Páll Bragi Hólmarsson á Óperu frá Austurkoti. Þriðja…Lesa meira

true

Valdís Þóra hafnaði í 21. sæti í Suður-Afríku

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, lauk leik í 21. sæti á Investec SA Women‘s Open mótinu. Mótið fór fram í Suður-Afríku um helgina, en það var eitt af mótum Evrópumótaraðarinnar. Valdís fór vel af stað í mótinu og var í toppbaráttu framan af. Eftir fyrstu tvo hringina sat hún í 4. sæti á…Lesa meira

true

Sýningin Verk og vit var haldin í Laugardalshöllinni

Íslenskur byggingariðnaður, skipulagsmál og mannvirkjagerð var þema sýningarinnar Verk og vit sem haldin var í Laugardalshöll í Reykjavík í síðustu viku og lauk í gær. Þar sýndu um 120 fyrirtæki og stofnanir hvað þau hafa upp á að bjóða í ýmsu sem tengist mannvirkjagerð, tækjabúnaði, byggingalausnum og svo framvegis. Sýningin var fyrst og fremst fagsýning…Lesa meira

true

Sjálfseignarstofnuninni Gömlu sporunum verður komið á fót á Húsafelli

Þegar sjá mun fyrir endann á þeirri uppbyggingu sem nú er langt komin í tengslum við gömlu útihúsin á Húsafelli og byggingu steinahússins, stendur til að komið verði á fót sjálfseignarstofnun í kringum væntanlegt listasafn og sýningarhald, áður en opnað verður með formlegum hætti. Þannig verði lögð áhersla á að formfesta þá umgjörð sem í…Lesa meira

true

Guðríður endurkjörin formaður FF

Guðríður Arnardóttir var á föstudaginn endurkjörin formaður Félags framhaldsskólakennara (FF). Auk hennar var Guðmundur Björgvin Gylfason, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskóla Suðurlands, í framboði til formanns. Guðríður hlaut rúm sextíu prósent atkvæða en Guðmundur tæp 35%. Auðir seðlar voru tæp 5%.Lesa meira

true

Formenn endurkjörnir

Landsfundir tveggja stjórnmálaflokka fóru fram um helgina. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður Viðreisnar. Hlaut hún 95,3% greiddra atkvæða. Þorsteinn Víglundsson hlaut um 98% fylgi í stól varaformanns. Á flokksþingi Framsóknarflokks var Sigurður Ingi Jóhannsson endurkjörinn formaður með 94% atkvæða, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður með 97% og Jón Björn Hákonarson ritari með 95%.Lesa meira

true

Elsa Lára hlaut jafnréttisviðurkenningu

Á flokksþingi Framsóknarflokksins sem nú stendur yfir í Reykjavík var Elsu Láru Arnardóttur fyrrverandi þingmanni veitt jafnréttisviðurkenning flokksins. Elsa Lára sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs fyrir síðustu þingkosningar starfar nú sem framkvæmdastjóri þingflokksins. „Þessi viðurkenning gefur mér aukinn kraft í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og að stigin verði stór skref í jafnréttismálum…Lesa meira

true

Margir sóttu um lausan mjólkurkvóta

Á fyrsta innlausnardegi þessa árs, 1. mars síðastliðinn, fyrir greiðslumark mjólkur óskuðu sjö handhafar greiðslumarks eftir að ríkið innleysti greiðslumark sitt og 93 lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn þess. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram í byrjun mars, maí, september og nóvember ár…Lesa meira

true

Varlega verði farið með eld

Í tilkynningu til íbúa í Skorradal og þeirra sem þar dvelja bendir Árni Hjörleifsson oddviti á mikla eldhættu nú þegar snjóa hefur tekið upp víða í dalnum og þurr frostakafli er. „Rétt er að benda fólki á að þurr sina og lauf í skóarbotnum getur verið mjög eldfim og því er mikil nauðsyn á að…Lesa meira